Samband íslenskra námsmanna erlendis

Styrkir til námsdvalar í Litháen skólaárið 2012-2013 Námsstyrkir - Viðskiptaráð Íslands Styrkir til háskólanáms í Finnlandi 2012-2013 Opnunartími

SÍNE 50 ára

Fréttir

Styrkir til námsdvalar í Litháen skólaárið 2012-2013


Stjórnvöld í Litháen bjóða fram styrki handa Íslendingum til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2012-2013. Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum, fræðimönnum eða kennurum til náms í litháísku eða baltneskum fræðum og eru til 5-10 mánaða.

Einnig er í boði styrkur til að sækja sumarnámskeið í tungu og menningu Litháa sumarið 2012.


Lesa meira

Námsstyrkir - Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð Íslands hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis. Undanfarin ár hafa verið veittir tveir styrkir árlega og hefur afhending þeirra farið fram á aðalfundi ráðsins eða Viðskiptaþingi, en þessir viðburðir eru að jafnaði haldnir í febrúarmánuði.

Lesið meira hér



Styrkir til háskólanáms í Finnlandi 2012-2013


Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi
bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2012-2013.
Lesa meira

Opnunartími skrifstofu á milli jóla og nýars 10-13

Skrifstofa SÍNE er staðsett í Hinu Húsinu Pósthússtræti og verður opin frá kl. 10:00-13:00.  Hitt Húsið er opið frá kl. 10:00 þessa viku.

Úthlutun haustlána til námsmanna erlendis hófst 20.desember

Almenn úthlutun hefst 5. janúar 2012. Úthlutun lána til námsmanna erlendis hefst 20. desember nk.

Skilyrði þess að úthlutun geti hafist er að fullnægjandi námsárangur og önnur umbeðin gögn hafi borist sjóðnum. Námsmenn geta kannað stöðu sína á Mínu svæði hjá LÍN.  Hægt er að tengjast Mínu svæði með veflykli ríkisskattstjóra beint frá heimasíðu LÍN, velja "Mitt svæði" lengst til hægri í rauðu valröndinni. Einnig er hægt að nálgast Mitt svæði frá íslenskum heimabönkum og Innu (vef framhaldsskólanna).
 

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf