Samband íslenskra námsmanna erlendis

Borgarafundur um menntamál Fimmtudaginn, 16. apríl, næstkomandi mun fjöldi hagsmunasamtaka námsmanna á Íslandi standa fyrir borgarafundi um menntamál.

SÍNE 50 ára

Borgarafundur um menntamál

Fimmtudaginn, 16. apríl, næstkomandi mun fjöldi hagsmunasamtaka námsmanna á Íslandi standa fyrir borgarafundi um menntamál. Tilgangurinn er að veita íslenskum námsmönnum tækifæri á að kynna sér áherslur flokkanna og taka afstöðu fyrir komandi alþingiskosningar. Ljóst er að mikið mæðir á námsmönnum að vita hvernig stjórnmálaflokkar landsins hyggjast koma til móts við þá á þessum átakatímum. Í upphafi fundar munu fjórir fulltrúar, þ.e. fulltrúi stúdenta, fulltrúi framhaldsskólanema, fulltrúi háskólasamfélagsins og fulltrúi atvinnulífsins halda framsögu en að því loknu munu fulltrúar stjórnmálaflokkanna sitja fyrir svörum á pallborði. Borgarafundurinn verður haldinn í stóra sal Háskólabíós kl. 20:00.

Fundarstjóri:
Sigurjón M. Egilsson

Framsögufólk:
Atvinnulífið: Þórólfur Árnason Forstjóri Skýrr
Háskólasamfélagið: Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs
Stúdent: Saga Garðarsdóttir Listaháskólanum (leiklist)
Framhaldsskólar: Hreiðar Már Stjórn SÍF


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf