mánudagur 14.júní 2010 - Hjördís Jónsdóttir - Lestrar 40
Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rannís) er um þessar mundir að undirbúa rannsókn á högum doktorsmenntaðra Íslendinga.
Rannsóknin er hluti af stóru samstarfsverkefni Eurostat, Unesco og OECD.
Til: Rannsóknafólks erlendis
Í verkefni þessu er okkur ætlað að hafa uppi á Íslendingum með doktorsgráður með það fyrir augum að fá innsýn þeirra inn í kjaramál, atvinnutækifæri og hreyfanleika milli landa vegna starfa að náminu loknu. Flest Evrópulönd eru þátttakendur í þessu verkefni og gefst því dýrmætt tækifæri til samanburðar á högum doktora. Niðurstöðurnar verða birtar á alþjóðavísu að verkefninu loknu.
Í tengslum við þetta verkefni hefur Rannís þróað gagnabanka um doktorsmenntaða Íslendinga sem nær allt aftur til ársins 1666. Þetta höfum við m.a. gert með því að fylgjast markvisst með útskriftum úr íslenskum háskólum og reynt að hafa uppi á doktorsútskriftum erlendis frá. Ekki hefur reynst auðvelt að hafa uppi á Íslendingum sem ljúka doktorsnámi við erlenda háskóla og óskum við því eftir aðstoð þinni.
Hafirðu verið við doktorsnám erlendis og jafnframt lokið því ertu beðin/n um að senda okkur þær upplýsingar og í kjölfarið munum við uppfæra gagnabankann. Allra best væri að fá eftirfarandi upplýsingar:
Nafn
Kennitala
Útskriftarár
Fræðasvið
Ritgerð varin (dagsetning)
Nafn háskóla
Námsland
Núverandi netfang
Núverandi heimilisfang
Viðtakandi þessara upplýsingar er: Hugrún Ýr Helgadóttir (hugrun@rannis.is), verkefnastjóri á greiningarsviði.