mánudagur 09.nóvember 2009 - Hjördís Jónsdóttir - Lestrar 48
___________________________________________________________
Fulbright-stofnunin tilnefnir einn námsmann til að hljóta Cobb Family Fellowship styrk til að stunda framhaldsnám við
Miami háskóla í Flórída haustið 2010. Tekið er við umsóknum í þeim námsgreinum sem skólinn býður upp á.
Heimasíða skólans er www.miami.edu og þar má skoða hvaða námsgreinar eru í boði. Þeir sem sækja um styrkinn þurfa einnig að sækja um skólavist, og skal bent á það að umsóknarfrestur er mismunandi frá einni deild til annarrar.
___________________________________________________________
Umsóknareyðublöð og upplýsingar:
Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást hjá Fulbright-stofnuninni og á vefsíðu hennar: www.fulbright.is. Skilafrestur umsókna er til 15. nóvember. Með umsóknum skulu fylgja einkunnir úr háskólanámi, þrjú meðmælabréf og prófniðurstöður úr TOEFL og GRE eða GMAT ef þær fyrirliggja.
___________________________________________________________
FULBRIGHT-STOFNUNIN, LAUGAVEGI 59, 101 REYKJAVÍK







