Samband íslenskra námsmanna erlendis

Frá lánasjóðsfulltrúa SÍNE Hér má sjá bréf frá lánasjóðsfulltrúa SÍNE, Vali Þráinssyni, til félagsmanna.

SÍNE 50 ára

Frá lánasjóðsfulltrúa SÍNE

Hér má sjá bréf frá lánasjóðsfulltrúa SÍNE, Vali Þráinssyni, til félagsmanna.


Kæri félagi,

Þann 20.maí síðastliðin voru nýjar úthlutunarreglur LÍN samþykktar af meirihluta stjórnar sjóðsins.

Segja má að þær breytingar sem gerðar voru hafi í flestum tilvikum þrengt svigrúm nema til þess að stunda nám. Undirritaður greiddi atkvæði gegn úthlutunarreglunum þar sem ekki er tekið tillit til raunbreytinga á framfærsluþörf, námsframvindukröfur eru hækkaðar auk þess sem makalán til þeirra nema sem hefja nám næsta haust hafa verið felld niður í mörgum löndum sem getur valdið því að barnafjölskyldur hafi ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að stunda nám í þeim löndum þar sem makalánin verða ekki veitt.

Gerð er nánari grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið hér fyrir neðan:
  1. Námsframvindukröfur hafa verið hækkaðar. Veturinn sem nú er að ljúka hefur viðkomandi nemi þurft að ljúka að lágmarki 20 ECTS einingum yfir skólaárið til þess að eiga rétt á láni frá LÍN. M.v. úthlutunarreglur næsta vetur þarf viðkomandi að ljúka að lágmarki 18 ECTS á hverri önn (12 ECTS á sumarönn) til þess að eiga rétta láni.
  2. Námsmaður fær ekki lánað umfram 100% námsárangur (60 ECTS) yfir veturinn. Þ.e. ef námsmaður lýkur fleiri en 60 ECTS einingum yfir veturinn fær hann ekki lánað fyrir meira en sem nemur 60 ECTS.
  3. Skilyrði til þess að fá makalán hafa verið þrengd, en til þess að makalán sé í boði þarf makinn að sýna fram á að hann geti ekki fengið atvinnuleyfi í viðkomandi landi.
  4. Síðastliðið skólaár hækkaði framfærsla um fasta upphæð með hverju barni. Nú lækkar framfærslan með hverju barni eftir því sem börnin verða fleiri.  Þ.e. nú er framfærsla með fyrsta barni 100% (upphæðin er mismunandi eftir löndum), 95% fyrir annað barn, 80% fyrir þriðja barn, 75% fyrir fjórða barn og fyrir fimmta barn, eða fleiri, 70%.
Eins og sjá má af fyrrgreindum breytingum er verið að í fyrsta lagi að þrengja möguleika til náms verulega, í öðru lagi að leggja niður makalán að hluta og í þriðja lagi að lækka framfærslu til barnafólks.

Undirritaður telur þessar breytingar ótækar og óskar eftir því að menntamálaráðherra rökstyðji hvaða faglegu forsendur hafi legið á bakvið þær.

Afrit af þessu bréfi hefur verið sent til menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur. Svör hennar verða í framhaldinu send til félagsmanna SÍNE.

Bestu kveðjur,
Valur Þráinsson
Fulltrúi SÍNE í stjórn LÍN


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf