Samband íslenskra námsmanna erlendis

Framfærslustyrkir til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum Norræna ráðherranefndin og mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsa eftir umsóknum frá

SÍNE 50 ára

Framfærslustyrkir til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum


Norræna ráðherranefndin og mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsa eftir umsóknum frá íslenskum námsmönnum á Norðurlöndum. Um er ræða framfærslustyrki í 1-3 mánuði sumarið 2010. Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins hefur verið falið að annast umsýslu styrkjanna.
Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem eru í fjárhagsvanda vegna atvinnuleysis yfir sumarmánuðina og hafa hvorki möguleika á námslánafyrirgreiðslu né rétt á atvinnuleysis-bótum.
Styrkirnir eru jafnframt ætlaðir námsmönnum sem eru að hefja nám á Norðurlöndum haustið 2010 og eru án atvinnu í sumar.
Skilyrði umsóknar: Umsækjandi er íslenskur ríkisborgari við nám eða á leið í nám í skóla á Norðurlöndum. Nám umsækjanda er lánshæft skv. úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna Umsækjandi fær ekki námslán fyrir meira en 60 ECTS einingum á námsárinu. Umsækjandi er ekki í lánshæfu sumarnámi. Umsækjandi er án atvinnu og á ekki rétt á atvinnuleysisbótum.
Umsóknareyðublöð, leiðbeiningar og nánari upplýsingar verður að finna á heimasíðu Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins http://www.ask.hi.is ekki síðar en 10. maí nk.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2010.


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf