Samband íslenskra námsmanna erlendis

Fréttatilkynning frá SÍNE Fjöldi námsmanna hefur sett sig í samband við Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) undanfarnar vikur og bent á nýlega

SÍNE 50 ára

Fréttatilkynning frá SÍNE

Fjöldi námsmanna hefur sett sig í samband við Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) undanfarnar vikur og bent á nýlega reglugerð sem hefur sett skólagöngu þeirra í uppnám.

Fjölmargir námsmenn erlendis bíða nú eftir svörum frá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) varðandi svokallaða búsetureglu, sem er að finna undir lið 1.1. í úthlutunarreglum sjóðsins og hljóðar svo;

„Enn fremur þarf viðkomandi að hafa stundað launuð störf hér á landi síðustu 12 mánuði fyrir umsóknardag, hið skemmsta, og haft samfellda búsetu hér á landi á sama tíma eða starfað í skemmri tíma en 12 mánuði og haft búsetu hér á landi í tvö ár samanlagt á samfelldu fimm ára tímabili sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 478/2011“.


Þessar breytingar koma, í tilfellum margra, of seint og setja forsendur til náms á hvolf. Námsmenn sem fara til náms erlendis eiga það sameiginlegt að þurfa að skipuleggja nám sitt fram í tímann, t.d. sækja um skólavist með margra mánaða til árs fyrirvara. Reglugerð þessi er samþykkt 20. apríl 2011, á tíma sem er líklegt að þeir sem hyggja á nám erlendis séu löngu búnir að sækja um í skóla og kynna sér eldri reglur LÍN, og séu því samkvæmt þeim með grænt ljós á framfærslulán. Síðar kemur reglugerðin í ljós. Of seint því mjög óþægileg óvissa hefur skapast fyrir fjölda námsmanna, sem margir hafa hafið nám og vita ekki í hvorn fótinn á að stíga.  

Fyrir hönd félagsmanna sinna, óskar SÍNE eftir skjótri og farsælli lausn á þessum málum af hálfu yfirvalda.

Við hvetjum félagsmenn okkar og aðra nema erlendis til að fylgjast með þróun mála á heimasíðu SÍNE (www.sine.is) eða á Facebook.

Samband íslenskra námsmanna erlendis. 


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf