Samband íslenskra námsmanna erlendis

Klakamót 2010 Klakamótið 2010 fer fram í Lund, Svíþjóð, helgina 10-12. sepember. Klakamótið er knattspyrnumót þar sem sjö manna lið íslenskra karlmanna

SÍNE 50 ára

Klakamót 2010

Klakamótið 2010 fer fram í Lund, Svíþjóð, helgina 10-12. sepember.

Klakamótið er knattspyrnumót þar sem sjö manna lið íslenskra karlmanna búsettum á Norðurlöndum mætast.

 Mótið í ár er það 25. í röðinni og í annað skiptið sem það fer fram utan Danmerkur, því mótið var haldið í Lund 1997. Það herrans ár, 1997 voru um 100 knattspyrnumenn sem kepptu, en síðan þá hefur mótinu vaxið fiskur um hrygg og voru t.d. um 190 keppendur á Klakamótinu 2009 í Odense. Vonast er eftir því að annar eins fjöldi mæti á mótið í Lundi og einnig væri gaman væri að sjá lið frá Noregi, Finnlandi og annars staðar frá Svíþjóð mæta til Skåne, auk að sjálfsögðu sem flestra frá Danaveldi.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni, http://klakamot2010.islund.se/ og á facebook, http://www.facebook.com/group.php?gid=36715659631

Kjörorð Klakamótsins er: “70% félagsskapur og 30% bolti”.



Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf