Samband íslenskra námsmanna erlendis

Kosningar Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis 13.3.2009 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 25. apríl 2009 hefst 16. mars

SÍNE 50 ára

Kosningar

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis
13.3.2009

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 25. apríl 2009 hefst 16. mars nk. og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis, fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.


Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verður að finna á vefsetrinu: www.kosning.is.

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.

Óski kjósendur erlendis eftir því að greiða atkvæði fyrir mánudag, er þeim bent á að hafa samband við viðkomandi sendiskrifstofu eða ræðismann.



Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf