þriðjudagur 19.maí 2009 - Hjördís Jónsdóttir - Lestrar 222
Hér er lýst því ferli sem gildir fyrir námsmenn sem hafa ekki fengið sumarvinnu og hyggjast sækja um atvinnuleysisbætur.

I. Námsmenn sem flytjast á milli ára/anna í námi sumarið 2009:
Námsmenn sem munu halda áfram námi í haust en hafa ekki fengið sumarvinnu og hyggjast sækja um greiðslu atvinnuleysisbóta skulu sækja um á heimasíðu VMST. Þegar umsókn hefur verið send rafrænt með þeim hætti þarf að skila inn gögnum og undirrita umsókn.
Nemendur koma í Borgartún 7 í Reykjavík eða næstu þjónustuskrifstofu úti á landi til að skrifa undir umsókn og skila gögnum:
1. Vottorð vinnuveitenda sem umsækjandi hefur starfað hjá síðastliðin þrjú ár fyrir umsóknardag þar sem tilgreindur er nákvæmur vinnudagafjöldi og vinnuhlutfall (eyðublað á heimasíðu VMST).
2. Skattkort
3. Staðfesting á áframhaldandi skólavist í haust
Fyrsta möguleg dagsetning umsókna miðast við:
* Framhaldskólanemar geta sótt um á netinu frá og með 15. maí og miðast greiðslur þá við 20. maí.
* Háskólanemar geta sótt um á netinu frá og með 25. maí og miðast greiðslur þá við 1. júní.
* Greiðslur til þeirra sem sækja um eftir ofangreindar dagsetningar miðast við dagsetningu umsóknar.
Bótatímabil atvinnuleysistrygginga er frá 20. hvers mánaðar til 19. næsta mánaðar og stefnir Vinnumálastofnun að fyrstu greiðslu til þessara hópa þann 1. júlí 2009. Greiðslur til námsmanna eru tímabundnar sem hér segir:
* Framhaldsskólanemar geta verið á bótum til og með 20. ágúst.
* Háskólanemar geta verið á bótum til og með 1. september.
Þeir sem hyggjast nýta sér sumarnámskeið skólanna eða stunda annað nám yfir sumartímann eiga ekki rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta heldur ber þeim að snúa sér til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. VMST mun fylgjast með sumarnámi með samkeyrslu við nemendaskrár skólanna. Ef námið er ekki lánshæft verður umsækjandi að sleppa námi ef hann hyggst vera í atvinnuleysistryggingakerfinu.
Greiðslur atvinnuleysisbóta til námsmanna miðast við að umsækjandi sé í hefðbundnu sumarhléi í námi sínu og nýti allan sinn tíma til að verða sér út um atvinnu á meðan á því stendur.
II. Námsmenn sem hafa staðist lokapróf úr skóla vorið 2009
Þeir námsmenn sem ljúka námi nú í vor og eru í atvinnuleit til framtíðar (hyggja ekki á námi í haust) en hafa ekki fundið starf og hyggjast sækja um greiðslu atvinnuleysisbóta:
Þeir sækja um með venjubundnum hætti á heimasíðu VMST og mæta á næstu þjónsustuskrifstofu VMST til að skrifa undir umsókn og skila viðeigandi gögnum.