Samband íslenskra námsmanna erlendis

Námsstyrkir frá Viðskiptaráði Námsstyrkir Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um fjóra styrki til framhaldsnáms erlendis.  Tveir styrkjanna eru

Námsstyrkir frá Viðskiptaráði

Námsstyrkir
Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um fjóra styrki til framhaldsnáms erlendis.  Tveir styrkjanna eru veittir úr Námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni en hinir tveir úr Námssjóði Viðskiptaráðs.
1.    Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun  þess.  Tveir styrkjanna gera kröfu um nám á svið upplýsingatækni.
2.    Skilyrði styrkveitinganna er að umsækjendur hafi lokið háskólanámi eða öðru sambærilegu námi.
3.    Hver styrkur er að fjáhæð kr. 350.000 og verða þeir afhentir á Viðskiptaþingi, 17. febrúar 2010.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu Viðskiptaráðs Kringlunni 7, 103 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 29. janúar 2010.
Umsóknum þarf að fylgja afrit af prófskírteini, vottorð um skólavist erlendis og ljósmynd af umsækjanda.  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Viðskiptaráðs, www.vi.is.




Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf