föstudagur 12.júní 2009 - Hjördís Jónsdóttir - Lestrar 195
Ágætu félagsmenn
Ráðherraskipaður meirihluti stjórnar Lánsasjóðs íslenskra námsmanna hefur nú samþykkt úthlutunarreglur fyrir komandi vetur þrátt fyrir hörð mótmæli fulltrúa nemenda í sjóðsstjórn. Upphæðir námslána eru að mestu óbreyttar frá síðasta vetri, og í sumum tilvikum að lánin skerðast verulega frá því sem var.
Upphæðir lána voru lágar fyrir, og á mörkum þess að telja mætti sjóðinn uppfylla lögbundið hlutverk sitt. Vegna verðbólgu og hruns gengis íslensku krónunnar þýða hinar nýju reglur í raun að kaupmáttur framfærslulána námsmanna jafnt innanlands sem utan skerðist verulega, jafnvel um þriðjung frá síðasta vetri. Þá eru uppi áætlanir um enn frekari niðurskurð á útlánum sjóðsins að ári liðnu.
Þessi niðurstaða er afleiðing þess að hið opinbera hefur ákveðið að veita til lánasjóðsins sama fjármagni í krónum talið og síðasta vetur, og að auki gert sjóðnum að innleiða harkalegar sparnaðaraðgerðir.
Er það mitt mat að sjóðurinn búi nú við slíkt fjársvelti að honum sé ómögulegt að sinna lögbundnu hlutverki sínu, en í lögum frá Alþingi 1992 er sjóðnum falið að tryggja námsmönnum tækifæri til náms án tillits til fjárhags, og jafnframt að námslán nægi hverjum námsmanni til að standa straum af náms- og framfærslukostnaði meðan á námi stendur.
Til að mótmæla fjársvelti stofnunarinnar og undirstrika alvarleika þeirrar stöðu sem íslenskir námsmenn standa nú frammi fyrir hef ég sagt mig úr stjórn Lánasjóðsins.
SÍNE mun eftir sem áður eiga fulltrúa í stjórn LÍN, og mun stjórn félagsins velja mann í minn stað. Úrsögn mín úr sjóðsstjórn er umfram allt táknræn, og mun ég halda áfram að beita mér fyrir bættum kjörum námsmanna á vettvangi félagsins.
Félagsmenn SÍNE vil ég fullvissa um að fulltrúar nemendahreyfinganna í stjórn LÍN leituðu, og munu halda áfram að leita allra leiða til að knýja fram þau auknu fjárframlög sem sjóðurinn þarf til að veita námsmönnum eðlileg lán. Ríkisstjórnin hefur hins vegar stillt sjóðnum upp við vegg.
Lán komandi vetrar verða að mínu mati með öllu óviðunandi, og verð ég að hvetja félagsmenn SÍNE til að athuga hvaða lánamöguleika þeir kunna að eiga hjá námslánastofnunum í öðrum löndum. Sum ykkar kunna að eiga rétt á að ganga inn í lánasjóði norrænu landanna, sem gera misstrangar kröfur um búsetu og vinnutíma í landinu til þeirra sem vilja fá aðgang að sjóðunum. Lánakjörnin við norrænu sjóðina eru um margt öðruvísi en hjá íslenska sjóðnum, lengd lánanna oft styttri og þau á hærri vöxtum, og minni aðgangur að stórum skólagjaldalánum. Á móti kemur að hluti lánafyrirgreiðslunnar er iðulega í formi styrks, en umfram allt kann mánaðarlega framfærsluupphæðin að vera hærri, sem er það sem í tilfelli margra námsmanna er það sem kann nú að gera útslagið um að geta haldið áfram námi.
Einnig hvet ég félagsmenn til að skrifa skrifstofu SÍNE sem og skrifa menntamálaráðherra og meðlimum menntamálanefndar Alþingis, til að skýra þeim frá kjörum sínum og þeim áhrifum sem ófullnægjandi lán hafa á námið.
Ásgeir Ingvarsson







