miðvikudagur 31.ágúst 2011 - Hjördís Jónsdóttir - Lestrar 19
Við viljum vekja athygli á að óskað hefur verið eftir fundi í menntamálanefnd Alþingis, til að ræða rétt Íslendinga
í námi erlendis, sbr. frétt á Vísi.
Mikið hefur verið hringt á skrifstofu SÍNE og margir námsmenn virðast vera í vandræðum vegna nýrra úthlutunarreglna LÍN en þar er tekið fram í 1.kafla: Enn fremur þarf viðkomandi að hafa stundað launuð störf hér á landi síðustu 12 mánuði fyrir umsóknardag, hið skemmsta, og haft samfellda búsetu hér á landi á sama tíma eða starfað í skemmri tíma en 12 mánuði og haft búsetu hér á landi í tvö ár samanlagt á samfelldu fimm ára tímabili sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 478/2011.
Við bíðum eftir svörum frá stjórn LÍN og munum birta þau hér á síðunni um leið og þau berast.