Samband íslenskra námsmanna erlendis

Samkeppni um verkefni í raungreinum   200.000 kr. í verðlaun (sjá meðfylgjandi plakat)  Fjölbrautaskóli Suðurnesja efnir í til samkeppni um hugmyndir að

Samkeppni um verkefni í raungreinum

 

200.000 kr. í verðlaun (sjá meðfylgjandi plakat)
 

Fjölbrautaskóli Suðurnesja efnir í til samkeppni um hugmyndir að verkefnum sem notuð verða í raungreinabúðunum Geo Camp Iceland. Skilyrðin eru að verkefnin taki mið af náttúru og umhverfi búðanna, þ.e. á Reykjanesi (Suðvesturhluta landsins). Verkefnin eiga að taka mið af ákveðnum markhópi og geta verið tengd hinum ýmsu sviðum raunvísinda, svo sem líffræði, efnafræði, haffræði, jarðfræði, veðurfræði og orkurannsóknum og áherslan getur einnig verið margvísleg svo sem gagnaöflun, rannsóknir, mælingar og tilraunir á vettvangi eða á rannsóknarstofu. Þátttakendur í samkeppninni skulu fylla út þar til gerða verkefnislýsingu fyrir hverja hugmynd að verkefni og senda þau á netfangið info@geocampiceland.is ásamt fullu nafni, vinnustað/skóla og símanúmeri fyrir 15. apríl 2009. Eyðublöðin ásamt frekari upplýsingum má finna á heimasíðu Geo Camp Iceland http://www.geocampiceland.is/ .

 

 


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf