Samband íslenskra námsmanna erlendis

Styrkir til háskólanáms í Finnlandi 2012-2013 Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi bjóða fram til

SÍNE 50 ára

Styrkir til háskólanáms í Finnlandi 2012-2013


Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi
bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2012-2013.
Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Styrkirnir eru ætlaðir til
doktorsnáms, rannsókna og kennslu á háskólastigi. Umsóknir um styrki til doktorsnáms
njóta forgangs.

Styrkir eru veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 1200 evrum á
mánuði. Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á eftirfarandi slóð á vefsíðu CIMO
(Centret for International Mobility):
http://www.studyinfinland.fi/tuition_and_scholarships/cimo_scholarships/finnish_govern
ment_scholarship_pool.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar
eru tilgreind í upplýsingum um styrkina og skulu umsóknir, ásamt fylgiskjölum, sendar
ráðuneytinu.

Nánari upplýsingar veitir Sunna Viðarsdóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti
(sunna.vidarsdottir@mrn.is).

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf