Samband íslenskra námsmanna erlendis

Styrkir til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum sumarið 2011 Norræna ráðherranefndin og mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsa styrki til íslenskra

SÍNE 50 ára

Styrkir til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum sumarið 2011

Norræna ráðherranefndin og mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsa styrki til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum sumarið 2011.

Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem eru í fjárhagsvanda vegna atvinnuleysis yfir sumarmánuðina og hafa hvorki möguleika á námslánafyrirgreiðslu né rétt á atvinnuleysisbótum milli námsára.

 

 

Skilyrði umsóknar:

  • Umsækjandi er íslenskur ríkisborgari búsettur Norðurlöndunum (utan Íslands).
  • Umsækjandi er þegar við nám í skóla á Norðurlöndunum og hyggst halda áfram námi haustið 2011.
  • Nám umsækjanda er lánshæft skv. úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna

og umsækjandi fær ekki námslán fyrir meira en 60 ECTS einingum á námsári.

  • Umsækjandi er ekki í lánshæfu sumarnámi.
  • Umsækjandi er án atvinnu og á ekki rétt á atvinnuleysisbótum, hvorki á Íslandi né á hinum Norðurlöndunum.
  • Umsækjendur sem ekki hafa hlotið þennan styrk s.l. tvö ár njóta forgangs.
  • Umsækjendur skulu vera í fullu námi.

 

Ekki er tekið við umsóknum frá:

  • Nemendum sem útskrifast árið 2011 og eru ekki að fara í áframhaldandi nám.
  • Nemendum í fjarnámi, hvorki við íslenska né erlenda háskóla.
  • Nemendum í skiptinámi.
  • Nemendum sem þiggja aðra námsstyrki s.s. SU.

 

 

Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins hefur verið að falið að annast umsýslu styrkjanna. Umsóknareyðublöð, leiðbeiningar og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skrifstofunnar http://www.ask.hi.is

 

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2011.

 



Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf