Samband íslenskra námsmanna erlendis

Styrkir Noregur MENNTA- OG MENNINGARMÁLARÁÐUNEYTIÐ Styrkir til starfsmenntunarnáms Menntamálaráðuneyti Noregs veitir á námsárinu 2009-2010 nokkra styrki

SÍNE 50 ára

Styrkir Noregur

MENNTA- OG MENNINGARMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til starfsmenntunarnáms
Menntamálaráðuneyti Noregs veitir á námsárinu 2009-2010 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við
fræðslustofnanir í Noregi.
Styrkirnir, sem nema 20.000 n.kr. hver, eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms
eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms
iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi.
Frestur til að skila inn umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, er hér með
framlengdur til 13. nóvember nk. Umsóknir skulu sendar mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á vef
ráðuneytisins menntamalaraduneyti.is.


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf