fimmtudagur 14.maí 2009 - Hjördís Jónsdóttir - Lestrar 38
Styrkur til háskólanáms á Ítalíu
Ítölsk stjórnvöld munu væntanlega bjóða fram styrk/styrki handa Íslendingum til háskólanáms á Ítalíu námsárið 2009-2010. Styrkurinn er einkum ætlaður til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við listaháskóla (að loknu grunnnámi). Einnig kemur til greina að veita styrk til að sækja þriggja mánaða námskeið í ítölsku við Háskólann í Siena eða Perugia. Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára. Styrkfjárhæðin nemur u.þ.b. 1000 evrum á mánuði. Nánari upplýsingar og eyðublöð fást í menntamálaráðuneyti. Upplýsingar er einnig hægt að nálgast á vefslóðinni: http://www.esteri.it/MAE/IT/Ministero/Servizi/Stranieri/Opportunita/ og eyðublöð: http://borseonline.esteri.it/borseonline/it/index.asp
Umsóknarfrestur er til 27. maí 2009.