Samband íslenskra námsmanna erlendis

Tekjumörk vegna undanþágu frá greiðslu fastrar afborgunar árið 2009 hækkuð úr 2,1 milljón í 4 milljónir. Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur

SÍNE 50 ára

Tekjumörk vegna undanþágu frá greiðslu fastrar afborgunar árið 2009 hækkuð úr 2,1 milljón í 4 milljónir.

Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur ákveðið að hækka tekjumörk vegna undanþágu frá greiðslu fastrar afborgunar árið 2009 úr 2,1 milljón króna í 4 milljónir króna. Ákvörðunin er tekin vegna þeirra tímabundnu aðstæðna sem uppi eru í íslensku efnahagslífi og hafa í för með sér aukið atvinnuleysi  Tekjumörkin miðast við árstekjur 2008. Áfram munu sömu kröfur gilda um skilyrði undanþágu sbr. gr. 7.4.1. í úthlutunarreglum LÍN.

Greiðendur, sem orðið hafa fyrir verulegum fjárhagsörðugleikum a.m.k. fjórum mánuðum fyrir gjalddaga, geta sótt um undanþágu frá greiðslu fastrar afborgunar. Ástæður slíkra fjárhagsörðuleika geta verið ástundun lánshæfs náms, atvinnuleysi, veikindi, þungun, umönnun barna eða aðrar sambærilegar ástæður. Skilyrði er, að þær aðstæður sem tilgreindar eru, hafi varað samfellt í  fjóra síðustu mánuði fyrir gjalddaga.
Hægt er að sækja um undanþágu frá afborgun á „Mínu svæði”.  Þeir umsækjendur sem ekki eiga möguleika á að nýta sér „Mitt svæði” geta óskað eftir að fá sent eyðublað vegna umsóknar eða fengið það afhent í afgreiðslu LÍN.
Við afgreiðslu umsókna um undanþágu frá tekjutengdri afborgun haustið 2009 verður leitast við að koma til móts við þá sem verða fyrir miklum tekjumissi milli áranna 2008 og 2009, skv. ákvörðun stjórnar LÍN um lækkun eða niðurfellingu. Afgreiðsla slíkra umsókna fer fram í tengslum við afborgun með gjalddaga 1. september og 1. nóvember n.k. þar sem staðfest gögn um tekjur liggja ekki fyrir fyrr.


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf