föstudagur 18.nóvember 2011 - Hjördís Jónsdóttir - Lestrar 7
Rannís hefur þróað gagnabanka um doktorsmenntaða Íslendinga sem nær allt aftur til ársins 1666. Þetta höfum við m.a. gert með því að fylgjast markvisst með útskriftum úr íslenskum háskólum og reynt að hafa uppi á doktorsútskriftum erlendis frá. Ekki hefur reynst auðvelt að hafa uppi á Íslendingum sem ljúka doktorsnámi við erlenda háskóla og óskum við því eftir aðstoð þinni.
Hafirðu verið við doktorsnám erlendis og jafnframt lokið því ertu beðin/n um að senda okkur þær upplýsingar og í kjölfarið munum við uppfæra gagnabankann. Allra best væri að fá eftirfarandi upplýsingar:
Nafn
Kennitala
Útskriftarár
Fræðasvið
Ritgerð varin (dagsetning)
Nafn háskóla
Námsland
Núverandi netfang
Núverandi heimilisfang
Viðtakandi þessara upplýsingar er: Eyrún Sigurðardóttir (eyrun.s@rannis.is)







