Samband íslenskra námsmanna erlendis

Hvað felst í aðild að SÍNE ? Meginhlutverk SÍNE er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og vera tengiliður þeirra við þau stjórnvöld sem koma að kjörum SÍNE

Aðild að SÍNE

Hvað felst í aðild að SÍNE ?

Meginhlutverk SÍNE er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og vera tengiliður þeirra við þau stjórnvöld sem koma að kjörum SÍNE félaga hér á landi. Á síðustu árum hefur þjónustan við tilvonandi félagsmenn, þ.e. námsmenn á leið út, vaxið mjög mikið og er orðin stór þáttur í starfsemi félagsins.

 

- Félagsmönnum er boðið að hringja “collect” á skrifstofu SÍNE hvaðanæva að úr heiminum. 
- SÍNE félagar fá aðstoð í samskiptum sínum við Lánasjóð íslenskra námsmanna en í stjórn LÍN situr fulltrúi frá SÍNE og vinnur stöðugt að bættum kjörum félagsmanna í lánamálum  Framkvæmdastjóri SÍNE situr alla s.k. vafamálafundi Lánasjóðsins og leiðbeinir félagsmönnum í málarekstri auk þess að tala máli allra námsmanna á þeim fundum. 
- SÍNE félagar njóta afsláttarkjara hjá Samskipum en þeir fá 12% afslátt af flutningsgjöldum hjá fyrirtækinu. 
- Fyrir jól og á vorin reynir SÍNE að afla hagstæðra kjara á flugmiðum til Íslands fyrir félagsmenn sína. 
- Trúnaðarmenn SÍNE aðstoða félagsmenn í viðkomandi námslandi 
- Stjórn SÍNE leitar allra leiða til að bæta hag námsmanna erlendis 
- SÍNE er í samstarfi við Atvinnumiðstöð stúdenta og geta félagsmenn leitað þangað þeim að kostnaðarlausu í leit að sumar- eða framtíðarstarfi 
- SÍNE hefur barist fyrir lægri endurgreiðslubyrði námslána og nú gefst lánþegum kostur á að greiða af láni sínu átta greiðslu á ári í stað tveggja áður. 
- SÍNE er aðili að samráðshóp 15 samtaka sem leita munu leiða til að létta endurgreiðslubyrði námalána

Hvernig get ég orðið félagi ?

Annars vegar er hægt að senda skrifstofu SÍNE tölvupóst með helstu upplýsingum (nafn, kt., námsland, netfang, heimili úti, skóli, nám og gráða) og óska eftir aðild að félaginu. Hins vegar er hægt að gera ráð fyrir félagsaðild á lánasjóðsumsókn LÍN en þá þarf að senda skrifstofu SÍNE upplýsingar um net- og heimilisfang. Árlegt félagsgjald SÍNE er 2.500 krónur.


Net- og heimilisföng félagsmanna SÍNE
Mikilvægt er fyrir skrifstofu SÍNE að hafa réttar upplýsingar um heimils- og netföng félagsmanna, því sem hagsmunafélag námsmanna erlendis þurfum við að koma upplýsingum og brýnum málefnum fljótt og örugglega til félagsmanna okkar. Ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar á netfangið sine@sine.is

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf