Gagnlegar ábendingar varðandi flutning heim frá Bandaríkjunum
Jarðvegurinn undirbúinn á Íslandi
Íslenska leitarvélin http://www.leit.is/ er mjög gagnleg fyrir þá sem hafa verið lengi að heiman, einkum flokkarnir efst
á síðunni.
Atvinna
Gott er að hafa samband við atvinnumiðlanir með góðum fyrirvara og láta setja sig á skrá. Einnig eru vefsíður eins og http://www.job.is/, http://www.vinna.is/, http://www.starfatorg.is/ (starfasíða
ríkisstofnana) og http://www.studentamidlun.is/ (Atvinnustöð stúdenta, býður meðal annars
framtíðarstörf fyrir stúdenta). Fyrir þá sem hafa verið í fræðilegu námi er sjálfsagt að hafa samband við viðeigandi
deild í háskólunum til þess að kynna sig og rannsóknir sínar. Það er alltaf gott að láta vita af sér og dreifa resúminu
(heitir núna ferilsskrá á íslensku!)
Skólar
Best er að hafa samband tímanlega við Grunnskóla og Leikskóla Reykjavíkur (eða annarra byggðarlaga) og láta vita að börnin séu
að koma heim og hvenær, jafnvel þó ekki sé enn ljóst í hvaða hverfi verður flutt.
Húsnæði
Helstu fasteignavefirnir eru mbl.is og habil.is. Íbúðalánasjóður er á vefnum á ils.is, þar eru upplýsingar um húsbréf og
allt fasteignakaupaferlið.
Bíll
http://www.mobil.is/ er öflug bílaleitarvél og hefur auk þess lista yfir bílasölur og tengingar yfir á síður
þeirra. Þá hafa rekstrarleigur á bílum (leasing) færst í vöxt á Íslandi.
Ferðin og flutningurinn
Flug
Best er að kynna sér alla möguleika í flugi og til þess má nota vefinn http://www.studentuniverse.com/. Gott er
að hafa í huga að flug aðra leið til Íslands er ekki endilega hagkvæmasti kosturinn...
Gámur
Eimskip og Samskip sigla til og frá Norður-Ameríku. Bæði fyrirtækin gefa upplýsingar um tollskjalagerð og tilskilin eyðublöð á
vefsíðum sínum, eimskip.is og samskip.is. Einnig eru á vefsíðunum reiknivélar til þess að meta stærð búslóðar, auk
upplýsinga um tryggingar. Vefsíða Samskipa býður einnig upp á reiknivél til þess að meta verðmæti búslóðar og
tryggingakostnað. Á vefsíðu Tollstjórans í Reykjavík, http://www.tollur.is/, eru nánari upplýsingar
um tollfrjálsan innflutning á búslóð.
Bílflutningur
Þegar metið er hvort flutningur á bíl borgar sig er best að hafa samband beint við embætti Tollstjórans í Reykjavík og spyrja um
aðflutningsgjöld fyrir tiltekna bíltegund og árgerð.
Gengið frá í Bandaríkjunum
Að ganga frá heimilinu er tiltölulega auðvelt. Það þarf að segja upp með nokkurra vikna fyrirvara öllum áskriftum, gasi, rafmagni, síma og kapli og panta áframsendingu á pósti (hægt að gera á vefnum á http://www.usps.com/). Best er að semja við vini um að fá að áframsenda til þeirra svo að lokareikningar fyrir heimilisþjónustu lendi ekki á vergangi.
Þegar loka á amerískum kreditkortum er eitt sem þarf að varast. Það þarf að gæta þess að loka sérstaklega fyrir allar áskriftar- eða reglubundnar greiðslur sem kortið gæti hafa verið notað fyrir. Mörg dæmi eru um að þó að korti hafi verið lokað hefur kreditkortafyrirtækið haldið áfram að leyfa slíkar skuldfærslur eftir lokun kortsins, sem lenda síðan á korthafa.
Ef flytja á bíl til Íslands er auðveldast að afskrá hann í gegnum póstinn eftir að komið er til Íslands. Þá er hægt að flytja hann á amerísku númerunum og fá tímabundið aksturleyfi á Íslandi (1 mánuður) á meðan gengið er frá afskráningu í Bandaríkjunum og nýskráningu á Íslandi.






