Danmörk
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið er frá september til júní. Nemendur sem hyggja á nám í Danmörku þurfa að hafa samband við viðkomandi
námsstofnun eða „Studievejledning“ viðkomandi skóla. Umsóknarfrestur rennur út 15. mars ár hvert. Ef prófum er ekki lokið hér
heima fyrir þann tíma sendist prófskírteinið um leið og það liggur fyrir. Einstaka skóli tekur við nemum á vorönn eins og Danmarks
Tekniske Universitet (DTU). Skrifstofa rektors HÍ hefur milligöngu um umsóknir verkfræðinga sem fara í framhaldsnám við DTU. Umsóknarfrestur
fyrir vorönn er 1. september og fyrir haustönn 15. mars.
Danskir skólar á framhaldsstigi og háskólar hafa sameiginlegt umsóknareyðublað, svokallað „koordineret tilmelding“ (KOT). Hægt
er að sækja um allt að 8 skóla og forgangsraða þeim á meðfylgjandi blaði. Umsóknin ásamt fylgiritum sendist svo til skólans sem er
efstur á lista. Upplýsingastofa um nám erlendis er með umsóknareyðublöð fyrir danska skóla. Þann 28 júlí fá
umsækjendur að vita hvort þeir komast inn eða ekki.
Við sérskóla, listaskóla og einkaskóla gilda aðrar reglur. Skrifið til skólanna ári áður en nám á að
hefjast.
Skólakerfið, inntökuskilyrði og takmarkanir
Inntökuskilyrði til háskólanáms í Danmörku eru í flestum greinum stúdentspróf, fjöldatakmarkanir eru í sumum
námsgreinum.
Við inngöngu í listnám er í flestum tilvikum krafist inntökuprófa og þar eru fjöldatakmarkanir viðhafðar. Listnám í
Danmörku tekur 2 – 6 ár, allt eftir því hvað um er ræða. Þannig tekur t.d. 2 ár að ljúka námi í
„Grafonom“, 5 ár að ljúka hönnunarnámi og 5 ½ – 6 ár að ljúka „Cand. arch.“.
Allir norðurlandabúar utan Danmerkur sem sækja um skólavist í dönskum skólum lenda sjálfkrafa í kvóta 2. Í kvóta 2
eru Norðurlandabúar metnir á sama grundvelli og danskir ríkisborgarar.
Einkunnagjöf er 13 – 11 – 10 – 9 – 8 – 7 – 6 – 5 – 03 – 00. Hæsta einkunn er 13, til að standast próf þarf
einkunina 6 og 00 er lægsta einkunn.
Námsgráður í háskólum
Bachelor (BA, BS): Nemendur sem lokið hafa 3 ára námi innan hugvísinda, guðfræði eða á sviði félagsvísinda öðlast BA
gráðu. Nemendur sem lokið hafa 3 ára námi innan raunvísinda og heilbrigðisgreina öðlast BS gráðu. Inntökuskilyrði er
stúdentspróf eða annað sambærilegt próf. Í sumum tilfellum er krafist ákveðinnar námsgráðu.
Candidatus (cand. mag., cand. med. o.s.frv.): Námið tekur 2 – 3 ár eftir að lokið er bachelorgráðu. Í sumum greinum s.s. verkfræði og
læknisfræði tekur námið 5 – 6 ½ ár þar sem ekki er um að ræða bachelorgráðu. Inntökuskilyrði eru BA eða BS
próf í flestar greinar fyrir utan læknisfræði og verkfræði.
Ph.D. er rannsóknamiðuð æðri námsgráða sem veitt er í háskólum fyrir frumrannsóknir á framhaldsstigi
háskólanáms. Námið tekur a.m.k. 3 ár. Inntökuskilyrði er candidatusgráða eða sambærileg námsgráða.
Doctor- (dr. phil, dr. scient. o.s.frv.). Æðsta doktors-námsgráða í Danmörku. Hana er hægt að öðlast eftir margra ára
rannsóknavinnu.
Skólagjöld og styrkir
Skólagjöld eru engin í ríkisreknum skólum í Danmörku. Nokkrir styrkir standa íslenskum námsmönnum sérstaklega til
boða. Danska menntamálaráðuneytið hefur um árabil veitt fjórum Íslendingum styrk til háskólanáms. Dansk-íslenski
samvinnusjóðurinn og Dansk-íslenski sjóðurinn veita einnig styrki. Frá 1968 hafa verið veittir starfsmenntunarstyrkir til framhaldsnáms
iðnaðarmanna og starfsmanna í iðnaði. Menntamálaráðuneytið og Danska sendiráðið gefa upplýsingar um þessa styrki.
Upplýsingar um styrkina er að finna í bókinni „Handbók um styrki“, sem gefin er út af Alþjóðaskrifstofu
háskólastigsins.
Að skrá sig inn í landið
Þegar flutt er til Danmerkur flytja menn lögheimi sitt með sér. Hafa skal með sér samnorrænt flutningsvottorð sem fæst á Hagstofu
Íslands, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík. Skráning í Danmörku fer fram á „folkeregisteret“ (deilir stundum húsi með skattstofunni
í viðkomandi borg). Sex vikum eftir skráningu gerist maður sjálfkrafa meðlimur í sjúkrasamlaginu og getur valið sér heimilislækni. Til
að tryggja sig þessar fyrstu 6 vikur skal hafa með sér vottorð E–104 frá Tryggingastofnun ríkisins.
Tungumálið og námskeið
LÍN lánar ekki til náms í dönsku. Málið reynist mörgum erfitt í fyrstu svo mjög gott er að byrja á að fara á
dönskunámskeið. Hægt er að komast á slík námskeið með litlum fyrirvara.
Húsnæði
Á stúdentagörðum er tekið tillit til fjölskyldustærðar við meðhöndlun umsókna og hefur barnafólk forgang. Hefja má
húsnæðisleit um leið og sótt er um skóla. Á mörgum stöðum er þó ekki tekið við umsóknum of snemma.
Umsóknareyðublöð fást hjá Upplýsingastofu um nám erlendis. Erfiðast er að komast inn á stúdentagarða í
Kaupmannahöfn. Setja verður tryggingu (depositum) fyrir skemmdum á herbergjum og íbúðum og samsvarar hún oftast eins til tveggja mánaða leigu. Ekki
þarf að einskorða íbúðaleit við stúdentagarða. Leigufélög (boligforeninger) eru mörg og bjóða ágætar
íbúðir til leigu. Hjá þeim þarf þó að sækja um með minnst hálfs til eins og hálfs árs fyrirvara því
biðlistar eru langir og því heppilegra að byrja á stúdentagörðum og flytja sig síðar um set. Hinn almenni leigumarkaður er mjög
erfiður sérstaklega í Kaupmannahöfn. Leigjendur geta fengið leiguuppbót (boligsikring) sem getur numið háu hlutfalli af leigu allt eftir
félagslegum aðstæðum leigjenda.
Á skrifstofu SÍNE fást upplýsingar um stúdentafélög og leigufélög víðs vegar um Danmörku. Einnig er að finna
gagnlega tengla á heimasíðu SÍNE. Sjá nánar vefföng hér að neðan.
Félagslegar aðstæður
Sex vikum eftir skráningu í landið ganga menn sjálfkrafa inn heilbrigðiskerfi sem er mjög svipað því sem er á Íslandi, nema mun
ódýrara. Heilsugæsla er ókeypis og tannlæknaþjónusta er niðurgreidd að nokkru, mismunandi eftir því hvað gert er. Vegna
biðtímans er rétt að taka með sér vottorð E-104 frá Tryggingastofnun ríkisins.
Segja má að það sé gott fyrir barnafólk að stunda nám í Danmörku. Barnaheimilispláss fást en mjög erfitt er að
koma börnum undir 15 mánaða aldri inn. Allt tekur þó sinn tíma og ef barn hefur verið á dagvistarstofnun eða á biðlista á
Íslandi er vert að hafa með sér gögn um það. Fylgið umsóknum fast eftir. Kostnaður fer eftir tekjum. Námslán frá
Íslandi teljast ekki til tekna, þau eru lán. Niðurgreiðslur fara í gegnum „Social og Sundhedsforvaltningen“.
Börn á skólaaldri þarf að tilkynna til viðkomandi hverfisskóla og þá fá þau inngöngu. Í hverju hverfi eru
tómstundaheimili (fritidshjem) þar sem börn geta dvalið utan skólatíma við alls kyns tómstundir, gjald fer eftir tekjum foreldra.
Mikilvægt varðandi LÍN
Um áramót er mikilvægt að námsmaður sendi inn til LÍN upplýsingar um tekjur og skatta liðins árs í námslandinu, hafi hann
haft tekjur þar. Nóg er að senda inn afrit af síðasta launaseðli eða uppgjöri frá vinnuveitanda. Þetta er til að koma veg fyrir að
námsmaður lendi í því að þurfa að greiða til baka hluta af námsláni sínu vegna vanáætlaðra tekna. Þegar
uppgjörið frá skattayfirvöldum kemur að hausti þarf einnig að senda það inn til lánasjóðsins.
Margir Íslendingar eiga þess kost að fá námsaðstoð frá öðrum norrænum lánasjóði en þeim íslenska.
Mikilvægt er að brýna fyrir fólki að ekki má þiggja námsaðstoð frá tveimur lánasjóðum samtímis og skiptir
þá engu hvort um lán eða styrk er að ræða. Einnig er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að skipti þeir um
lánasjóð á námstímabilinu lenda þeir að öllum líkindum í því að borga af lánum beggja sjóðanna
samtímis.
Lánað er til framfærslu í 9 mánuði á ári, þ.e. meðan ætlað er að skólastarfið standi yfir. Oft er raunin hinsvegar
sú að skólinn starfar í fulla 10 mánuði ársins. Hægt er að sækja um lán fyrir tíunda mánuðinum geti
námsmaður sýnt fram á að námið sé lengra, enda leggi hann fram vottorð frá skóla um síðasta prófdag.
Frekari upplýsingar
Uddannelses og erhvervs valget, Rådet for uddannelses- og erhvervsvejledning, gefið út árlega.
Nám í Odense. Tekin saman af Árna Björnssyni formanni Íslendingafélagsins, 1994.
Nám í Kaupmannahöfn og nágrenni. Bæklingur ritstýrður af Eggert þorgrímssyni, 1991.
Nám í Álaborg tekin saman af Þorsteini Þorsteinssyni og Gesti Guðjónssyni 1996.
Þessar bækur er hægt að nálgast hjá Upplýsingastofu um nám erlendis.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Almennt
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Allt mögulegt í Danmörku:
http://www.danmark.dk
Danska menntamálaráðuneytið:
http://www.uvm.dk
Háskólar í Suður-Danmörku:
http://www.ou.dk/
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Álaborg
Háskólinn í Álaborg:
http://www.auc.dk
Stúdentagarðar í Álaborg:
Íslendingafélagið í Álaborg:
Árósar
Íslendingafélagið í Árósum:
Kaupmannahöfn
Háskólinn í Kaupmannahöfn:
http://www.ku.dk/
Tækniháskólinn í Danmörku:
http://www.dtu.dk/
Stúdentagarðar í Kaupmannahöfn:
Stúdentagarðar á Sjálandi:
Heimasíða félags ísl. stúdenta í Kaupmannahöfn:
Óðinsvé
Stúdentagarðar í Óðinsvéum:
http://www.riu-fyn.dk
Íslendingafélagið í Óðinsvéum:
http://www.islendingafelagidodense.dk/
Roskilde
Roskilde háskóli:
http://www.ruc.dk
Sønderborg
Húsnæði í kaupleigu í Sønderborg:
http://www.soebo.dk
http://www.b42.dk
Íslendingafélagið í Sønderborg.
Heimilisföng
• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Danska sendiráðið, Hverfisgötu 29, 101 Reykjavík. Sími: 575 0300, fax:575 0310. Netfang: rekamb@um.dk. Opið
9:00–15:00, virka daga.
Kaupmannahöfn
• Skráning í landið: Folkeregisteret, Dahlerupsgade 6, 1630 København V. Sími: 33663366.
• Dönskunámskeið: Studieskolen, Antonigade 6, 1106 København K. Sími: 33144022, fax: 33148145.
• Københavns intensive sprogskole, K.I.S.S. Danish language school, Nørregade 20, 1165 København K. Sími: 33114477
• Stúdentagarðar: Centralindstillingsudvalget, H.C. Andersen Blv. 13, 1553 København V. Sími: 33116444.
Húsnæði:
• Ungdomsinformationen, Rådhusstræde 13. 1466 København K. Sími: 31154799, 33155600.
Leigufélög:
• DAB Finsensvej 33, 2000 Frederiksberg. Sími: 38197766, fax: 38197383.
• Københavns kommunens Beboelsesejendomme, Fensmarksgade 27, 1660 København V. Sími: 35377856.
• Félag íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn: Hús Jóns Sigurðssonar, Østervoldgade 12. 1350 København K. Sími:
33146035.
• Sendiráðsprestur, séra Birgir Ásgeirsson í Sendiráði Íslands, þriðjudögum frá 14:00 – 16:00. Ef nauðsynlegt er
má hafa samband við hann í síma 20475606.
• Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Dantes Plads 3, 1556 København V. Símar: 33159604, 33159675, 33934904, fax 33930506. Netfang: icemb.coph@utn.stjr.is. Opið 9:00–16:00.
• Flugleiðir, Vester Farimagsgade 1, 2.h., 1606 København V. Sími: 312 3388, fax: 3393 8611. Netfang: dk@icelandair.is.
• Eimskip, DFDS Liner Agency, Skt. Annæ Plads 30. 1295 København K. Sími: 43203040, fax: 43203478.
• Samskip, Orient Plads, 2100 København. Sími: 39271213, fax: 39271210.
Óðinsvé
• Skráning í landið: Folkeregisteret Tolderlundsvej 2, 5000 Odence C. Sími: 66131372, fax 65196062.
• Dönskunámskeið: Folkeuniversitetet i Odense, Kongens gade 62. Sími 66132444, fax: 66149964.
• Stúdentagarðar: Regionalindstillingsudvalget for Fyns Amt (RIU–FYN) Niels Bohrs Allè 21, 5230, Odense M. Sími: 66134008, fax: 65906177.
Leigufélög:
• Fyns Almennyttige Boligselskab, Vestre Stationsvej 5, Postboks 1109, 5100 Odense C. Sími: 66126366, fax: 66129066.
• Andelsboligforeningen Højstrup, Thomas B. Thrigesgade 32, 5000 Odense C. Sími: 66118100, fax: 65914874.
• Odense Andelsboligforeningen, Thomas B. Thrigesgade 24. 5000 Odense C. Sími: 66122058, fax: 66148104.
• Samvirke Andelsboligforeningen, Middelfartvej 181, 5200 Odense Ø. Sími: 66169964.
• Íslendingafélagið í Odense, Postboks 1220, 5100 Odense C. Sími (peningasími): 66191734.
Árósar
• Íslendingafélagið Ísfan. Netfang: isfan@danbbs.dk.
• Skráning í landið: Folkeregisteret, Knudrigsgade 5. 8000 Århus C. Sími: 89402000.
• Dönskunámskeið: Folkeuniversetet, Immervad 7. 8000 Århus C. Sími: 86190566, fax: 86191568.
• Stúdentagarðar: Kollegiekontoret, Vesterport 11, 8000 Århus C. Sími: 86132166, fax: 86132180.
• Leigufélög: Andelsboligforeningen, Ringgården Dybedalen 1, 8210 Århus V. Sími: 86162111, fax: 86103341.
• Eimskip DFDS Liner Agency, P.O. Box 92, Shippinghuset Hveensgade, 8100 Århus C. Sími: 89347474, fax: 89347475.
• Samskip, Nordhavnsgade 14, P.O.Box 73, 8100 Århus C. Sími: 86 128155, fax: 86128166.
Álaborg
• Skráning í landið: Folkeregisteret Rantzausgade 4. 9000 Ålborg. Sími: 99313131.
• Dönskunámskeið: Studievejledningen, Langagervej 2, P.O.Box 159, 9220 Ålborg. Sími: 96359400.
• Stúdentagarðar: IFAK, Badehusvej 23, 9000 Ålborg. Sími: 98134430.
Aðrir stúdentagarðar
• Polyteknisk forening indstillingsudvalget, Anker Engelundsvej 1, 2800 Lyngby. Sími: 45881104.
• Esbjerg Kollegie-forening Ungdomsbo, Nygårdsvej 37, 6700 Esbjerg. Sími: 75131466.
• Handelshøjskole Syd, Engstien 1, 6000 Kolding. Sími: 79321111.
• Kollegiernes kontor, Skovvej 20 ,6400 Sønderborg. Sími: 74424849.
• Bolig- og indstillingsudvalget, Kagså kollegiet 2, 2730 Herlev. Sími: 44919032.







