Samband íslenskra námsmanna erlendis

Holland Umsóknarfrestur og umsóknarmáti  Skólaárið er frá byrjun september til júní/júlí. Umsóknareyðublöð fást hjá viðkomandi skóla og er umsóknarfrestur

Handbók-Holland

Holland

Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
 Skólaárið er frá byrjun september til júní/júlí. Umsóknareyðublöð fást hjá viðkomandi skóla og er umsóknarfrestur í flestum tilfellum til 1. desember, undantekningar frá þessu eru helst listaskólarnir. Umsækjendur um listnám þurfa að senda inn verk eftir sig eða mæta á staðinn og þreyta inntökupróf.

Inntökuskilyrði og takmarkanir
 Stúdentspróf þarf til að hefja háskólanám. Í bóklegt háskólanám er gerð krafa um kunnáttu í hollensku og haldin eru inntökupróf í henni. Íslendingar hafa átt greiðan aðgang að listaskólum í Hollandi. Þar er stúdendspróf æskilegt en ekki alltaf nauðsynlegt. Háskólar eru í vaxandi mæli farnir að bjóða upp á kennslu á ensku.

Skólagjöld og styrkir
 Skólagjöld eru væg í Hollandi. Hollensk stjórnvöld bjóða reglulega fram styrk handa Íslendingi til háskólanáms í Hollandi, menntamálaráðuneytið veitir nánari upplýsingar. Gegn vissum skilyrðum er hægt að sækja um endurgreiðslu skólagjalda og fást nánari upplýsingar um það hjá trúnaðarmönnum skólanna.

Að skrá sig í landið
 Til að fá dvalarleyfi í Hollandi þurfa námsmenn að sýna eftirfarandi gögn:
1) Vegabréf.
2) Fjárhagsvottorð (t.d. frá LÍN).
3) Vottorð um skólavist.
4) Vottorð frá Tryggingastofnun ríkisins um að viðkomandi sé tryggður.
5) Bráðabirgðaheimilisfang í Hollandi.
6) Giftingavottorð ef maki er með í ferðum (eða vottorð um sambúð).
7) Fæðingarvottorð.
8) Tvær litmyndir fyrir dvalarleyfi (af sérstakri stærð og teknar í Hollandi).

 Vottorðin þurfa að vera stimpluð fyrst af utanríkisráðuneytinu hér heima og svo af ræðismanni Hollands í Reykjavík. Öll gögn þurfa að vera á hollensku eða ensku og hafa þarf þau til reiðu þegar komið er inn í landið. Við komu til landsins verður að skrá sig í ráðhúsi þess bæjar sem dvalið er í á deild sem kölluð er "befolking" og staðfesta svo dvalarleyfið á næstu lögreglustöð innan sjö daga. Leyfið gildir í eitt ár í senn.

Tungumálið og námskeið
 Tungumálið er hollenska og verða umsækjendur að gangast undir inntökupróf í henni áður en almennt nám hefst. Háskólarnir bjóða upp á sérstök námskeið fyrir útlendinga. Listaskólarnir gera oft á tíðum ekki eins strangar kröfur.

Húsnæði
 Erfitt er að fá húsnæði í Hollandi, sérstaklega í Amsterdam. Stúdentagarðar eru fáir, en skrifið þó til skrifstofu erlendra námsmanna í viðkomandi skóla til að athuga þann möguleika. Hugsanlegt er að þær geti útvegað bráðabirgðahúsnæði. Upplýsingar um húsnæðismiðlanir fást hjá Upplýsingastofu um nám erlendis.

Félagslegar aðstæður 
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt, heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta og heitir það E-128. Farið með vottorðið á „ANOZ Verzekeringen“ sem er almenni sjúkratryggingasjóðurinn í Hollandi. Sjúkratryggingar keyptar af hollenskum tryggingarfélögum eru dýrar og því ráðlegt að athuga hvort íslenska sjúkrasamlagið veiti ekki nægjanlegt öryggi. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
 Það eru engin eiginleg barnaheimili í Hollandi en börn hefja skólagöngu 4 ára gömul. Eftir að barnið er orðið 3ja ára er venjulega hægt að fá pláss fyrir það í sk. leikhópum 2 morgna í viku, en foreldrar þurfa að borga fyrir þessa þjónustu og biðlistar eru algengir. Erfitt er um vik með barnagæslu fyrir yngstu börnin.
 Upplýsingar um húsaleigubætur fást hjá trúnaðarmönnum skólanna eða leigumiðlunum.
 
Mikilvægt varðandi LÍN
Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í allt að tvö misseri (þrjá fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er bundið því skilyrði að áframhaldandi nám verði stundað í Hollandi. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins. Athugið einnig að gefið er út sér skuldabréf fyrir þetta lán. Því þarf að ganga frá nýju skuldabréfi fyrir lán sem veitt er fyrir áframhaldandi nám.

Frekari upplýsingar

The education system of the Netherlands, Nuffic, 1996.

Nuffic (Netherlands organization for international cooperation in higher education), P.O.Box 29777, 2502 LT The Hague.

Upplýsingastofa um nám erlendis.

Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á. 

Vefföng

Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um nám í Hollandi:
http://www.nuffic.nl
Upplýsingar um háskóla í Hollandi:
 http://worldwide.edu/ci/netherlands/fnetherlands.html
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu

Heimilisföng

• SÍNE, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Aðalræðismaður Hollands, Ólafur Ragnarsson (c/o Vaka Helgafell), Síðumúli 6, 108 Reykjavík. Sími: 550 3165, fax: 550 3033. Netfang: margret@vaka.is.
• Sendiráð Hollands í London: Royal Nederlands Embassy, 38 Hyde Park Gate, London SW7 5DP, UK. Sími: (171) 590 3200, fax: (171) 225 0947. Netfang: nlgovl@globalnet.co.uk.
• Aðalræðismaður Íslands í Amsterdam, Robert Eduard van Erven Dorens, Reved International B.V., Herengracht 471, 1017 BS Amsterdam. Sími: (20) 624 8958, fax: (20) 626 2658.
• Ræðismaður Íslands í Rotterdam: Ronald Pfeiffer, Weena 750,  3014 DA Rotterdam. Sími: (10) 224 0710, fax: (10) 224 0057. Netfang: stravei@naultadutilh.nl.
• Flugleiðir: Muntplein 2, 1012 WR Amsterdam. Sími: (20) 627 0136, fax: (20)623 8010. Netfang: amsterd@icelandair.is.
• Eimskip Rotterdam, Achterdijk 51, P.O. Box 858, 3161 EB Rhoon. Sími: (10) 503 4300 , fax: (10) 501 0186. Netfang: hho@eimskip.nl.
• Samskip BV, Den Hamweg 30, 3089 KK Rotterdam, P.O.Box 464, 3190 AK Rotterdam. Sími: (10) 428 5050, fax: (10) 428 5090.

 

 

 

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf