Samband íslenskra námsmanna erlendis

Mið- og Suður-Ameríka Umsóknarfrestur og umsóknarmáti  Í Mexíkó er skólaárið frá ágúst til júní og í Brasilíu frá mars til desember. Í flestum löndunum

SÍNE 50 ára

Handbók-mið og suður ameríka

Mið- og Suður-Ameríka

Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
 Í Mexíkó er skólaárið frá ágúst til júní og í Brasilíu frá mars til desember. Í flestum löndunum skiptist skólaárið í tvö eða þrjú misseri. Misjafnt er hvenær skólaárið hefst og oft er hægt að byrja á hvaða misseri sem er. Öruggast er að skrifa skólum beint og biðja um umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar ári áður en nám á að hefjast. Best er að senda fyrirspurnir á spænsku eða portúgölsku eftir því sem við á og námsvottorð þurfa einnig að vera þýdd á viðeigandi tungumál. Til að auðvelda póstsamskipti má senda með alþjóðleg svarmerki sem fást hjá Íslandspósti, eða nota símbréf þar sem því verður við komið. Athugið þó að oft eru þær upplýsingar sem berast nokkuð gloppóttar og því er best að ræða vel við aðila hér heima sem þekkja til aðstæðna í þessum löndum, sjá nánar lista hér að neðan. Jafnvel getur verið nauðsynlegt að fara utan í eigin persónu til að afla sér upplýsinga og kanna aðstæður.

Inntökuskilyrði og takmarkanir
 Stúdentsprófs er krafist til háskólanáms. Þó er fyrirkomulag menntaskólanáms hérlendis með öðrum hætti en þar og því getur reynst erfitt að komast í grunnháskólanám. Þannig getur verið auðveldara um vik ef námsmaður hefur hafið háskólanám hérlendis. Það gildir þó ekki eftir einungis eins misseris nám. Einnig er hugsanlegt að krafist sé inntökuprófs áður en innritun getur farið fram. Öllu einfaldara er að komast í framhaldsháskólanám.
  Háskólanám í löndum Mið- og Suður-Ameríku er skipulagt á svipaðan hátt og háskólanám á Spáni. Um er að ræða 3–7 ára nám (licenciatura). Rétt er að athuga hvort nám hér að heiman fáist metið inn í viðkomandi háskóla. Ríkisháskólarnir eru mjög stórir og fjölmennir og er oft erfitt að komast þar inn. Einnig eru starfræktir í hverju landi landi fjöldi einka og kirkjurekinna háskóla og sérskóla á háskólastigi. Þeir eru að sjálfsögðu misjafnir að gæðum og því nauðsynlegt að vanda valið vel. Best er að leita upplýsinga með því að skrifa skólum beint, en uppflettirit með heimilisföngum er að finna hjá Upplýsingastofu um nám erlendis. Þá geta ræðismenn viðkomandi landa á Íslandi og/eða sendiráð oft gefið almennar upplýsingar og heimilisföng hjá hinum ýmsu skólum. Einnig er tilvalið að hafa samband við þá Íslendinga sem lagt hafa stund á nám í löndum Mið- og Suður-Ameríku, eða hafa samband við skrifstofu skiptinemasamtakanna AUS og AFS þar sem margir hafa dvalið í umræddum löndum á þeirra vegum.
 Í flestum tilfellum er um að ræða nám í tungumálum, menningarsögu og listum.

Að skrá sig í landið
 Staðfesting á skólavist er forsenda þess að sérstakt dvalarleyfi fáist. Þegar slík staðfesting liggur fyrir eru nauðsynleg gögn send til næsta sendiráðs viðkomandi lands með milligöngu ræðismanns á Íslandi. Ef staðfesting berst of seint má yfirleitt ferðast til landsins á ferðamannaáritun sem gildir í flestum tilfellum í einn til þrjá mánuði. Síðan verður að sækja um námsleyfi hjá innflytjendayfirvöldum. Rétt er að hafa með sér fæðingar- og sakavottorð þýtt á spænsku. Alþjóðlegt fæðingarvottorð fæst hjá Hagstofu Íslands. Athugið tímanlega með bólusetningar hjá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Barónstíg 47, Reykjavík, sími 552 2400. Athugið einnig með sjúkratryggingar því að sérhæfð læknisþjónusta getur verið dýr. Best er að hafa samband við Tryggingastofnun ríkisins til að fá leiðbeiningar í þeim efnum.

Skólagjöld og styrkir
 Skólagjöld í ríkisháskólum eru óveruleg, en einkaskólarnir, t.d. margir listaskólar, taka skólagjöld og í ýmsu sérhæfðu námi eru þau mjög há. Best er að biðja um nákvæmar upplýsingar.

Tungumálið og námskeið
 Spænska er ríkismál allra landanna, nema Brasilíu þar sem töluð er portúgalska. Öll kennsla fer fram á ríkismálinu. Í öllum stærri borgum er fjöldi málaskóla starfandi þar sem undirbúningsnám á öllum stigum getur farið fram. Einnig bjóða margir háskólar almennt undirbúningsnám í eitt ár fyrir háskólanám. Best er þá að hafa einhvern grunn hér að heiman, t.d. úr menntaskóla, spænskudeild HÍ eða frá almennum spænskunámsskeiðum.

Húsnæðismál
 Stúdentagarðar eru ekki algengt fyrirkomulag í löndum Mið- og Suður-Ameríku en oftar er um að ræða lítil gistiheimili eða leiguíbúðir á háskólasvæðinu, sem eru rekin fyrir námsfólk sérstaklega, t.d. utan af landi eða fyrir erlenda námsmenn. Einnig er um gistingu á einkaheimilum að ræða. Upplýsingaskrifstofur nemendafélaga skólanna ættu að geta veitt upplýsingar og bent á hvar sé best að finna húsnæði.

Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
 Ríkisrekin læknisþjónusta er alls staðar í boði og er ódýr. Í þeim tilfellum verður námsmaðurinn annað hvort að bíða í biðröð í nokkra klukkutíma til að komast að, eða panta tíma nokkuð fram í tímann. Einkarekin læknisþjónusta er einnig í boði, en hún er þá mun dýrari. Ráðlegt er að kaupa sjúkratryggingu og athuga vel hvað hún felur í sér. Þeir sem eru á styrk frá mexíkóska ríkinu fá ókeypis sjúkratryggingu í ríkisreknu háskólunum. Aðrir verða að tryggja sig sjálfir og oft getur verið erfitt að verða sér út um slysa- og sjúkratryggingu á skikkanlegu verði sem nær yfir allan námstímann.
  Í Mexíkó er í boði ódýr dagvist fyrir börn námsmanna.

Mikilvægt varðandi LÍN
Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í eitt misseri (tvo fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er bundið því skilyrði að áframhaldandi nám verði stundað í sama landi. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins. Athugið einnig að gefið er út sér skuldabréf fyrir þetta lán. Því þarf að ganga frá nýju skuldabréfi fyrir lán sem veitt er fyrir áframhaldandi nám.

Frekari upplýsingar

Upplýsingastofa um nám erlendis hefur almenn yfirlitsrit yfir nám í þessu löndum.

Á ræðismannsskrifsstofu Mexíkó í Reykjavík er hægt að fá upplýsingar um háskóla í Mexíkó og nánari upplýsingar um dvalarleyfi.

Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.

Vefföng

Heimasíða SÍNE:
 http://www.sine.is
Upplýsingar um nám í Argentínu, Chile og Mexíkó:
http://www.hsv.se/studieinfo/studier_utomlands/studera_i/latin.html
Upplýsingar um nám í Mið- og Suður-Ameríku:
http://a2z.lycos.com/Education/College_Home_Pages/Latin_America_slash_South_America
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu

Heimilsföng

• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Háskólatorgi, Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Ræðismaður Chile, Brynjólfur Bjarnason, Grandi hf, Norðurgarður, 101 Reykjavík. Sími: 550 1000, fax: 552 9028.
• Ræðismaður Mexico, Andri Már Ingólfsson, Austurstræti 17 2.h, 101 Reykjavík. Sími: 562 4600, fax: 562 4601. Netfang: andri@heimsferdir.is.
• Ræðismaður Perú, Páll Gíslason, Icecon, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík. Sími: 560 7857, fax: 562 1024.
• Ræðismaður Venezuela, Guðmundur Einarsson, Verkfræðistofan Gimli, Gimli v/Álftanesveg, 210 Garðabæ. Sími og fax: 565 3520.
• Aðalræðismaður Íslands í Mexico, Mr. Eduardo Rihan, Calle Sara No. 4433, Col.Gep.Tepeyac, Deleg. Gustavo A. Madero, 07840 Mexico, D.F. Sími: (5) 537 7500, (5) 537 1915, fax: (5) 537 4907.
• Sendiráð Argentínu, Brasilíu og Mexico eru staðsett í Ósló.
• Sendiráð Kólombíu, Kúbu og Nicaragua eru staðsett í Stokkhólmi.
• Sendiráð Urugay er staðsett í Ottawa, Ontario, Canada.
• Sendiráð Íslands í Washington annast sendiráðsstörf fyrir öll lönd Mið og Suður Ameríku.
Heimilisföng sendiráðanna er hægt að nálgast hjá Utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík. Sími: 560 9900, fax: 562 2386. Netfang: postur@utn.stjr.is.

 


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf