Ástralía
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið í háskólum er yfirleitt frá mið/lok febrúar til lok nóvember. Sótt er um til skólanna sjálfra og
fást umsóknareyðublöð hjá viðkomandi skólum. Best er að sækja um með góðum fyrirvara.
Skólakerfið, inntökuskilyrði og takmarkanir
Skólakerfið í Ástralíu er um margt ólíkt því íslenska. Nemendur hefja háskólanám u.þ.b. 18 ára
gamlir og því er oft hægt að fá hluta af menntaskólanáminu (1 – 2 ár) metið þegar sótt er um
háskólanám.
Stúdentspróf þarf til að stunda háskólanám en einnig eru gerðar kröfur um góða enskukunnáttu. Nemendur þurfa jafnframt
að sýna fram á að þeir geti staðið straum af kostnaði vegna námsins.
Skólagjöld og styrkir
Skólagjalda er krafist í háskólum í Ástralíu. Fáir styrkir eru í boði fyrir erlenda námsmenn. Mjög mikilvægt er
að hafa meðmælanda frá Íslandi sem getur stutt umsókn námsmanns um styrki. Upplýsingar um námsárangur (einkunnir sem og
upplýsingar um árangur námsmannsins miðað við aðra sem tóku próf á sama tíma) og íslenska menntakerfið eru
nauðsynlegar. Best er að sækja um alla styrki sem hægt er á eyðublaðinu frá viðkomandi skóla. Vanalega er gerður munur á styrkjum til
uppihalds og til skólagjalda en oftast dugir uppihaldsstyrkurinn fyrir meiru en bara uppihaldi.
Athugið að sumir skólar fara fram á að erlendir námsmenn sæki um styrki fyrir lok september.
Að skrá sig í landið
Til að fá dvalarleyfi (visa fyrir námsmenn) þarf heilbrigðisvottorð, vottorð um skólavist og fjárhagsvottorð (fæst t.d.hjá
LÍN). Einnig þarf að greiða sérstaka sjúkratryggingu, Overseas Student Health Cover (OSHC). Leitið nánari upplýsinga um þessa tryggingu
hjá skólunum.
Hafið samband við Ástralska sendiráðið í Bonn þegar sótt skal um vegabréfsáritun. Afgreiðsla hennar getur verið
tímafrek, 3 til 5 vikur eða allt eftir því hve mikið er að gera í sendiráðinu.
Þegar lagt er af stað til Ástralíu ber að hafa í huga að Ástralir eru einstaklega varir um sig gagnvart innflutningi á erlendri matvöru og
sérhverju því sem gert er úr viði vegna sjúkdómshættu fyrir dýra- og plöntulíf í landinu. Nánari upplýsingar
varðandi þetta atriði ætti að vera hægt að fá hjá Ástralska sendiráðinu í Bonn.
Tungumálið
Góða enskukunnáttu þarf til að stunda nám í Ástralíu og má búast við að skólarnir krefjist TOEFL eða
sambærilegs prófs.
Húsnæðismál
Stúdentagarðar eru við flesta háskóla og húsnæðismiðlun vikomandi skóla aðstoðar yfirleitt nemendur við
húsnæðisleit. Gott er að senda fyrirspurn um húsnæðismál um leið og beðið er um umsóknareyðublað fyrir skóla.
Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt, heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara
með námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð um þetta hjá Tryggingastofnun. Hins vegar er þetta oft á tíðum
ekki nægjanlegt og er svo í Ástralíu.
Læknisþjónusta er dýr og því eru sjúkratryggingar nauðsynlegar. Erlendum námsmönnum er skylt að kaupa Overseas Student Health Cover
(OSHC) fyrir sig og fjölskyldur sínar. Iðgjöldin eru mishá eftir því hve dvölin í landinu er löng.
Tannlæknaþjónusta er ekki innifalin en stundum er hún niðurgreidd af stúdentafélögum. Sjá nánar kaflann um tryggingamál
námsmanna erlendis.
Þegar erlendir námsmenn fá vegabréfsáritun fá þeir venjulega leyfi (8105 IS) til að vinna hlutastörf, allt að 20 tíma vinnu
á viku með náminu á skólaárinu. Ef vinnustundir verða fleiri en 20 á viku má búast við hörðum viðurlögum
(brottvísun úr landi). Í fríum mega námsmenn þó vinna fulla vinnuviku. Erfitt er að fá vinnu í Ástralíu og
því ekki ráðlagt að reikna með föstum tekjum. Athugið að ekki hefur verið gerður sk. tvísköttunarsamningur milli Íslands og
Ástralíu, sjá nánar kafla um skattamál námsmanna erlendis.
Börn byrja 5 ára í skóla og gera má ráð fyrir að námsmenn þurfi að greiða skólagjöld fyrir börn
sín.
Mikilvægt varðandi LÍN
Ástæða er til að hvetja fólk til að fara í viðtöl til ráðgjafa lánasjóðsins áður en farið er til
Ástralíu í nám. Þannig fást mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að hafa með sér í farteskinu þegar
haldið er út.
Grunnháskólanám (undergraduate studies):
Ástæða er til að benda fólki á að skólagjöld eru veruleg í Ástralíu og geta reynst mikill fjárhagslegur baggi á
þeim sem þau þurfa að borga.
Framhaldsháskólanám:
Hægt er að sækja um lán í eina önn aukalega vegna viðamikils lokaverkefnis. Verði röskun á námsáætluninni þarf að
skila inn breyttri áætlun til lánasjóðsins.
Frekari upplýsingar
Ástralska sendiráðið í Þýskalandi (Bonn).
Upplýsingastofa um nám erlendis.
International student office í viðkomandi skóla.
Good universities guide to Australian universities: international guide, Mandrian
Directory of postgraduate study, Australian Vice-chancellari committee.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um nám:
http://www.magabook.com.au
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Háskólatorgi, Reykjavík. Sími: 525 4311, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Sendiráð Ástralíu í Bonn: Australian embassy, Godesberger Allee 105-107, 53175 Bonn, Þýskaland. Sími: 228 81030, fax: 228
376268.
• Sendiráð Ástralíu í Stokkhólmi: Australian embassy, Sergels Torg 12, Box 7003, 103 86 Stockholm. Sími: (8) 613 2900, fax: (8) 24 74
14.
• Aðalræðismaður Íslands í Canberra, Ross L. Gibson, Kingston Tower, 9 Jardine Street, Kingston, 2604, Canberra, A.C.T. Póstfang: P.O.Box 4677, Kingston
A.C.T. 2604. Sími: (2) 6295 7104, fax: (2) 6295 6819.
• Aðalræðismaður Íslands í Melbourne, R. Renshaw Jones, 44 St. George’s Road, Toorak, 3142, Victoria. Sími: (3) 9827 7819, fax: (3) 9827 3284.
• Ræðismaður Íslands í Melbourne, Inga Árnadóttir, 48 Kooyongkoot Road, Hawthorne, Victoria 3122, Melbourne. Sími: (3) 9818 4282, fax: (3) 9818
4660. Netfang: ingarna@access.com.au.
• Aðalræðismaður Íslands í Sydney, Sigrún K. Baldvinsdóttir, 18/1 Benelong Crescent, Bellevue Hill, Sydney, New South Wales 2023. Sími: (2)
9365 7345, fax: (2) 9365 7328. Netfang: iceland@magna.com.au.







