Austurríki
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið er frá október til júní. Beiðni um umsóknareyðublöð má senda beint til skólanna sjálfra
eða til „Österreichischer Akademischer Austauschdienst“ (ÖAD), skrifstofu sem sér um þjónustu við erlenda námsmenn. Útfyllt
umsóknareyðublað ásamt tilheyrandi gögnum þýddum á þýsku skulu berast til háskóla (að undanteknum
listaháskólum) fyrir 1. júlí ef nám á að hefjast á haustmisseri. Mikilvægt er að ræðismaður Austurríkis á
Íslandi stimpli öll þessi gögn áður en haldið er út.
Hafið samband við listaháskólana til að fá upplýsingar um það hvenær umsóknir þurfa að berast.
Inntökuskilyrði og takmarkanir
Stúdentspróf er skilyrði fyrir inntöku í háskóla. Innganga er einnig háð því að umsækjandi nái
þýskuprófi sem haldið er í upphafi misseris. Um listaskólana gilda aðrar reglur. Þar er útvöldum umsækjendum gert að mæta
í inntökupróf. Inntökupróf í tónlistarháskóla fara fram í lok júní.
Skólagjöld og styrkir
Engir sérstakir styrkir eru í boði fyrir Íslendinga, en skólagjöld eru lág.
Skráning í landið
Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun eftir að samningurinn um EES tók gildi. Innan þriggja daga frá komu til landsins verður að
skrá sig hjá lögreglu og gefa upp heimilisfang. Tilkynna verður lögreglu öll aðseturskipti.
Tungumálið og námskeið
Í upphafi náms verða háskólastúdentar að standast þýskupróf. Í flestum borgum er auðvelt að komast á
þýskunámskeið. ÖAD heldur þýskunámskeið fyrir þá sem hafa fengið inngöngu en treysta sér ekki til að hefja
venjulegt háskólanám strax. Umsóknarfrestur fyrir þau námskeið er til 1. sept. og með umsókninni verður að fylgja staðfesting um
skólavist frá viðkomandi háskóla.
Húsnæðismál
Það má reyna að sækja um vist á stúdentagörðum hjá ÖAD áður en haldið er utan. Þó er auðvelt að
útvega sér húsnæði eftir að komið er til landsins.
Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt, heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara
með námsmanninum til námslandsins. Til að tryggja sér rétt til aðstoðar ef þörf krefur hjá heilbrigðiskerfi hins opinbera
í EES landi þarf að framvísa Evrópska sjúkratryggingakortinu . Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
Hægt er að ganga í sjúkrasamlag gegn vægu mánaðargjaldi. Farið á næsta „Gebietskrankenkasse“ með skráningarvottorð
og sækið um aðild. Til að viðhalda tryggingunni verður að skila skólaskráningarvottorði á skrifstofuna í lok hvers árs.
Athugið þó hvort íslenska tryggingin nægi.
Erfitt mun vera að fá dagvistun fyrir yngstu börnin.
Mikilvægt varðandi LÍN
Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í eitt misseri (tvo fjórðunga þar sem það á við) en athugið að
lánið er skilyrðisbundið því að áframhaldandi nám verði stundað í Austurríki. Skilyrði fyrir útborgun
lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins.
Frekari heimildir
Universitäten, Hochschulen : Studium & Beruf, Bundesministerium für Wissenschaft, Forschung und Kunst í Vín, gefin út árlega.
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um nám:
http://www.oead.ac.at
http://www.bmwf.gv.at
http://www.yahoo.com/regional/countries/austria/education
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, Heimasíða: www.sine.is
Netfang: sine@sine.is.
• Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Aðalræðismaður Austurríkis, Árni Siemsen Þverholti 14, 105 Reykjavík. Sími: 540 8660, fax: 568 0304. Netfang: arnisi@groco.is.
• Austurríska sendiráðið í Kaupmannahöfn, Sølundsvej 1, 2100 København Ø. Sími: 3929 4141, fax: 3929 2086. Netfang: kopenhagen-ob@bmaa.gv.at.
• Österreichischer Akademischer Austauschdienst, Universität Wien, Alser Strasse A-1090 Wien. Sími: (1) 427 72 81 01.
• Aðalræðismaður Íslands í Austurríki, Dr. Cornelia Schubrig, Naglergasse 215, 1010 Wien I. Sími: (1) 533 2489, fax: (2732) 823 8135. Netfang:
info@schubrig.co.at.







