Belgía
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið er frá september/október til júní/júlí. Umsóknarfrestur er mismunandi eftir skólum, en yfirleitt þurfa
umsóknir að hafa borist fyrir 1. maí. Best að hefja fyrirspurnir um nám ári áður en það á að hefjast. Skrifa skal beint til
viðkomandi skóla og biðja um upplýsingar og umsóknareyðublöð.
Inntökuskilyrði og takmarkanir
Skilyrði til háskólanáms er stúdentspróf. Auk þess er á sumum námsbrautum krafist inngönguprófs í frönsku eða
hollensku. Sérstakt inntökupróf er í verkfræði sem bæði erlendir og belgískir námsmenn þurfa að taka. Fjöldatakmarkanir eru
viðhafðar í sumum greinum, t.d. læknisfræði.
Skólagjöld og styrkir
Greiða þarf skólagjöld í skólum í Belgíu og fer upphæð þeirra eftir því frá hvaða landi
námsmaðurinn kemur, fjölskylduhögum hans o.f.l. Námsmenn frá löndum utan Efnahagsbandalagsins greiða hærri skólagjöld.
Skólagjöld í ríkisstyrktum skólum eru þó yfirleitt ekki há.
Að skrá sig í landið
Til að fá dvalarleyfi í Belgíu þarf að að hafa eftirfarandi gögn : 1) Vegabréf eða önnur persónuskilríki. 2) Vottorð um
skólavist. 3) Fjárhagsvottorð (t.d. frá LÍN). 4) Vottorð frá íslensku sjúkrasamlagi um að viðkomandi sé tryggður. 5) 3-5
vegabréfsmyndir. Námsmenn þurfa að tilkynna sig hjá lögreglu í viðkomandi sveitafélagi innan 8 daga frá komunni til landsins.
Tungumálið
Í Belgíu eru töluð þrjú tungumál, franska, flæmska, sem líkist hollensku, og þýska. Í háskólum er
ýmist kennt á frönsku eða hollensku, eftir því hvar skólarnir eru staðsettir. Í flestum tilfellum er krafist tungumálakunnáttu til
að komast inn í háskóla og bjóða þeir upp á tungumálanámskeið. Oft er hægt að semja við skólana um að skila
doktorsverkefni á ensku og eins bjóða hollenskumælandi skólarnir oft upp á nokkrar námsbrautir á masterstigi á ensku.
Húsnæði
Í Brussel er húsnæði dýrt en mun ódýrara í hinum háskólabæjunum. Þó er húsnæði misdýrt
eftir hverfum og oft er hægt að fá ódýrt húsnæði í innflytjendahverfunum en þau geta verið vafasöm að búa í.
Við flesta háskóla eru stúdentagarðar en erfitt er að komast inn á þá, skólarnir reka einnig húsnæðismiðlanir. Almennt
er erfitt að fá húsnæði, sérstaklega fyrir fjölskyldur og eru námsmenn hvattir til að finna sér húsnæði áður en
skóli hefst. Það má byrja að athuga allt að ári áður.
Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með
námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta og heitir það E-128. Vottorðinu skal
framvísa hjá „Mutualité“ sem er staðarsjúkratryggingasjóður viðkomandi staðar. Sjá nánar kaflann um tryggingamál
námsmanna erlendis.
Námsmönnum er skylt að tryggja sig en athuga þarf hvort íslenska sjúkrasamlagstryggingin veiti ekki nægilegt öryggi.
Mikilvægt varðandi LÍN
Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í eitt misseri (tvo fjórðunga þar sem það á við) en athugið að
lánið er bundið því skilyrði að áframhaldandi nám verði stundað í Belgíu. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er
að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins.
Frekari upplýsingar
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um háskóla:
http://www.mit.edu:8001/people/cdemello/be.html
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315. Netfang: sine@sine.is.
• Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is
• Belgíska ræðismannsskrifstofan, Páll Sigurjónsson, Skúlatúni 4, 105 Reykjavík. Sími: 530 2700, fax: 530 2724. Netfang: palls@istak.is.
• Sendiráð Belgíu fyrir Norðurlöndin, Drammensveien 103 C, 0244 Oslo. Sími: 2255 2215 / 2255 2216 / 2255 2218, fax: 2244:3808.
• Sendiráð Íslands í Brussel, Rond Point Schuman 11, 1040 Bruxelles. Sími: (2) 238 5000, fax: (2) 230 6938. Opið 9:00-17:00. Netfang: emb.brussels@mfa.is
• Eimskip: Grisar & Velge, NV, Keizerstraat 13, B-2000 Antwerpen. Sími: (3) 205 0411, fax: (3) 205 0526.
• Samskip: Belgo –Ruys N.V., Div Samskip, Haven 200 Schouwkensstraat 9, B-2030 Antwerpen. Sími: (3) 545 9191, fax: (3) 540 6150.
• Flugleiðir í Brussel: Belgian Travel House, 526 Avenue Louise, B-1050 Bruxelles. Sími: (2) 648 4100, fax: (2) 640 8205. Netföng: bertino@icelandair.is, icelandair@bth.be.