Samband íslenskra námsmanna erlendis

Bretland Texti að mestu leyti frá árinu 1999 og ber að taka með fyrirvara Umsóknarfrestur og umsóknarmáti  Skólaárið er frá september/október til

Handbók - Bretland

Bretland
Texti að mestu leyti frá árinu 1999 og ber að taka með fyrirvara


Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
 Skólaárið er frá september/október til júní/júlí. Hefja skal undirbúning ekki seinna en í ágúst ári áður en nám á að hefjast. Skrifið til þeirra skóla sem þið hafið áhuga á og biðjið um upplýsingar og umsóknareyðublöð. Umsókn um byrjunarnám í breska háskóla er send til UCAS (The Universities and Colleges Admissions Service), fyrir 15. desember. Hægt er að sækja um fleiri en einn skóla og raða þeim í forgangsröð. Umsóknir um nám í Oxford og Cambridge þurfa að berast UCAS-skrifstofunni fyrir 15. október. Auk þess þarf að senda umsókn beint til skólanna tveggja í allra seinasta lagi 15. október. Hins vegar er sótt um beint til viðkomandi háskóla í masters- eða doktorsnám.
 Listaskólar biðja oft um sýnishorn af verkum eða viðtöl og í sumum þeirra eru inntökupróf.
 Nokkrir sérskólar (colleges) eru ekki hluti af þessu kerfi og er þá sótt um beint til þeirra. Mikilvægt er að vera snemma á ferðinni þegar sótt er um þá, því að umsóknarfrestur getur runnið út allt að einu ári áður en nám hefst. Inntökupróf í tónlistarháskóla geta til dæmis verið um miðjan vetur.
 UCAS-umsóknareyðublöð fást hjá Upplýsingastofu um nám erlendis. www.ask.hi.is

Skólakerfið, inntökuskilyrði og takmarkanir
 Æðri menntun í Bretlandi er í boði í háskólum, tækniskólum og ýmsum sérskólum. Flestir tækniskólar hafa þó verið sameinaðir háskólum.
 Fyrstu gráður háskólanáms (undergraduate): Bachelors námsgráða (BA, BS) er veitt í öllum námsgreinum og tekur minnst 3 ár. Nám í flestum greinum tekur 3–4 ár, en læknisfræði, dýralækningar og tannlækningar taka 5–6 ár. Almennar inntökukröfur eru stúdentspróf, en stundum setja einstakir skólar sérstök inntökuskilyrði fyrir ýmsar námsgreinar.  Í einstaka námgreinum eru fjöldatakmarkanir, t.d. í læknisfræði, tannlækningum og dýralækningum.
 Framhaldsstig háskólanáms (postgraduate): Nám til mastersgráðu (MA, MS, MBA, M..Phil) eru tvenns konar. Annars vegar geta menn valið að vinna að ákveðinni rannsókn eða rannsóknum, en hins vegar má velja hefðbundið kennslufyrirkomulag. Mastersgráða, þar sem kennslufyrirkomulagið er valið, tekur 1 ár (12 mánuði), en 2 ár þegar um rannsóknir er að ræða. Nemendur sem ætla að hefja mastersnám þurfa að hafa lokið BA- eða BS-námi. Stundum er krafist GMAT prófs vegna náms á viðskiptasviði.
 Doktorsgráðan (Ph.D) tekur minnst 3 ár og er hægt að taka hana í öllum námsgreinum.
 Athugið að örlítill munur er á skólakerfum í Englandi og Skotlandi og eru námsmenn á leið til Skotlands hvattir til að kynna sér sérstaklega í hverju hann er fólginn.

Skólagjöld og styrkir
 Skólagjöld eru há í Bretlandi, á bilinu 5000–7000 pund fyrir skólaárið, jafnvel meira og fer það eftir námsgreinum. Kynnið ykkur skólagjaldareglur LÍN. Nokkrir styrkir til greiðslu skólagjalda standa Íslendingum til boða. Þeir eru veittir af British Council og The Foreign and Commonwealth Office. Upplýsingar fást hjá Breska sendiráðinu. Íslenskir stúdentar geta keppt við aðra útlendinga um svokallaða ORS-styrki, sem greiða mismun skólagjalda innan og utan ESB. Umsóknareyðublöð liggja frammi í breskum háskólum.
 Undir vissum kringumstæðum eiga nemendur kost á 23% endurgreiðslu skólagjalda, eða því sem nemur skattinum af greiddum skólagjöldum. Þau skilyrði sem þarf að uppfylla eru að nemandinn sé yfir 30 ára gamall, sé í námi sem er lengra en 4 vikur en styttra en eitt ár og fjármagni nám sitt sjálfur.

Að skrá sig í landið
 Til að komast inn í landið þarf að hafa með sér vegabréf, vottorð um skólavist, fjárhagsvottorð (t.d. frá LÍN). Ekki þarf lengur dvalarleyfi fyrir stúdenta innan EES landanna, en mælt er með að námsmenn skrái sig þegar þeir koma til landsins á næstu skráningarskrifstofu lögreglunnar, því eftir 6 mánaða dvöl í landinu fá þeir inngöngu í breska sjúkratryggingakerfið og fá þá sömu réttindi og heimamenn. Í millitíðinni þurfa menn að hafa vottorð frá Tryggingastofnun ríkisins um sjúkratryggingu hér.

Tungumálið
 Sumir skólar gera kröfur um að nemendur taki annað hvort TOEFL eða EFL tungumálapróf.

Húsnæði
 Best er fyrir þá sem eru að hefja nám að útvega sér húsnæði á stúdentagarði. Flestir skólar bjóða upp á slíkt og veita fyrsta árs nemum iðulega forgang. Skrifið til viðkomandi skóla eftir upplýsingum. Þeir sem ekki fá inni geta leitað til hins almenna markaðar. Hefjið húsnæðisleit tímanlega.

Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt, heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun ríkisins sem staðfestir þetta og heitir það E-128. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis. Eftir að menn eru komnir inn í breska sjúkratryggingakerfið (eftir sex mánuði) verður öll heilsugæsla mjög ódýr, lyf og tannlæknaþjónusta meðtalin.
 Í tengslum við marga skóla eru rekin barnaheimili fyrir starfsfólk og nemendur. Þar fyrir utan er ekki auðvelt að koma börnum fyrir. Skólinn hefst við sex ára aldur og er hægt að velja milli ríkisrekinna skóla og einkaskóla. Skóladagurinn er sex til sjö klukkustundir.

Mikilvægt varðandi LÍN
 Ástæða er til að hvetja fólk til að fara í viðtöl til ráðgjafa lánasjóðsins áður en farið er til Bretlands í nám. Þannig fást mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að hafa með sér í farteskinu þegar haldið er út.

Grunnháskólanám (undergraduate studies):
Ekki eru veitt námslán vegna skólagjalda í grunnháskólanámi og sérnámi, jafnvel ekki þótt viðkomandi nám sé ekki hægt að stunda á Íslandi. Ástæða er til að benda fólki á að skólagjöld eru veruleg í Bretlandi og geta reynst mikill fjárhagslegur baggi á þeim sem þau þurfa að borga.

Framhaldsháskólanám:
Hægt er að sækja um lán hjá LÍN í eina önn aukalega vegna viðamikils lokaverkefnis. Verði röskun á námsáætluninni þarf að skila inn breyttri áætlun til lánasjóðsins.
Athugið að aðeins eru veitt lán vegna skólagjalda í framhaldsháskólanámi upp að ákveðnu hámarki (sjá reglur LÍN www.lin.is ).
Allir styrkir sem námsmaður hlýtur eru dregnir frá skólagjaldalánum LÍN, hvort sem um er að ræða sérstaka skólagjaldastyrki eða aðra styrki eins og t.d. „assistantship“.

Frekari upplýsingar

The Student 95 : the indispensable applicant's guide to UK colleges and universities, gefin út af Klaus Boehm Publications Limited, árlega.

Graduate studies 1994-95: the complete guide to over 10,000 postgraduate courses in the UK, gefin út af Hobsons Publishing PLC, árlega.

Upplýsingastofa um nám erlendis.  www.ask.hi.is

Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á. 

Vefföng

Heimasíða SÍNE:
 http://www.sine.is
Sendiráðið í London:
http://www.iceland.org.uk 
Leitarvél fyrir skóla í Bretlandi:
http://www.ucas.ac.uk   
Upplýsingar um háskóla:
http://www.birmingham.ac.uk/webmaster/ukcwww.html
http://www.bham.ac.uk/webmaster/ukuwww.html
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu

British Council – www.britcoun.org – veitir upplýsingar um námsleiðir í Bretlandi

Heimilisföng (með fyrirvara)

• SÍNE, Hverfisgata 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Breska sendiráðið, Laufásvegi 49, 101 Reykjavík. Sími: 550 5100/1/2, fax: 562 9110 og 562 9139. Opið 8:30 – 16:00 (mán-fim) og 8:30 – 15:30 (fös).
• Sendiráð Íslands í Bretlandi, 1 Eaton Terrace, London, SW1W 8EY. Símar: (171) 590 1100, fax: (171) 730 1683. Netfang: icemb.london@utn.stjr.is. Opið 9:30-16:00.
• UCCA, Universities Central Council on Admission: Rose Hill, New Barn Lane Prestbury, Cheltenham, GL 52 3LZ.

 

 

 


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf