Samband íslenskra námsmanna erlendis

Frakkland Umsóknarfrestur og umsóknarmáti  Skólaárið nær frá byrjun október til loka júní. Forinnritun (préinscription) í franska háskóla fer fram

SÍNE 50 ára

Handbók - Frakkland

Frakkland

Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
 Skólaárið nær frá byrjun október til loka júní. Forinnritun (préinscription) í franska háskóla fer fram í franska sendiráðinu, á tímabilinu 1. desember til 15. janúar. Hægt er að sækja um inngöngu í einn skóla og annan til vara. Ásamt forinnritun, þarf að standast frönskupróf sem haldið er hjá sendiráðinu í síðasta lagi 1. mars ár hvert. Styrkþegar þurfa ekki að sækja um forinnritun og heldur ekki þeir sem sækja um skóla þar sem inntaka fer fram eftir samkeppnispróf. Þeir sem lokið hafa einhverri háskólagráðu og eru að sækja um mastersnám eða hafa áður verið við nám í frönskum háskólum geta sjálfir sótt um beint til háskóla fyrir lok júlí.
 Sótt er beint um nám í frönsku fyrir útlendinga til viðkomandi skóla. Hafið samband við einkaskóla og sérskóla tímanlega til að komast að því hvenær þeir taka við umsóknum.

Inntökuskilyrði og takmarkanir
 Stúdentspróf þarf til að hefja háskólanám. Íslenskt stúdentspróf telst jafngilt frönsku „baccalauréat“. Þeir sem hafa BA/BS gráðu geta fengið það metið ýmist sem tveggja ára nám (DEUG-gráða) eða þriggja ára nám (Licences).

Skólagjöld og styrkir
 Skólagjöld í ríkisskólum í Frakklandi eru óveruleg nema við útlendingadeildir. Einkaskólar innheimta skólagjöld.
 Frönsk stjórnvöld veita nokkra styrki til framhaldsnáms í frönskum háskólum. Leitið upplýsinga tímanlega hjá Franska sendiráðinu í september ári áður en væntanlegt nám hefst. Styrkþegar njóta ýmiss konar fyrirgreiðslu varðandi skóla, húsnæði og fleira.

Að skrá sig í landið
 Sótt er um dvalarleyfi hjá sýslumanni, „La Préfecteur“, nema í París, þá er leyfið veitt hjá „centres de réception des étrangers“ . Til að fá dvalarleyfi þarf að sýna eftirfarandi gögn: Vegabréf, staðfestingu á húsnæði, þrjár svart/hvítar myndir, skólavistarvottorð (certificat d'admission) og fjárhagsvottorð (fæst m.a. hjá LÍN). Frakkar eru formfastir og því gott að hafa bæði með sér frumrit og nokkur ljósrit af umbeðnum skjölum, eða stimpluð og staðfest ljósrit frá „La Mairie“ (viðkomandi bæjaryfirvöldum). Þetta sparar tíma og fyrirhöfn. Einnig er gott að hafa passamyndir í góðu upplagi.
 
Tungumálið og námskeið
 Eins og áður sagði heldur Franska sendiráðið hæfnispróf í frönsku í febrúar ár hvert. Ekki er hægt að hefja almennt háskólanám fyrr en þessu prófi er náð. Flestir skólar hafa undirbúningskennslu á sínum vegum í svokölluðum útlendingadeildum. Ýmsar aðrar stofnanir kenna líka frönsku. Hafið samband við sendiráðið og/eða Upplýsingastofu um nám erlendis.

Húsnæðismál
 Mjög örðugt er að fá húsnæði í París en ástandið er betra á landsbyggðinni. Úti á landi eru stúdentagarðar reknir af „Euvres Universitaire“ en í París kallast þeir „Cité Internationale“ og eru aðeins fyrir lengra komna námsmenn.
 Upplýsingastofa um nám erlendis er með heimilisföng stúdentagarða. Í París verða menn að treysta á almennan markað og notfæra sér leigumiðlanir, en á öðrum stöðum í Frakklandi er hægara um vik.
 Ástæða er til að benda fólki á að hitunarkostnaður er töluverður, þar sem íbúðir eru hitaðar upp með rafmagni.

Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt, heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta og heitir það E-128. Erlendir námsmenn njóta tryggingar franska sjúkrasamlagsins fram að 26 ára aldri og geta einnig tryggt sig hjá tryggingafélagi stúdenta. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
Erfitt er að koma börnum yngri en tveggja ára í gæslu nema þá á leikskóla (Halte garderie) hluta úr degi. Eldri börn hafa aðgang að leikskólum. Leikskólar eru ókeypis fyrir utan smágreiðslu fyrir máltíð. Í Frakklandi verða börn skólaskyld sex ára.

Mikilvægt varðandi LÍN
Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í eitt misseri (tvo fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er bundið því skilyrði að áframhaldandi nám verði stundað í Frakklandi. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins. Athugið einnig að gefið er út sér skuldabréf fyrir þetta lán. Því þarf að ganga frá nýju skuldabréfi fyrir lán sem veitt er fyrir áframhaldandi nám.
 
Frekari upplýsingar

Í Franska sendiráðinu og hjá Upplýsingastofu um nám erlendis fæst upplýsingabæklingurinn Je vais en France , sem hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um undirbúning náms í Frakklandi.

Á Upplýsingastofu er einnig að finna upplýsingar um nám og störf í Frakklandi í seríunni: Centre d'information et de documentation jeuness (CIDJ).

Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.

Vefföng

Heimasíða SÍNE:
 http://www.sine.is
Upplýsingar um nám í Frakklandi:
 http://www.nyu.edu/pages/wessfrench
 http://www.edutel.fr
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
 http://www.worldwide.edu

Heimilisföng

• SÍNE, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Franska sendiráðið, Túngötu 22, 101 Reykjavík. Sími: 551 7621, 551 7622, fax: 562 8177. Opið 9:00 – 13:00.
• Sendiráð Íslands, 8, Avenue Kléber, 75116 París. Sími: (1) 44 17 32 85, fax: (1) 40 67 99 96. Netfang: icemb.paris@utn.stjr.is. Opið 9:30–17:00.
• Flugleiðir í París, 9, Boulevard des Capucines, 75002 Paris. Sími: (1) 4451 6051, fax: (1) 4265 1752.
Netfang: france@icelandair.is
• Flugleiðir í Luxemborg, P.O. Box 2102, L–1021 Luxembourg. Sími: 352 367247, fax: 352 369627.
Netfang: emil@icelandair.is.
• Eimskip í Bordeaux: Alfred Balguerie S.A., 447, bd Alfred Daney, 33075 BordeauxCedex. Sími: 557 573333, fax: 556 399125.
• Eimskip í París: Alfred Balguerie S.A., 19, rue des Mathurins, 75009 Paris. Sími: 5330 8330, fax: 4268 0396.

 

 

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf