Ítalía
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið er frá október/nóvember til júní/júlí. Umsóknir um ríkisháskóla eða
ríkislistaskóla fara í gegnum Istituto Italiano di Cultura í Osló. Umsóknareyðublöð eru send frá sendiráðinu í
Osló til ræðismannsins í Reykjavík í apríl eða maí og þurfa námsmenn að nálgast þau hjá honum.
Lokaumsóknarfrestur fyrir listaskóla er í lok febrúar, en í lok maí fyrir háskóla. Umsóknum eiga að fylgja ítalskar
þýðingar á prófskírteinum, námsmat (eyðublöð fást hjá ræðismanni) auk trygginga- og fjárhagsvottorða.
Þessa pappíra verður að fá stimplaða hjá ræðismanni, en síðan á að senda þá til sendiráðsins í
Osló. Við innritun í einkaskóla er í sumum tilfellum krafist fæðingarvottorðs, sem þarf að vera þýtt á ítölsku
og stimplað af ítalska ræðismanninum á Íslandi.
Ef sótt er um skólavist í einkaskólum á Ítalíu er sótt til þeirra beint. Óhætt er að skrifa á ensku til
þessara skóla. Umsóknarfrestur er mislangur.
Inntökuskilyrði og takmarkanir
Stúdentspróf þarf til að komast í háskólanám. Þeir sem sækja um háskólanám þurfa að sýna
fram á kunnáttu í ítölsku. Ítalska sendiráðið í Osló heldur stöðupróf í júní.
Háskólarnir halda síðan inntökupróf í ítölsku í byrjun september. Nauðsynlegt er að taka bæði þessi próf.
Einstaka deildir í háskólunum hafa inntökupróf eða frekari skilyrði fyrir inngöngu.
Stúdentsprófs er ekki alltaf krafist þegar sótt er um listnám. Hins vegar er í flestum listaskólum inntökupróf og er það
haldið í september.
Skólagjöld og styrkir
Skólagjöld eru í ítölskum háskólum, u.þ.b. 1.500.000 lírur að meðaltali fyrir skólaárið ’98
–’99 í ríkisreknu skólunum. Ítölsk stjórnvöld bjóða árlega fram styrk handa Íslendingum, sem nemur samtals 8
mánaða uppihaldi. Einnig eru veittir nokkrir styrkir til listnáms og framhaldsnáms við háskóla til styttri tíma. Upplýsingar fást
í menntamálaráðuneytinu og hjá ræðismanni Ítalíu. Sjá einnig „Handbók um styrki“, sem
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins gefur út.
Að skrá sig í landið
Ekki þarf vegabréfsáritun til Ítalíu, en námsmenn ættu að halda utan tímanlega til að sækja um dvalarleyfi og koma sér
fyrir. Sótt er um dvalarleyfi á lögreglustöð (Questura) innan 8 daga eftir að komið er til landsins og hafa skal meðferðis vegabréf,
fjárhagsvottorð (sem fæst hjá LÍN), tryggingavottorð (E128, fæst hjá Tryggingastofnun ríkisins), ljósrit af vegabréfi, 3
passamyndir, ljósrit af leigusamningi eða vottorð frá þeim sem maður dvelur hjá og meðfylgjandi ljósrit af skilríkjum viðkomandi og
yfirlýsingu frá ræðismanninum í Reykjavík um að umsækjandinn sé að fara til náms á Ítalíu.
Tungumálið og námskeið
Enginn kemst langt á Ítalíu án þess að tileinka sér málið. Innganga í venjulegt háskólanám fæst ekki
nema sýnt sé fram á kunnáttu í ítölsku. Við ýmsa ítalska háskóla eru útlendingadeildir sem bjóða upp
á nám í ítölsku, allt frá þremur mánuðum og upp í ár. Nokkrir þeirra bjóða upp á
sumarnámskeið. Ótal málaskólar halda námskeið í ítölsku allt árið. Einnig er hægt að fara á
kvöldnámskeið. Upplýsingastofa um nám erlendis og Stofnun Dante Alighieri í Reykjavík veita upplýsingar um málaskóla.
Húsnæði
Húsnæðismálin eru eitt helsta vandamál þeirra sem fara til náms á Ítalíu. Í Flórens, Feneyjum, Bologna og
Mílanó er húsnæði dýrt og torfengið. Húsnæði er yfirleitt leigt með húsbúnaði. Sumir einkaskólar sjá um
að útvega húsnæði. Einkareknar leigumiðlanir kunna að vera góður kostur í upphafi. Best er að fara utan nokkru áður en
skóli hefst til að ganga frá þeim málum og dvalarleyfinu.
Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt, heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara
með námsmanninum til námslandsins. Hjá Tryggingastofnun ríkisins fæst tryggingavottorð sem staðfestir þetta (E-128) og er nauðsynlegt að
hafa það meðferðis. Ekki þarf að tryggja sig hjá ítölsku tryggingarfélagi, því að íslenska sjúkrasamlagstryggingin
nægir fyrir kostnaði. Til að fá heimilislækni þarf að fara með vottorðið frá TR í ítalska sjúkrasamlagið (USL -
Unità Sanitaria Locale) og láta skrá sig. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
Fremur erfitt er að fá inni fyrir börn á barnaheimilum.
Mikilvægt varðandi LÍN
Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í eitt misseri (tvo fjórðunga þar sem það á við) en athugið að
lánið er bundið því skilyrði að áframhaldandi nám verði stundað á Ítalíu. Skilyrði fyrir útborgun
lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins. Athugið einnig að gefið er
út sér skuldabréf fyrir þetta lán. Því þarf að ganga frá nýju skuldabréfi fyrir lán sem veitt er fyrir
áframhaldandi nám.
Frekari upplýsingar
A Guide for foreigners1993. Italian Ministry for Universities and Scientific and Technological Research Higher Education in Italy.
Directory of Higher Education Institutions in the European Community. ERASMUS -skrifstofan í Brüssel.
Upplýsingastofa um nám erlendis.
Dante Alighieri-stofnunin.
Aðalræðismaður Ítalíu á Íslandi.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um nám á Ítalíu:
http://www.campus-voice.com/BB/BMB/BMBIXE05.htm#AA
http://www.hsv.se/studieinfo/studier_utomlands/studera_i/italien.html
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang ask@hi.is.
• Aðalræðismaður Ítalíu á Íslandi, Pétur Björnsson, Laugavegur 71, 101, 101 Reykjavík. Sími: 562 4042, fax: 562 4004.
Netfang: consolato@isholf.is. Opið þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 10:00–12:00.
• Sendiráð Ítalíu fyrir Norðurlönd: Ambasaciata d'Italia, Oslo. L'Addetto Culturale, Inkognitogaten 7, 0244 Oslo 2. Sími: 2255 2233, 2255 2234, 2255 7250
fax: 2244 3436.
• Instituto Italiano di Cultura, Oscarsgate 56, 0258 Oslo. Sími: 2255 8189, fax: 2255 8940.
• Aðalræðismaður Íslands á Ítalíu, Antonio La Rocca, Via Flaminia 441, 00196 Roma. Sími: (06) 323 1840, fax: (06) 323 1468.
(Sendiráðið í París annast sendiráðsstörfin).
• Stofnun Dante Alighieri á Íslandi, Bankastræti 71, 101 Reykjavík. Sími: 552 8900.
• Flugleiðir í Róm: CIMAIR S.R.L.,Via Bissolati 54, 00187 Roma. Sími: (6) 48 73 377, fax: (6) 48 73 483.
• Eimskip í Mílanó: Thos Carr & Son SPA, Via Fabio Filzi 23, 20124 Milano. Sími: (2) 669 6460, fax: (2) 670 1834.
• Samskip í Mílano: Sittam S.p.A, Via Stephenson 75, 20157 Milano. Sími: (2) 3579 5315, fax: (2) 3900 2698.






