Japan
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið er frá apríl til mars. Sótt er um skólavist beint til viðkomandi skóla. Inntökuskilyrði eru mismunandi eftir
skólum en þó eru inntökupróf inn í flesta háskóla. Gefið ykkur góðan tíma til að sækja um, því
búast má við að meðhöndlun umsókna taki langan tíma. Leitið upplýsinga hjá ræðismanni um útvegun dvalarleyfis.
Þeir sem sem fara til Japan og eru ekki á styrk frá japanska menntamálaráðuneytinu (Monbusho) þurfa að útvega sér ábyrgðarmann
í Japan. Rétt er að ráðfæra sig við háskólana um útvegun hans.
Skólakerfið
Það eru fjórar gerðir háskóla í Japan. Hefðbundnu háskólarnir bjóða upp á 4 ára byrjunarnám,
þó 6 ár í læknisfræði, tannlækningum og dýralækningum. Mastersnám er til 2 ára og doktorsnám til 5 ára (3
ár að loknu mastersnámi). Tækniháskólarnir bjóða upp á 5 ára nám, oft með aðaláherslu á
verkfræðimenntun og öðru því tengdu. Auk 2 ára háskóla (junior college) þá eru í Japan einnig
starfsmenntunarháskólar sem bjóða upp á 1 – 3 ára nám í starfstengdu tækninámi, sem og tungumálum og kennslu.
Skólagjöld og styrkir
Skólagjöld eru mjög mishá eftir því hvort um einkaskóla eða ríkisskóla er að ræða. Stjórnvöld í
Japan veita einn styrk árlega til 18 – 24 mánaða náms í Japan (lengd styrksins fer eftir því hvort nám er hafið að vori eða
hausti). Menntamálaráðuneytið og sendiráðið í Osló veita nánari upplýsingar. Af styrktímanum fara minnst sex mánuðir
til náms í japönsku.
Að skrá sig inn í landið
Til að fá dvalarleyfi þarf ábyrgðarmann í Japan, vottorð um skólavist og fjárhagsvottorð. Monbusho styrkþegar þurfa
þó ekki að útvega ábyrgðarmann. Rétt er að fara að huga að umsókn um dvalarleyfi þrem mánuðum fyrir brottför.
Hafið samband við ræðismann eða sendiráðið í Osló.
Tungumálið, námskeið
Margir skólar bjóða upp á eins árs nám í japönsku fyrir útlendinga. Telja má að varla verði komist af með minna en
eins og hálfs árs nám í tungumálinu. Benda má á að japönsku er hægt að læra víða við háskóla
í öðrum löndum. Margir bandarískir háskólar, auk háskóla í Evrópu bjóða upp á nám í
japönsku. Sumir japanskir háskólar bjóða þó upp á einstök námskeið sem fara fram á ensku.
Félagslegar aðstæður
Skólar aðstoða við útvegun húsnæðis. Húsaleiga getur verið dýr, sérstaklega í stærri borgum.
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með
námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta. Læknisþjónusta er góð
og er að stærstum hluta greidd niður af tryggingum sem fólk verður að kaupa, en þær eru ekki mjög dýrar. Sjá nánar kaflann um
tryggingamál námsmanna erlendis.
Mikilvægt varðandi LÍN
Sé farið til Japan í annað nám en japönsku er veitt lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í allt að tvö misseri
(þrjá fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er bundið því skilyrði að áframhaldandi
nám verði stundað í Japan. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé
skilað inn til lánasjóðsins. Athugið einnig að gefið er út sér skuldabréf fyrir þetta lán. Því þarf að ganga
frá nýju skuldabréfi fyrir lán sem veitt er fyrir áframhaldandi nám.
Frekari upplýsingar
Undergraduate and graduate programmes in Japan 1997-1998.
Japanese colleges and universities 1997-99. The Association of international education, Japan.
Upplýsingastofa um nám erlendis.
Japanska sendiráðið í Osló.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Leitarvél fyrir japanska háskóla:
http://www.gol.com/yamasa/access/indexe.html
Japanskir háskólar:
http://www.panix.com/~tn/j-univ.html
http://www.otemae.ac.jp/list-u/index.html
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Ræðismaður Japans, Ólafur B. Thors, Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Sími: 569 2500 (Sjóvá-Almennar), fax: 581 3718.
• Sendiráð Japans í Ósló, Parkveien 33B, N-0244 Oslo 2. Sími: 2255 1011, fax: 2244 2505.
• Aðalræðismaður Íslands í Japan: Hr. Raijiro Nakabe. Ræðismaður: Dr Eyþór Eyjófsson, c/o Stolt Cocoon K.K., Tsukiji Koyama Bldg
4fl, 12-5, Tsukiji 3-chome, Chuo-ku, Tokyo 104-0045. Símar: (3) 5565 6323, (3) 5565 3036, fax: (3) 5565 3038. Netfang: eeyjolfsson@stolt.com.
• Sendiráð Íslands í Bejing, Beijing Landmark Building 8-02, 8 North Dongsanhuan Road, Chaoyang District, 100004 Bejing, PR of China. Sími: (10) 6590-7795 og (10)
6590-7796, fax: (10) 6590-7801. Netfang: icemb.beijing@utn.stjr.is.






