Kanada
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið er frá september til maí. Umsóknarfrestur um haustmisseri er venjulega á bilinu febrúar til apríl, misjafnt eftir
skólum. Best er að hefja undirbúning að umsókn ári áður en nám á að hefjast. Í sk. umsóknarpakka („application
package“) sem hægt er að biðja um í bréfi til skólans, er að finna allskyns upplýsingar um námsgráður, skólann,
svæðið, húsnæði o.fl. fyrir utan umsóknareyðublaðið. Umsókn sendist beint til viðkomandi skóla.
Inntökuskilyrði og takmarkanir
Í flestum tilfellum þarf stúdentspróf til að komast inn í háskóla í Kanada og góðar einkunnir að auki. Þeir sem
hafa náð tuttugu og eins árs aldri hafa þó möguleika á því að komast inn án þess að hafa stúdentspróf, ef
þeir búa yfir einhverri starfsreynslu. Ekki er óalgengt að skólar meti eitt ár af fjögurra ára námi hafi umsækjandi
stúdentspróf frá Íslandi.
Skólagjöld og styrkir
Skólagjöld tíðkast í Kanada. Upphæð þeirra er mjög misjöfn eftir skólum. Yfirleitt eru þau þó verulega
lægri en í Bandaríkjunum. Útlendingar þurfa að borga hærri skólagjöld en innfæddir. Þessari þróun hefur þó
að einhverju leyti verið mætt með því auka möguleika erlendra stúdenta á styrkjum. Nemendur í framhaldsnámi eiga til dæmis
auðvelt með að fá kennslu og rannsóknarstyrki.
Að skrá sig í landið
Þegar staðfesting á skólavist hefur borist þarf að sækja um dvalarleyfi hjá ræðismannsskrifstofunni í Reykjavík.
Það þarf að gerast minnst sex vikum fyrir brottför. Fyrir þá sem ætla til Quebec þarf einnig að sækja um dvalarleyfi í Quebec.
Tungumálið, námskeið
Tungumálin eru tvö, enska og franska. Útlendingum er boðið upp á sérstök tungumálanámskeið. Allir sem sækja um
námsvist í enskumælandi skólum þurfa að taka TOEFL enskuprófið. Þeir sem sækja um frönskumælandi skóla mega búast
við að þurfa að sanna kunnáttu sína í því máli. Hins vegar eru skólar almennt enskumælandi (að undanskildum skólum
í Quebec), nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Húsnæðismál
Við flesta háskóla eru stúdentagarðar fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Sækið um þá um leið og svar hefur borist um
skólavist . Ef umsókn um stúdentagarð er hafnað er alltaf hægt að leita út á almennan markað, sem jafnan er nokkuð tryggður í
grennd við stærri háskóla.
Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt, heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara
með námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta. Hins vegar er öruggast er að kaupa
sér sjúkratryggingu í Kanada því lækniskostnaður er umtalsvert hærri, en á Íslandi. Athugið hvort skólinn hefur
milligöngu um ódýra tryggingu. Einnig er sjálfsagt að kynna sér gagnkvæman tryggingasáttmála milli Kanada og Íslands, en
upplýsingar um hann fást hjá Tryggingastofnun ríkisins. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
Sumir skólar reka dagheimili fyrir börn námsmanna, en annars staðar verður að fá dagmömmu. Fimm ára komast börn í skóla og
er hann sex tímar á dag.
Mikilvægt varðandi LÍN
Ástæða er til að hvetja fólk til að fara í viðtöl til ráðgjafa lánasjóðsins áður en farið er til Kanada
í nám. Þannig fást mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að hafa með sér í farteskinu þegar haldið er út.
Grunnháskólanám (undergraduate studies):
Ekki eru veitt námslán vegna skólagjalda í grunnháskólanámi og sérnámi, jafnvel ekki þótt viðkomandi nám
sé ekki hægt að stunda á Íslandi. Þó er hægt að fá svokölluð markaðskjaralán fyrir skólagjöldum.
Þessi lán eru verðtryggð og bera venjulega meðalvexti banka. Þau endurgreiðast með jöfnum afborgunum óháð öðrum
námslánum og er endurgreiðsla þeirra sérstaklega tryggð. Hámarksupphæð markaðskjaralána er 6.000 USD á námsári
(fyrir skólaárið 1998 –1999). Ástæða er til að benda fólki á að skólagjöld eru veruleg í Kanada og geta reynst mikill
fjárhagslegur baggi á þeim sem þau þurfa að borga.
Lánasjóðurinn lánar til allra námsgreina sem nýtast til lokaprófs. Í sumum tilfellum nýtast greinarnar ekki til lokaprófsins –
t.d. fög eins og „English as a second language“.
Þegar sótt er um lán til náms í Kanada sendir lánasjóðurinn eyðublað út til viðkomandi skóla þar sem
óskað er eftir upplýsingum um hámarks einingafjölda í fullu námi. Við þessar upplýsingar er svo stuðst þegar
námsárangur er metinn. Oft hefur skólinn sjálfur ákveðinn sveigjanleika í einingafjölda fyrir það sem hann kallar „full time
studies“, gefur t.d. upp 12 – 15 einingar fyrir fullt nám. Hins vegar metur lánasjóðurinn það sem svo að 100% nám krefjist hámarks
einingafjölda og fer þ.a.l. fram á að námsmaður skili inn árangri fyrir hærri einingatölunni.
Lánasjóðurinn sendir umsóknareyðublöð fyrir sumarlán til umboðsmanna allra námsmanna í Kanada.
Framhaldsháskólanám:
Þegar farið er í framhaldsháskólanám er mikilvægt að gera námsáætlun í byrjun námsferils þar sem fram kemur hve
margar einingar eru teknar á hverri önn og hvenær væntanleg námslok verða. Þegar búið er að gera slíka áætlun þarf
að fá hana staðfesta af skóla og senda inn til LÍN. Þetta á t.d. við þegar sótt er um lán í eina önn aukalega vegna
viðamikils lokaverkefnis. Verði röskun á áætluninni þarf að skila inn breyttri námsáætlun til lánasjóðsins.
Athugið að aðeins eru veitt lán vegna skólagjalda í framhaldsháskólanámi upp að ákveðnu hámarki og var það 33.000
USD fyrir skólaárið 1998 – 1999.
Allir styrkir sem námsmaður hlýtur eru dregnir frá skólagjaldalánum LÍN, hvort sem um er að ræða sérstaka skólagjaldastyrki
eða aðra styrki, eins og t.d. „assistantship“.
Lánasjóðurinn sendir umsóknareyðublöð fyrir sumarlán til umboðsmanna allra námsmanna í Kanada.
Frekari upplýsingar
Directory of Canadian universities, gefin út af Association of Universities and colleges of Canada, 151 Slater Street, Ottawa, Ontario K1P 5N1.
Upplýsingastofa um nám erlendis.
Kanadíski ræðismaðurinn á Íslandi.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um háskóla:
http://www.aucc.ca
Upplýsingar um námsleiðir:
http://www.planetpostcard.com/uniprog/programs.html
Leitarvél fyrir skóla í Kanada:
http://www.schoolfinder.com
Húsnæði í Acadia:
http://www.findaspot.com
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Ræðismaður Kanada, Jón H. Bergs, Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík. P.O. Box 8094, 128 Reykjavík. Sími: 568 0820, fax: 568 0899.
• Ræðismaður Íslands í Toronto, Jón Ragnar Johnson, Suite 2400, 250 Yonge Street, Toronto, Ontario M5B 2M6. Sími: (416) 979 6740, fax: (416) 979 1234.
Netfang: johnsonj@tor.gpv.com.
• Ræðismaður Íslands í Halifax, Nova Scotia: Lawrence John Cooke. 14 Bay Court, Tomberlea, Noca Scotia B3T 1C4. Sími og fax: (902) 876 0657.
• Eimskip í Halifax: F.K.Warren Ltd., 2000 Barrington St. Suite 920,Cogswell Tower, P.O.Box 1117. Halifax, N.S. B3J 2X1. Sími: (902) 423 8136, fax: (902) 429 1326.
• Eimskip Newfoundland, 27 Austin Street, P.O.Box 13816, St. John´s Nfld. Sími: (709) 754 7222, fax: (709) 754 7999.
• Flugleiðir, World Trade & Convention Centre, 1800 Argyle Street, Suite 402, Halifax, Nova Scotia, Canada B3J 3N8. Sími: 800-223 5500, fax: (902) 422 2271.






