Kína
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Umsóknum um nám í Kína skal senda beint til viðkomandi skóla í Kína, nema námsmaður sé á námstyrk þeim sem
menntamálaráðuneytið sér um (sjá kafla um styrki hér að neðan). Þeir sem hyggja á raungreinar eða viðskiptanám
þurfa hugsanlega að þreyta inngöngupróf í Kínverska sendiráðinu. Þeir sem ætla í raungreinanám þurfa að stunda
eins árs undirbúningsnám í kínversku, en þeir sem ætla í nám er tengist kínverskri menningu þurfa að ganga í
gegnum tveggja ára undirbúningsnám.
Inntökuskilyrði og takmarkanir
Sjaldan er erfitt að komast í þær námsgreinar sem sótt er um. Læknisvottorð er skilyrði fyrir að umsókn sé tekin til greina. Ekki
er mögulegt að taka með sér börn eða maka sem ekki er í námi.
Skólagjöld og styrkir
Menntamálaráðuneytið hefur umsjón með námsstyrk sem veittur er af kínverskum stjórnvöldum og er umsóknarfrestur auglýstur
sérstaklega í byrjun hvers almanaksárs. Menntamálaráðuneytið sér svo um að koma gögnunum til Kínverska sendiráðsins.
Að skrá sig í landið
Sendiráðið veitir upplýsingar um þessi atriði. Varist að hafa mikinn farangur meðferðis. Fatnaður og aðrar nauðsynjavörur eru
ódýrar í Kína.
Tungumálið og námskeið
Eins og áður sagði er fyrsta árinu varið í stíft nám í kínversku, 4-6 stundir daglega. Sama má segja um annað árið
fyrir þá sem fara í kínversk fræði.
Félagslegar aðstæður
Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með
námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta. Sjá nánar kaflann um
tryggingamál námsmanna erlendis.
Gert er ráð fyrir að styrkur nægi fyrir húsnæði, mat og læknisþjónustu. Búast má við að menn þurfi að deila
herbergi með öðrum. Þeir sem ekki njóta styrks greiða þetta fullu verði, en hafa völ á einstaklingsherbergi.
Mikilvægt varðandi LÍN
Sé farið til Kína í annað nám en kínversku er veitt lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í allt að tvö
misseri (þrjá fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er skilyrðisbundið því að
áframhaldandi nám verði stundað í Kína. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi
nám sé skilað inn til lánasjóðsins. Athugið einnig að gefið er út sér skuldabréf fyrir þetta lán. Því
þarf að ganga frá nýju skuldabréfi fyrir lán sem veitt er fyrir áframhaldandi nám.
Frekari upplýsingar
Hans Bragi Bernharðsson (námsmaður í Kína). Netfang: hansb@bltda.com.bta.net.cn.
SÍNE reynir að vera hjálplegt við að finna tengiliði á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um nám í Kína:
http://www.edu.cn/education/lindex.html
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang ask@hi.is.
• Kínverska sendiráðið, Víðimel 29, 107 Reykjavík. Sími: 552 6751, fax: 562 6110, opið kl. 9:00 – 12:00.
• Íslenska sendiráðið í Peking: Beijing Landmark building 8-02, 8 North Dongsanhuan Road, Chaoyang District, 100004 Beijing, P.R. China. Sími: (10) 6590 7795,
(10) 6590 7796, fax: (10) 6590 7801. Netfang: icemb.beijing@utn.stjr.is.
• Kínversk-íslenska menningarfélagið (Arnþór Helgason). Sími: 561 1703.
• Beijing Language and Cultural University (sá skóli í Kína sem flestir Íslendingar stunda nám í), Foreign student office, Room 332 Main
Building, 15 Xueyuan Road, Haidian District, 100083 Beijing, P.R. China. Sími: (10) 62327531.
• Flugleiðir, Hong Kong, Pac Air Services Ltd.,Room 401, Winway Building, 50 Wellington Street, Central Hong Kong. Sími: (852) 2866 8826, (852) 2866 8836, fax: (852) 2845 2933.






