Finnland
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið er frá september til maí. Umsóknarfrestur rennur yfirleitt út í mars, en það er þó ekki algilt. Því
er best að skrifa til skólanna að hausti og biðja „studiebyrån“ um umsóknareyðublöð og fá upplýsingar um umsóknarfresti.
Á Internetinu er að finna upplýsingar um alla háskóla í Finnlandi bæði á sænsku og ensku (sjá lista yfir vefföng).
Skólakerfið, inntökuskilyrði og takmarkanir
Venjuleg inntökuskilyrði eru stúdentspróf auk inntökuprófa sem haldin eru í skólunum. Prófin fara fram um sumarið og útlendingar
geta tekið þau á sænsku eða ensku. Nordplus-, Erasmus- og aðrir gestastúdentar komast þó yfirleitt inn í skólana án þess
að taka inntökupróf. Fjöldatakmarkanir eru í flestum deildum. Námið byggir á einingakerfi. Fullt nám í eitt misseri er almennt 20 einingar
eða 40 einingar fyrir veturinn, þó er þetta mismunandi eftir námsbrautum. Hins vegar eru Finnar ekki eins uppteknir af einingum og Íslendingar og því
getur verið misjafnt hversu margar einingar hægt er að taka á önn og fer það eftir framboði námskeiða og vinnuálagi í hverju
námskeiði fyrir sig. Athugið að þetta getur komið sér illa gagnvart Lánasjóðnum, sem veitir aðeins fullt námslán sé
fullt nám stundað skv. námsbrautinni.
Við inngöngu í listnám er í flestum tilvikum krafist inntökuprófa og þar eru fjöldatakmarkanir viðhafðar. Listnám í
Finnlandi tekur 4–6 ár, allt eftir því um hvaða svið er að ræða.
Námsgráður
Boðið er upp á bæði BA/BS og MA/MS nám í flestum námsgreinum og einnig lægri „diploma“ gráðu í mörgum
tækni- og listgreinum. Nokkuð er um að námskeið og námsleiðir séu kennd að fullu á ensku.
BA/BS: Þessi grunnnámsgráða tekur minnst 3 ár. Fjöldi eininga fyrir gráðuna er a.m.k. 120 einingar. Í mörgum námsgreinum
geta þeir sem hafa öðlast námsgráðuna sótt um námstitilinn „Masteri“.
Maisteri/magister (MA/MS, FM,fil. maist/fil. mag): Þessi námsgráða tekur 5 ár og þarf minnst 160 einingar til að ljúka henni.
Lisensiat (Lisensiaatti/Licenciat) og doktorsgráða (Tohtori/Doctor): Þessar framhaldsgráður geta þeir öðlast sem lokið hafa
MA/MS-gráðu. Lisensiat tekur að jafnaði 2 - 3 ár, en Doktorsgráða 1 - 3 árum lengur. Einnig eru til aðrar gráður eins og t.d. Diploma, sem
er áfangagráða og hærri gráður eins og Professional Postgraduate (Erikoislääkäri/Specialläkare o.s.frv.), LLM gráður í
lögfræði ofl.
Skólagjöld og styrkir
Skólagjöld tíðkast ekki við ríkisskóla í Finnlandi, þó eru dæmi um einstakar námsleiðir og námsskeið sem borga
þarf sérstaklega fyrir að stunda. Menntamálaráðuneytið auglýsir árlega einn styrk til framhaldsnáms eða rannsókna við
finnska háskóla. Einnig hafa verið í boði styrkir sérstaklega ætlaðir til náms í finnskri tungu og menningu. Menningarsjóður
Íslands og Finnlands veitir einn styrk, sjá nánar í „Handbók um styrki“,sem Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins gefur
út. CIMO veitir einnig styrki til námsmanna í framhaldsnámi, eða til þeirra sem stunda rannsóknir.
Að skrá sig í landið
Nauðsynlegt er að hafa með sér samnorrænt flutningsvottorð sem fæst hjá Hagstofu Íslands, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík.
Fjárhagsvottorð frá LÍN er gott að hafa við hendina.
Tungumálið og námskeið
Í Finnlandi eru tvö opinber tungumál, finnska og sænska, og mögulegt er að sækja nær allt nám í þessum tungumálum. Eftir
að Finnar gengu í Efnahagsbandalagið hefur úrval aukist af námsgreinum kenndum á ensku (sjá heimasíðu CIMO). Örfáir skólar
kenna á sænsku eins og t.d. Åbo Akademi og Svenska Handelhögskolan, en kennsla á finnsku er algengust. Færni í finnsku er yfirleitt ekki skilyrði fyrir
inntöku í háskóla, en ætlast er til að þeir sem ljúka námsgráðum í Finnlandi hafi lokið ákveðnum fjölda
eininga í hinu opinbera tungumáli. Flestir háskólar bjóða upp á námskeið í bæði finnsku og sænsku fyrir erlenda
stúdenta, einnig er boðið upp á sumarnámskeið í finnsku auk þess sem hægt er að læra undirstöðuatriði í finnsku
hjá finnska sendikennaranum í Norræna húsinu. Nokkuð er um að grunnkúrsar séu kenndir á ensku eða sænsku og yfirleitt er
mögulegt að skila prófum og verkefnum á þessum tungumálum. Yfirleitt er hægt að bjarga sér á ensku eða sænsku. Sex af
hundraði finnsku þjóðarinnar hefur sænsku að móðurmáli og talar takmarkaða finnsku, sumir jafnvel enga. Í sumum litlum bæjum er
töluð sænska eingöngu.
Húsnæði
Erfitt getur verið að útvega húsnæði í lok sumars og haustbyrjun, sér í lagi á stúdentagörðum. Skólarnir veita
upplýsingar um húsnæðismál og umsóknir. Í Helsinki og nágrenni sér HOAS (Helsinki Student Housing Foundation) um flesta
stúdentagarða og best er að hafa samband við þá um leið og skólavist hefur fengist. Einnig er nokkuð um að nemendafélög leigi út
húsnæði til félagsmanna sinna. Styrkþegar geta athugað með húsnæði hjá Cimo.
Félagslegar aðstæður
Sex vikum eftir að lögheimilið hefur verið flutt til Finnlands ganga menn inn í almannatryggingakerfið. Vegna þessa 6 vikna biðtíma er betra að hafa
með sér vottorð E 104 frá Tryggingastofnun ríkisins. Þeir sem skráðir eru í háskóla geta notað sér heilsugæslu
og
læknaþjónustu skólanna gegn vægri greiðslu. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
Námsmenn hafa sama rétt og aðrir til dagheimilisplássa og fer greiðsla eftir fjárhag foreldra.
Verði á máltíðum í mötuneytum skólanna er haldið niðri með niðurgreiðslum frá ríkinu.
Hægt er að sækja um húsnæðisstyrk frá KELA/FPA (Folkpensionsantalen).
Mikilvægt varðandi LÍN
Um áramót er mikilvægt að námsmaður sendi inn til LÍN upplýsingar um tekjur og skatta liðins árs í námslandinu, hafi hann
haft tekjur þar. Nóg er að senda inn afrit af síðasta launaseðli eða uppgjöri frá vinnuveitanda. Þetta er til að koma veg fyrir að
námsmaður lendi í því að þurfa að greiða til baka hluta af námsláni sínu vegna vanáætlaðra tekna. Þegar
uppgjörið frá skattayfirvöldum kemur að hausti, þarf einnig að senda það inn til lánasjóðsins.
Margir Íslendingar eiga þess kost að fá námsaðstoð frá öðrum norrænum lánasjóði en þeim íslenska.
Mikilvægt er að brýna fyrir fólki að ekki má þiggja námsaðstoð frá tveimur lánasjóðum samtímis og skiptir
þá engu hvort um lán eða styrk er að ræða. Einnig er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að skipti það
um lánasjóð á námstímabilinu lendir það að öllum líkindum í að borga af lánum beggja sjóðanna
samtímis.
Lánað er að jafnaði til framfærslu í 9 mánuði á ári, þ.e. meðan ætlað er að skólastarfið standi yfir. Oft
er raunin hins vegar sú að skólinn starfar lengur. Hægt er að sækja um lán fyrir allt að tveimur aukamánuðum geti námsmaður
sýnt fram á að námið sé lengra, enda leggi hann fram vottorð frá skóla um síðasta prófdag.
Frekari upplýsingar
CIMO, veitir allar almennar upplýsingar um nám í Finnlandi. Hægt er að panta eftirfarandi bæklinga endurgjaldslaust:
Study in Finland: international programmes in Finnish higher education.
Higher education in Finland: an introduction.
Suomea Finska Finnish: a brief guide to studies in Finnish language and culture.
Living in Finnland: a practical guide for international students and trainers.
Polytechnics in Finland: a brief guide.
Upplýsingastofa um nám erlendis.
Finnski sendikennarinn í Norræna húsinu.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um nám í Finnlandi:
http://www.cimo.fi
Upplýsingar um háskóla:
http://www.cimo.fi/english/adv.html
Upplýsingar um námskeið kennd á ensku:
http://www.cimo.fi/english/intprog.html
Leiðbeiningar fyrir erlenda námsmenn í Finnlandi:
http://www.syl.fi/english/study/
Sendiráðið í Helsinki:
http://www.iceland.org/fi/
Stúdentagarðar:
http://www.hoas.fi
Finnska tryggingastofnunin – húsnæðisstyrkur ofl:
http://www.kela.fi
Helsinkiháskóli:
http://www.helsinki.fi
University of Art and Design:
http://www.uiah.fi
Síbelíusarakademian:
http://www.siba.fi
Félag Íslendinga í Finnlandi:
http://www.isfinn.com/
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315. Netfang: sine@sine.is
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is
• Finnska sendiráðið, Túngata 30 , 101 Reykjavík., p.box 1060, 121 Reykjavík. Sími: 510 0100, fax: 562 3880. Opið 9:00 – 12:00.
• Finnski sendikennarinn, Norræna húsinu, 101 Reykjavík. Sími: 525 4044.
• Sendiráð Íslands í Helsinki, Erottajankatu 5, 00130 Helsinki. Sími: (9) 6122 4614, (9) 612 2460, fax: (9) 6122 4620. Netfang: paivi.kumpulainen@islanti.fi.
• CIMO (Centre for International Mobility), P.O.Box 343, Hakaniemenkatu 2 (Hagnäsgatan 2), 00531 Helsinki. Sími: (9) 7747 7033. Netfang: cimoinfo@cimo.fi.
• Foreign Student Advise við Háskólann í Helsinki, Robert Ramberg, P.O.Box 3, SF–00014, University of Helsinki.
• Félag Íslendinga í Finnlandi (FIF), Albert Sigurðsson, Kirsitie 4E, 00760 Helsinki.
• HOAS (stúdentagarðar). Asemapäällikönktu 1, 00521 Helsinki. Sími: (9) 549900, símsvari: (9) 549 9021, fax: (9) 54990345. Netfang: asuntopalvelu@hoas.fi
• Tungumálanámskeið: Instruction in Finnish for foreigners, Undervisningsministeriet, Sjötullsgt. 10, p.b. 293, 00171 Helsingfors. Sími: (9) 134171, 478714, fax:
(9) 135 9335.
• Eimskip: OY Nielsen Global Freight Corporation, Marianne Blechtngberg, P.O. Box 302, SF-01380 Vantaa. Sími: (9) 17291, fax: (9)1729257.
• FPA (folkepensionsantalen), P.o.box 450, 00101 Helsingfors. Sími: (9) 434 7766.
• Samskip: Oy Victor EK. AB, P.O. Box 169, SF-00161 Helsinki. Sími: (9) 12511, fax: (9) 655570.
• Flugleiðir: Frederiksgatan 25 A 25, 6.h, 00120 Helsinki. Sími: (9) 612 6070, fax: (9) 612 60760.






