Samband íslenskra námsmanna erlendis

 Noregur Umsóknarfrestur og umsóknarmáti Skólaárið í Noregi er frá síðari hluta ágústmánaðar fram í miðjan júní og skiptist í 2 annir. Það er svolítið

SÍNE 50 ára

Handbókin - Noregur

 Noregur

Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið í Noregi er frá síðari hluta ágústmánaðar fram í miðjan júní og skiptist í 2 annir. Það er svolítið mismunandi eftir skólum hvenær umsóknarfrestur rennur út. Í flestum tilfellum þarf þó að vera búið að sækja um fyrir 15. apríl ár hvert fyrir haustönn og 15. nóvember fyrir vorönnina. Umsóknin sendist til: Samordnet opptak, Postbox 1175 Blindern, N-0137 Oslo. Umsóknareyðublöð fást hjá Norska sendiráðinu og á Upplýsingastofu um nám erlendis. Athugið að búast má við að nám frá Íslandi sé vanmetið og því skal fólki bent á að láta fylgja umsókninni lýsingu á innihaldi námskeiða.
 
Skólakerfið, inntökuskilyrði, takmarkanir
 Í Noregi eru þrjár gerðir háskóla: venjubundnir háskólar (universitet), fagháskólar og héraðsháskólar (högskole), sem bjóða upp á styttri starfsmenntun. Inntökuskilyrðið í nám á háskólastigi í Noregi er stúdentspróf eða sambærilegt próf. Einnig er í sumum skólum krafist norskukunnáttu og þurfa nemendur þá að hafa staðist hið svokallaða „Bergen-test“, til að fá inngöngu. Við inntöku í ákveðnar tæknigreinar þarf oftast að hafa góðan bakgrunn í stærðfræði, efna- og eðlisfræði. Starfsreynslu er stundum krafist, eða hún eykur líkurnar á inntöku, á svipaðan hátt og góðar einkunnir. Starfsreynsla, 23 ára aldur og góð framhaldsskólamenntun í ákveðnum greinum getur stundum komið í stað stúdentsprófs. Þetta á sérstaklega við um héraðsháskólana (högskoler).
 
Listnám:
 Við inngöngu í listnám er í flestum tilvikum krafist inntökuprófa og eru fjöldatakmarkanir viðhafðar. Listnám í Noregi tekur 2-6 ár allt eftir því um hvaða svið er að ræða. Þannig tekur t.d. 3 ár að ljúka „Sceneinstruktør“, 4 ár að ljúka myndlistarnámi og 6 ár að ljúka „cand. musicae.“

Námsgráður í háskólum
 Skólinn setur engin tímamörk á hve langan tíma þarf til að ljúka námi. Nemendur taka próf þegar þeir telja sig vera tilbúna. Allir nemendur verða að ljúka undirbúningsnámi sem vanalega tekur eina önn og leiðir til „Examen Philosophicum“. Undantekningar frá þessu eru þeir nemendur sem stunda nám við „Norges Tekniske Høgskole“.
 Candidatus Magisteri-(Cand. mag.) er lægri námsgráða sem nemendur í hugvísindum, félagsvísindum og raunvísindum öðlast eftir a.m.k. 4–5 ár.
 Candidatus (cand. philol., cand. polit., cand. scient. ) eru námsgráður sem nemendur í hugvísindum, félagsvísindum og raunvísindum geta öðlast eftir að hafa bætt við sig 2 árum eftir cand.mag.-gráðuna. Nokkrir háskólar bjóða upp á alþjóðlega mastersgráðu og er það 2 ára viðbót ofan á BA- eða norsku Cand.mag.-gráðuna.
Starfsgráðum eins og cand. jur., cand.med., cand.odont., cand. theol, og cand. psychol. er hægt að ljúka á 4 - 6 ½ árum .
 Doctor (dr. art., dr. polit., dr. psychol., dr scient., dr. ing. og dr. legis.) er námsgráða sem nemendur geta öðlast eftir að hafa bætt við sig 2 ára námi eftir að hafa öðlast þær námsgráður sem á undan eru taldar.

Námsgráður innan héraðsháskóla
 Í Noregi er nokkur fjöldi héraðsháskóla sem bjóða nám sem tekur styttri tíma en það sem í boði er í háskólum. Oft er um að ræða starfsnám. Námið tekur  2-4 ár eftir að nemendur hafa lokið stúdentsprófi.
 Nemendur, sem eru í námi sem tekur 2 ár hljóta námsgráðuna háskólakandidat (høgskolekandidat). Sumir skólarnir kenna námsgreinar sem samsvara lægra stigs háskólagráðu.

Skólagjöld og styrkir
 Skólagjöld eru engin við ríkisrekna skóla, eingöngu innritunargjöld. Í öðrum skólum (t.d. einkareknum skólum) er krafist skólagjalda og þarf oft að greiða hluta þeirra með umsókninni. Einn styrkur er veittur árlega til íslensks nemanda, til framhaldsnáms í Noregi og skal hann hafa lokið minnst tveggja ára háskólanámi utan Noregs. Upplýsingar fást hjá menntamálaráðuneytinu. Ellen Gleditsch-styrkurinn er veittur íslenskum konum til framhaldsnáms og rannsókna. Upplýsingar um hann og umsóknareyðublöð fást á Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins.
 Norsk stjórnvöld veita nokkra starfsmenntunarstyrki sem bjóðast iðnaðarmönnum og þeim sem starfa í iðnaði, til framhaldsnáms í iðngreinum sem ekki eru kenndar á Íslandi. Einnig fást styrkir til lýðháskóla og menntaskólanáms. Upplýsingar fást hjá menntamálaráðuneytinu.

Að skrá sig í landið
 Ekki er nauðsynlegt fyrir námsmenn að flytja lögheimili sitt þegar farið er til Noregs í nám. Ef lögheimili er ekki flutt heldur námsmaður réttindum sínum á Íslandi en öðlast að sama skapi engin réttindi í Noregi. Vilji námsmaður öðlast réttindi í Noregi ber hann að hafa með sér samnorrænt flutningsvottorð sem fæst hjá Hagstofu Íslands, Skuggasundi 3, 150 Reykjavík. Skráning fer svo fram á „Folkeregistret" í þeirri borg sem námið er stundað. Sex vikum eftir skráningu gerist maður sjálfkrafa meðlimur í sjúkrasamlaginu og getur valið sér heimilislækni. Heilsugæsla er með svipuðu sniði og á Íslandi.

Tungumál og námskeið
 LÍN lánar ekki til náms í norsku. Málið reynist Íslendingum oft erfitt í fyrstu og er óhætt að mæla með því að fara á norskunámskeið. Auðvelt er að komast á slík námskeið með litlum fyrirvara. Athugið að mörg námskeið eru sniðin fyrir aðra en Norðurlandabúa og henta því ekki Íslendingum.

Húsnæðismál
 Allir nemendur við háskólana í Osló geta sótt um húsnæði hjá „Studentsamskipnaden“ í Osló (SiO). Hér er um að ræða einstaklingsherbergi með baði og aðgangi að eldhúsi með nokkrum öðrum, eins herbergis íbúðir, sem ætlaðar eru barnlausum pörum og litlar tveggja herbergja íbúðir fyrir barnafólk. Umsóknir til „Studentsamskipnaden“ þurfa að berast fyrir 30. júní og fást umsóknareyðublöð hjá Upplýsingastofu um nám erlendis og hjá SiO (sjá heimilisfangalista). Ekki er ráðlegt að hafna íbúð sem manni er úthlutað því það getur frestað nýrri úthlutun töluvert. Oft er betra að taka því sem fæst og sækja síðar um flutning á milli staða.
 Einnig geta einstaklingar sótt um herbergi á Blindern, á sjálfu háskólasvæðinu. Þar deila 2 herbergi og fullt fæði er innifalið í leiguverðinu.
 Nemendur í öðrum skólum í Osló geta sótt um hjá Yrkeskolens Hybelhus (Anker Studentboliger). Ef áætlað er að fara út að hausti er best að senda inn umsókn í maí/júní þar sem langir biðlistar myndast. Annars er tekið við umsóknum allan ársins hring.
 Svipað fyrirkomulag er í öðrum borgum Noregs og ættu námsmenn að senda inn umsóknir með góðum fyrirvara. Húsnæði á stúdentagarði er aðeins tryggt í eitt til eitt og hálft ár og geta menn þá þurft að víkja fyrir nýjum námsmönnum. Húsaleigustyrk (bostøtte) fá menn ekki hjá „boligetaten“ nema húsaleiga sé mjög há og börn á heimilinu. Upplýsingastofa um nám erlendis hefur umsóknareyðublöð fyrir alla helstu stúdentagarða.

Félagslegar aðstæður
Sex vikum eftir að skráning hefur farið fram á „Folkeregistret" (þ.e. hafi menn flutt lögheimili sitt), verða menn aðilar að almannatryggingunum og njóta svipaðrar þjónustu og norskir ríkisborgarar. Þá þarf að fara á næstu heilsugæslustöð (helsesenter) og fá heimilislækni, en barnaeftirlit er hjá „helsestationen". Barnabætur fást þegar börn hafa verið skráð hjá tryggingaskrifstofu (trygdekontoren) í viðkomandi bæjarfélagi. Vegna hins 6 vikna biðtíma er rétt að taka með sér vottorðið E-104 frá Tryggingastofnun ríkisins. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
 Hægt er að sækja um barnaheimilispláss hjá bæjarskrifstofunni (kommunen) og „Studentsamskipnaden“, einnig eru til foreldrarekin barnaheimili. Munið að sækja tímanlega um leikskóla, skóla og heilsdagsskóla fyrir börnin. Umsóknarfrestur er 15. apríl fyrir haustönn og 15. nóvember fyrir vorönn. Sótt er um hjá viðkomandi skólum og leikskólum. Börn í Noregi ganga í skóla frá 6 ára aldri.

Mikilvægt varðandi LÍN
Um áramót er mikilvægt að námsmaður sendi inn til LÍN upplýsingar um tekjur og skatta liðins árs í námslandinu, hafi hann haft tekjur þar. Nóg er að senda inn afrit af síðasta launaseðli eða uppgjöri frá vinnuveitanda. Þetta er til að koma veg fyrir að námsmaður lendi í því að þurfa að greiða til baka hluta af námsláni sínu vegna vanáætlaðra tekna. Þegar uppgjörið frá skattayfirvöldum kemur að hausti þarf einnig að senda það inn til lánasjóðsins.
Margir Íslendingar eiga kost á að fá námsaðstoð frá öðrum norrænum lánasjóði en þeim íslenska. Mikilvægt er að brýna fyrir fólki að ekki má þiggja námsaðstoð frá tveimur lánasjóðum samtímis og skiptir þá engu hvort um lán eða styrk er að ræða. Einnig er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að skipti þeir um lánasjóð á námstímabilinu lenda þeir að öllum líkindum í að borga af lánum beggja sjóðanna samtímis.
Lánað er til framfærslu í 9 mánuði á ári, þ.e. meðan ætlað er að skólastarfið standi yfir. Oft er raunin hins vegar sú að skólinn starfar í fulla 10 mánuði ársins. Hægt er að sækja um lán fyrir tíunda mánuðinum geti námsmaður sýnt fram á að námið sé lengra, enda leggi hann fram vottorð frá skóla um síðasta prófdag.


Frekari upplýsingar

Higher education in Norway, National academic centre, 1996.

Student 97: Utdanningstilbud ved universiteter og høgskoler. Universitetsforlaget 1995. Gefin út árlega.

Upplýsingastofa um nám erlendis.

Norska sendiráðið í Reykjavík.

Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.

Vefföng

Heimasíða SÍNE:
 http://www.sine.is
Upplýsingar varðandi umsóknir um háskóla í Noregi:
http://www.so.uio.no
Háskólinn í Osló:
http://www.uio.no
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu

Heimilisföng

• SÍNE, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Norska sendiráðið á Íslandi, Fjólugata 17, 101 Reykjavík, p.box 250, 121 Reykjavík. Símar: 520 0700, fax: 552 9553. Opið kl. 9:00–12:00.
• Sendiráð Íslands í Noregi, Stortingsgaten 30, 0244 Oslo. Sími: 2283 3435, fax: 2283 0704. Opið kl.9:00–16:00. Netfang: icemb.oslo@utn.stjr.is.
• Skráning í Osló: Folkeregisteret, Hagegata 23, N 0653 Oslo. Sími: 8154 4466, fax: 2266 1950.
• Skattkort: Likningskontoret í Osló, Hagegata 22/23, 0653 Oslo. Sími: 8154 4455, fax: 2268 8568.
• Stúdentagarðar: Studentsamskipnaden í Oslo Studentboligene, Sognsvei 85, N-0858 Oslo. Sími: 2218 8335, fax: 2223 5365.
• Yrkeskolen Hybelhus/Anker Studentboliger, Storgaten 55 N-0182 Oslo. Sími: 2299 7300, fax: 2299 7320.
• Dagheimilispláss: Studentbarnehagene, Postboks 94, Blindern, N-0314 Oslo. Sími: 2259 6800.
• Félagsráðgjöf: Sosionomtjeneste, Studentsamskipnaden í Oslo, Administrasjonsbygg, 4. etasje, Postboks 28, Blindern, N-0313 Oslo. Sími: 2285 3327, fax: 2285 3322.
• FÍSN (Félag íslenskra námsmanna í Osló og nágrenni), Guðrúnarstofa, p.box 5140, Sogn Studentby, 0858 Oslo. Sími: 2218 8755.
• Íslendingafélagið í Osló, Samfunnshuset, Arbeidersamfunnets plass 1, 0181 Oslo. Sími: 2220 0991, fax: 2220 0574.
• Norskunámskeið: Rosenhoff Voksenopplæringssenter, Dynekilgate 10, 0569 Oslo. Sími: 2238 7700, fax: 2238 7799.
• Flugleiðir í Osló: Icelandair, Munkedamsveien 45 (oppg. C, 2. hæð), 025 Oslo. Sími: 2283 3570, fax: 2283 3575.
• Eimskip í Fredrikstad: Andersen & Mörck A/S, Liner Agents,Postboks 1144, 1631 Gamle Fredrikstad. Sími: 6935 8500, fax: 6932 2027.
• Eimskip í Tromsø: Eimskip Norge, Seminarbakken 4, 9008 Tomsø. Sími: 7761 0508, fax: 7761 0509. Netfang: sts@eimskip.no.
• Samskip Bodø: Tollbugata 9/11, 4 etasje, 8006 Bodø. Sími: 7550 8010, fax: 7550 8015.
• Samskip Moss: Moss Maritime Senter, Postboks 412, 1501 Moss. Sími: 6924 1115, fax: 6924 1116.
• Samskip Trondheim: Transittgaten 14, 7040 Trondheim. Sími: 7350 7030, fax: 7350 7031. Netfang: samskip@samskip.no.

 

 

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf