Rússland og fyrrverandi ríki Sovétríkjanna
Almennt
Áður en lengra er haldið ber að taka fram að allar aðstæður eru mjög hröðum breytingum háðar í Rússlandi og hinum
fyrrverandi ríkjum Sovétríkjanna. Þessi umfjöllun er miðuð við Rússland en fyrir þá sem áhuga hafa á að komast
í nám til annarra ríkja sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum er bent á sendiráð þeirra ríkja á
Norðurlöndum. Líklegt má telja að auðveldast sé að komast í nám til Eystrasaltsríkjanna, Eistlands, Lettlands og Litháen og
ríkjanna sem eru í Evrópuhluta hinna fyrrverandi Sovétríkja, svo sem Hvíta-Rússlands og Úkraínu.
Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Til þess að nálgast upplýsingar um rússneska háskóla er t.d. hægt að hafa samband við rússneskudeildir Háskóla
Íslands eða háskóla á Norðurlöndum, en þangað senda slíkir skólar oft upplýsingar um nám og námskeið.
Skólakerfið
Skólaárið í Rússlandi er frá byrjun september til júní. Nám til BA-prófs (bakalavr) tekur 3 ½ - 4 ár en til
MA-prófs (magistr) 2 - 3 ár í viðbót. Nám í raunvísindum og tæknigreinum tekur 5 - 6 ár og lýkur með Diploma.
Það eru nokkrar gerðir stofnana á háskólastigi í Rússlandi. Það sem greinir á milli þeirra eru mismunandi áherslur
á rannsóknir, starfsmenntun o.s.frv. Athuga ber að vegna fjárskorts og ringulreiðar í þjóðfélaginu sem og í stofnunum þess
tilheyrir ágæti rússneskra háskóla sögunni til í mörgum tilfellum. Vilji fólk hinsvegar læra rússnesku er Rússland að
sjálfsögðu besta landið til þess.
Inntökuskilyrði og takmarkanir
Stúdentspróf þarf til að komast í framhaldsnám í rússneska háskóla. Fyrir þá sem hafa áhuga á að
komast í framhaldsnám í Rússlandi í öðru en tungumálinu skal bent á nauðsyn þess að ná góðum tökum
á málinu. Því er eflaust best að eyða einu ári í að læra málið og þá gefst einnig gott tækifæri til
að velja skóla og námsbraut. Ef hins vegar er verið að hugsa um nám í rússnesku er eflaust hægt að komast í slíkt án
þess að hafa stúdentspróf.
Skólagjöld og styrkir
Skólagjöld í Rússlandi fara síhækkandi fyrir útlendinga og voru á bilinu 2.000 – 3.000 dollarar fyrir skólaárið 1998
-1999.
Það er tiltölulega auðvelt að verða sér úti um styrk til náms í Rússlandi. Fyrir skólaárið 1999 -2000 voru
auglýstir 10 styrkir til handa Íslendingum og eru það rússnesk stjórnvöld sem veita þessa styrki. Sá styrkur nemur skólagjöldum og
83,49 rúblum á mánuði (417,45 rúblum ef um framhaldsnám er að ræða) sem nægir varla fyrir brauði. Þar sem efnahagurinn er á
sífelldri niðurleið er ekki víst hvort framhald verði á þeim styrk. Norræna ráðherranefndin veitir styrki til norðvesturhluta
Rússlands, Pétursborgar og Tver.
Að skrá sig í landið
Til að komast inn í Rússland þarf vegabréfsáritun. Til að fá slíka áritun hjá Rússneska sendiráðinu í
Reykjavík er best fyrir námsmanninn að fá heimboð (eða staðfestingu) frá skólanum sem hann hyggst stunda nám við. Einnig er
eyðniprófs krafist sem staðfestir að usækjandi hafi ekki HIV- veiruna. Best er að sækja um vegabréfsáritun fyrir ríflega þann tíma
sem maður hyggst vera í landinu því töluvert umstang er að fá vegabréfsáritun framlengda þegar komið er út. Ekki er mælt
með því að láta áritunina renna út og ætla síðan að fara úr landi.
Húsnæði
Stúdentagarðar eru til staðar og er tiltölulega ódýrt að búa þar en aðstaðan er fremur bágborin. Það getur þó
verið ágætt að byrja þar búsetuna og leita að íbúð í framhaldinu. Yfirleitt er best að finna leiguíbúðir í
Rússlandi þegar komið er á staðinn því þá er auðveldara að átta sig á staðsetningu þeirra og verði.
Íbúðarverð er mjög misjafnt og oft getur verið snúið að finna leigusala sem ekki vill þéna aukalega á útlendingum. Almennt er
allt dýrara fyrir útlendinga. Algengt er að stúdentar búi inn á fjölskyldum og getur það verið heppilegt með tilliti til
tungumálsins og það kostar svipað og stúdentagarðarnir. Almennt er húsnæðiskostur slæmur á okkar mælikvarða.
Félagslegar aðstæður
Vegna örra breytinga á síðustu árum eru aðstæður óðum að líkjast meira því sem við eigum að venjast á
Vesturlöndum. Þótt lífskjör þorra almennings eigi enn langt í land til þess sem Íslendingar eru vanir er aðalástæðan ekki
lengur sú að ekkert sé til í verslunum heldur miklu frekar sú að meðallaun eru afar lág. Í stórborgum eins og Moskvu og St.
Pétursborg er hægt að fá allt milli himins og jarðar í verslunum, en þá er verðið líka orðið hátt. Stéttaskipting
í Rússlandi er geysileg og vöntun er á millistétt.
Í flestum borgum er bankaþjónusta þar sem vestræn greiðslukort eru gjaldgeng. Margir einkabankar hafa orðið gjaldþrota á undanförnum
árum en ríkisbankinn „Sberbank“ hefur útibú um allt Rússland og er langöflugasti banki landsins. Aðstæður gætu hins vegar
verið erfiðari í smærri borgum úti á landi.
Heilbrigðisþjónusta í Rússlandi á að vera svo gott sem ókeypis. Margir Vesturlandabúar eru þó ragir við að notfæra
sér hana þar sem sjúkrahús eru oft illa tækjum búin vegna fjárskorts, hreinlæti er stundum ábótavant og aðbúnaður
allur verri en tíðkast á Vesturlöndum. Nú eru starfandi vestrænar læknastöðvar í Moskvu og fleiri stöðum í Rússlandi
þangað sem hægt er að leita gegn greiðslu og er eindregið mælt með að útlendingar nýti sér þessa þjónustu ef
eitthvað kemur upp á. Ef farið er til skemmri dvalar ætti venjuleg ferðatrygging að duga en ef farið er til lengri dvalar er hægt að kaupa sér
tryggingu þar sem gert er ráð fyrir að viðkomandi sé fluttur til næsta vestræna lands ef eitthvað alvarlegt kemur uppá. Flytji
námsmaður ekki lögheimili sitt heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með
námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta. Athuga þarf hvort þessi trygging dugi
eða hvort nauðsynlegt sé að kaupa sér aukatryggingu. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
Mikilvægt varðandi LÍN
Sé farið til Rússlands í annað nám en rússnesku er veitt lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í allt að
tvö misseri (þrjá fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er skilyrðisbundið því að
áframhaldandi nám verði stundað í Rússlandi. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í
áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins. Athugið einnig að gefið er út sér skuldabréf fyrir þetta
lán. Því þarf að ganga frá nýju skuldabréfi fyrir lán sem veitt er fyrir áframhaldandi nám.
Frekari upplýsingar
Russian universities, ICIEP 1994.
Studienfuhrer Russische Federation, DAAD 1994.
Upplýsingastofa um nám erlendis.
Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.
Vefföng
Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Moskvuháskóli:
http://www.msu.ru
Háskólinn í St. Pétursborg:
http://www.spbu.ru
Upplýsingar um Rússland:
http://www.geocities.com/Colosseum/Track/7635/russians.html
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Heimilisföng
• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Háskólatorgi, Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Rússneska sendiráðið á Íslandi, Garðastræti 33, 101 Reykjavík, p.box 380, 121 Reykjavík. Sími: 551 5156, 562 0455, fax: 562
0633. Netfang: russemb@itn.is. Opið 8: 00-12:00 og 13:00-17:00.
• Íslenska sendiráðið í Moskvu, Khlebnyi Pereulok 28. Sími: (503 eða 095) 956 7604/5/6,
fax: (503 eða 095) 956 7612. Netfang: icemb.moscow@utn.stjr.is. Opið 9:00-17:00.
• Pétursborgarhálskóli, b/t A.P Efimov. Netfang: Ae1635@spb.edu.
• Pétursborgarháskóli, námskeið fyrir útlendinga (hér þarf ekki stúdentspróf, bara dollara). Netfang: center@oe1332.spb.edu.







