Samband íslenskra námsmanna erlendis

Spánn Umsóknarfrestur og umsóknarmáti  Skólaárið er frá október til júní. Nám við háskóla á Spáni tekur 3 ár til BA-gráðu (diplomatura) og 5 ár til

Handbókin - Spánn

Spánn

Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
 Skólaárið er frá október til júní. Nám við háskóla á Spáni tekur 3 ár til BA-gráðu (diplomatura) og 5 ár til masters-gráðu (licenciatura). Fyrstu þrjú árin er námið frekar almenns eðlis, en verður sérhæfðara þegar á líður.
 Best að hefja undirbúning um áramót eða fyrr vegna umsóknar um haustmisseri. Þá þarf að skrifa til þess skóla sem menn hafa augastað á og biðja um upplýsingar og umsóknareyðublöð. Lokaumsókn þarf að vera komin til háskólans í júní. Fyrir þann tíma er best að vera búinn að fá skýringar á öllum vafaatriðum í sambandi við skólagöngu, eins og t.d. möguleika á að fá fyrra nám metið. Benda má á, að í ágúst eru skrifstofur skólanna venjulega lokaðar.

Inntökuskilyrði og takmarkanir
Íslendingar hafa á Spáni sömu réttindi til náms og íbúar Evrópusambandsríkja. Þetta felur í sér að að stúdentspróf er tekið til greina sem jafngildi Selectividad.  Hver háskóli leggur fyrir sérstakt próf (Selectividad) í hverri grein. Það þarf að sækja um credencial hjá UNED (Universidad Nacional de Educación a Distancia) það er skjal þar sem fram kemur meðaleinkunn á stúdentsprófi og er sú einkunn tekin jafngild meðaleinkunn Spánverja í Selectividad.  Til að fá þetta skjal þarf að sækja um það á síðu UNED (www.uned.es) og borga útgáfugjald (2008: 40 evrur, hægt að borga með korti í gegnum sjálfa vefsíðuna eða í gegnum hvaða spænska bankaútibú sem er).  Ef þú borgar í gegnum vefsíðuna þarftu að prenta út kvittunina.  Næsta skref er að senda nauðsynleg skjöl til UNED í pósti, en það þarf að senda ljósrit af vegabréfi (eða spænsku skilríki ef maður er með það), ljósrit af stúdentsprófseinkunum og skírteini, löggilda skjalaþýðingu á þessum skjölum og afrit af kvittuninni fyrir útgáfugjaldið.  Öll ljósrit þurfa að vera staðfest afrit af frumriti (staðfestingu má fá á skrifstofum UNED, samstarfsaðilum þeirra eða sendiráðum).  La credencial er sent í pósti til námsmannsins og getur með því sótt um háskólanám á Spáni.  Aðeins er hægt að fá gildar tvær inngönguleiðir á credencial og þarf því að velja hvort hentar betur.  Inngönguleiðirnar eru eftirfarandi:  Científico-Tecnolígica (Vísindagreinar), Ciencas de la Salud (Heilbrigðisgreinar), Humanidades (Hugvísindi), Ciencas Sociales (Félagsvísindi) og Artes (Listgreinar).

Skjalið (credencial) er aðeins gilt í eitt ár, ef maður vill sækja um annan skóla/aðra námsgrein næsta ár, þarf að fá nýtt credencial útgefið.  Til að fá það endurútgefið þarf hins vegar aðeins að sækja um á netinu (eins og ef um nýtt væri að ræða) og senda UNED ljósrit af  gamla skjalinu ásamt kvittun fyrir útgáfugjaldi.

Að fá fyrra nám metið getur verið svolítil pappírsvinna og þarf að fara beint í gegnum deild viðkomandi háskóla.  Það er að verða auðveldara þar sem bæði Ísland og Spánn hafa tekið upp ECTS eingakerfið.

Tungumálið og námskeið
 Á Spáni er mikið framboð af spænskunámskeiðum fyrir útlendinga, m.a. við útlendingadeildir háskólanna. Þessi námskeið eru ekki dýr. Engin inntökuskilyrði eru til að hefja nám í spænsku við útlendingadeildir háskólanna. Best er að skrifa skólunum beint og biðja um upplýsingar. Margir menntaskólanna hér á landi kenna spænsku. Við Háskóla Íslands er kennd spænska til BA-prófs.
 Spænska (kastiliska) er ekki eina málið sem talað er á Spáni. Í Katalóníu (Barcelona og nágrenni) er katalónska opinbert tungumál en spænskan er samt fullgild þar. Búast má við að kennarar þar kenni á katalónsku. Í Baskahéruðunum er talað baskamál, sem er alls óskylt spænsku.

Skólagjöld og styrkir
 Í ríkisháskóla þarf að greiða skólagjöld en þau eru ekki mjög há. Einn níu mánaða styrkur er boðinn fram árlega handa Íslendingum, af spænska utanríkisráðuneytinu. Upplýsingar um hann fást í „Handbók um styrki“, sem gefin er út af Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, og á ræðismannsskrifstofu Spánar í Reykjavík.

Að skrá sig í landið
 Sótt er um dvalarleyfi á næstu lögreglustöð þegar komið er til Spánar. Þar þarf að framvísa vegabréfi, fjárhagsvottorði og vottorði um að viðkomandi hafi fengið skólavist.

Húsnæðismál
 Húsnæði er víðast hvar nokkuð dýrt. Eitthvað er um stúdentagarða og er námsmönnum bent á að hafa samband við skrifstofur háskólanna til að fá aðstoð við húsnæðisleit. Upplýsingar um húsnæðismiðlanir fást hjá Upplýsingastofu um nám erlendis. Margir námsmenn leigja sér íbúðir tveir eða fleiri saman. Slíkt húsnæði er hægt að fá með því að athuga auglýsingar í blöðum eða skólum eða í gegnum leigumiðlanir. Þjónusta leigumiðlana er fremur dýr.

Félagslegar aðstæður
Heilbrigðisþjónusta er almennt góð en sjúkratryggingar eru nauðsynlegar, því læknisþjónusta er dýr. Tannlæknaþjónusta er fremur dýr. Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð á spænsku hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta og heitir það E-128. Sjá nánar kaflann um tryggingamál námsmanna erlendis.
 Börn sex ára og eldri ganga í skóla. Erfitt getur reynst að fá leikskólavist á sumum stöðum og er betra að gefa sér góðan tíma til að kanna það áður en skóli hefst.

Mikilvægt varðandi LÍN
Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í eitt misseri (tvo fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er bundið því skilyrði að áframhaldandi nám verði stundað á Spáni. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins.
 
Frekari upplýsingar

Guía de la Universidad. Gefið út árlega af Consejo de Universidades, Secretaría General í Madrid.

Directory of Higher Education Institutions in the European Community 1993. ERASMUS-skrifstofan í Brüssel.

Upplýsingastofa um nám erlendis.

Ræðismannsskrifstofa Spánar í Reykjavík.

Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.

Vefföng

Heimasíða SÍNE:
 http://www.sine.is
Upplýsingar um spænska háskóla:
http://internacional.universia.net/espanya/tips/eng.htm
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu

Heimilisföng

• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Sendiráð Spánar fyrir Norðurlönd, Oscarsgate 35, 0258 Oslo. Sími: 2255 2015, 2244 7122, fax: 2255 9822.
• Ræðismannsskrifstofa Spánar á Íslandi, Sigurður Gísli Pálmason, Kringlan 8-12, 3.h, 103 Reykjavík. Sími: 533 5100, fax: 553 5121.
• Aðalræðismaður Íslands í Barcelona, Sol Daurella Comadran, Cerdena 229-237, Sobreatico Tercera, 08013 Barcelona. Sími: (93) 232 5810, fax: (93) 246 5535.
• Aðalræðismaður Íslands í Madrid, José Maria Figueras-Dotti, Eurobuilding, Oficina 15, Juan Ramón Jiménez 8, 1A Planta, Madrid 28036. Sími: (91) 345 2059, fax: (91) 350 7883.
• Lektor í spænsku við HÍ, Margrét Jónsdóttir, Heimspekideild HÍ, Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Sími: 569 4300 (skiptiborð).
• Upplýsingaskrifstofa fyrir ungt fólk í Barcelona, (húsnæði, námskeið), C/Ferran 32, Barcelona.
• Eimskip í Bilbao:Ibesmar Norte S.A., C/Iparraguirre, 59-4°, 48980 Santurzi (Bizkaia). Sími: (94) 493 7130, fax: (94) 483 4158.
• Eimskip í Vigo: Joquin dacila y Cia. S.A., Pl. de Compostela, 17, 36201 Vigo. Sími: (9) 86 227700, fax: (9) 86 430123.
• Flugleiðir á Spáni: Icelandair Barcelona,  Sími: (1) 6281857, fax: (1) 6282182.
• Samskip í Bilbao , E. Erhardy Y Cia S.A., Ercilla 19, Po Box 134, 48009 Bilbao. Sími: (4) 454 0100, fax: (4) 425 0130.

 

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf