Samband íslenskra námsmanna erlendis

Svíþjóð Skólakerfið, umsóknarfrestur og umsóknarmáti Skólaárið er frá miðjum ágúst til byrjun júní. Hægt er að hefja háskólanám tvisvar á ári, í

SÍNE 50 ára

Handbókin - Svíþjóð

Svíþjóð


Skólakerfið, umsóknarfrestur og umsóknarmáti
Skólaárið er frá miðjum ágúst til byrjun júní. Hægt er að hefja háskólanám tvisvar á ári, í september og janúar. Nám í sænskum háskólum getur farið fram með tvennum hætti. Nám á „línu“ (lokaðaðar háskóladeildir) er fastmótað með takmörkuðu vali. Uppbygging námsins miðast við þarfir samfélagsins fyrir embættismenn og sérmenntað fólk. Lokapróf er starfsréttindapróf eða próf sem svarar til BA eða BS gráðu. Dæmi um „línu“nám er læknisfræði, tannlækningar, verkfræði og kennaranám, ásamt fleiru.
 Hin leiðin er opnar háskóladeildir, þar sem nemendur eru lítið undir eftirliti og geta valið sér námskeið eftir hentugleikum. Þeim er frjálst að mæta í próf þegar þeir telja sig tilbúna. Dæmi um greinar í opnum háskóladeildum er guðfræði, lögfræði, hugvísindi og margar félagsvísindagreinar.
 Í Svíþjóð er sameiginlegt umsóknarkerfi fyrir háskólanám þegar um „línu“nám er að ræða. Sótt er um skólavist til VHS (Verket för Högskoleservice). Umsóknarfrestur er 15. apríl fyrir haustönn en 15. október fyrir vorönn. Bæklingar VHS veita upplýsingar um „línur“ og hvert skal senda umsóknir. Þessir bæklingar fást hjá Sænska sendiráðinu og Upplýsingastofu um nám erlendis. Þegar sótt er sérstök námskeið eða þegar námsmaður hyggst byggja upp sitt eigið nám óháð „línum“ þurfa umsóknir að berast beint til skólanna og hafa þeir umsóknareyðublöð fyrir slíkt. Hið sama gildir um framhaldsnám á háskólastigi.
Listnám í Svíþjóð tekur 2–5 ár allt eftir því um hvaða svið er að ræða. Þannig er t.d. hægt að ljúka „Dans- och teaterutbildningar“ á 2-3 árum, „Sång- och musikutbildningar“ á 2–4 árum og „Konst-, design- och fotoutbildningar“ á 3–5 árum
 Allt nám á framhaldsstigi er byggt upp á einingum (poäng). Ein vinnuvika samsvarar 1 einingu og eru 20 einingar í einu misseri. Lengd náms á byrjunarstigum háskólanáms getur verið frá 40 einingum til 220 eininga (5 ½ ár).

Inntökuskilyrði, takmarkanir
Almennt er reglan sú að stúdentprófs er krafist eða annars prófs sem veitir rétt til háskólanáms á Íslandi. Einnig hafa þeir sem náð hafa 25 ára aldri og hafa minnst fjögurra ára starfsreynslu (t.d. við umönnun eigin barna), möguleika á að komast inn (25:4 reglan). Þessi regla gildir þó yfirleitt einungis um þá sem búið hafa a.m.k. í tvö ár í landinu. Þeir sem vilja komast inn á 25:4 reglunni eiga að fylla út sérstök eyðublöð með umsókn. Í sérnám geta inntökuskilyrði verið með öðrum hætti og í listnám er í flestum tilfellum krafist inntökuprófa, þar sem einnig eru fjöldatakmarkanir. Aðsóknin að háskólunum er mikil og fjöldi í hverri grein er takmarkaður. Þess vegna má búast við að sérkröfur séu gerðar til umsækjanda um einstakar greinar, t.d. kröfur um starfsreynslu eða próf af sérstökum sviðum mennta- og fjölbrautaskóla.

Skólagjöld og styrkir
Skólagjöld eru engin í ríkisskólum en einkaskólar krefjast skólagjalda.
 Menntamálaráðuneytið auglýsir fimm sænska starfsmenntunarstyrki sem eru ætlaðir iðnaðarmönnum eða þeim sem hafa unnið við listiðnað eða við sérhæfð störf í verksmiðjum. Einn ferðastyrkur er í boði og nokkrir styrkir til venjulegs háskólanáms. Sjá einnig „Handbók um styrki“ sem gefin er út af Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins.

Að skrá sig í landið
Nauðsynlegt er að hafa með sér samnorrænt flutningsvottorð sem fæst á Hagstofu Íslands, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík. Farið með það, fæðingarvottorð og giftingarvottorð á skattstofuna til skráningar og til að fá sænskt persónunúmer. Án þess númers er ekkert hægt að gera. Síðan skráið þið ykkur hjá sjúkrasamlaginu (forsäkringskassan). Eins og annars staðar á Norðurlöndunum er 6 vikna biðtími á að menn komist inn í sjúkratryggingakerfið og er því betra að hafa með sér vottorð E-104  frá Tryggingastofnun ríkisins.
Þegar persónunúmerið er fengið er hægt að fá nafnskírteini með mynd hjá viðskiptabanka eða á pósthúsi.
 Vegna þess tillits sem tekið er til starfsreynslu þegar umsóknir um námskeið eru metnar og eins vegna hugsanlegra tryggingabóta, þá ættu námsmenn að taka með sér launamiða og skattavottorð sem staðfesta starfsferil. Takið einnig með ykkur vottorð E-301 frá atvinnuleysistryggingasjóði til að yfirfæra réttindi til atvinnuleysisbóta. Ef menn hyggja á bílakaup ættu þeir að hafa með sér vottorð um bónus frá tryggingafélagi hér heima.

Tungumálið og námskeið
Auðvelt er að komast á sænskunámskeið hjá skólunum eða hjá námsflokkunum (kursverksamheten) með litlum fyrirvara.

Húsnæðismál
Í flestum stærri bæjum annast stúdentasamtökin húsnæðisþjónustu fyrir námsmenn. Þau eiga stúdentagarða og reka húsnæðismiðlun. Flestar tegundir íbúða og herbergja eru í boði.
 Nauðsynlegt er að sækja tímanlega um íbúð og láta fylgja með umsókninni vottorð um skólavist og fæðingarvottorð barna ef einhver eru. Sótt er um á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá Upplýsingastofu um nám erlendis. Hægt er að flytja inn mánuði eftir að svar berst. Úthlutunin miðast ekki við upphaf skólaárs og því getur íbúðin losnað of snemma eða of seint. Fjölskyldur og einstaklingar ættu að sækja um húsnæði a.m.k. einu ári áður en skólavist hefst og á þetta sérstaklega við um Gautaborg, Stokkhólm og Lund. Leigjendur geta sótt um húsaleigustyrk, (bostadsbidrag) til bæjarfélagsins. Upplýsingar gefur „Socialförvaltningen“.

Félagslegar aðstæður
Um tvenns konar barnagæslu er að ræða. „Daghem“ eru barnaheimili í íbúðahverfum þar sem barna er gætt frá því snemma á morgnana til 18:30 á daginn. „Familjedaghem“ eru dagmæður. Gjald fyrir barnagæslu fer eftir efnahag og aðstæðum foreldra. Það er mjög mismunandi eftir sveitarfélögum hversu langur biðtími er eftir því að fá pláss á dagheimili og hversu ung börn eru tekin inn. Meginreglan er sú að börn yngri en 6 mánaða fá ekki pláss og biðtími eftir plássi er sjaldnast meiri en ½ ár.
 Fimm og sex ára börn fara í forskóla þrjá tíma á dag. Skráið börn á skólaaldri í hverfisskólana strax og komið er til landsins og jafnvel fyrr ef hægt er. Fyrstu árin geta börn fengið inni á skóladagheimili eftir að skóla lýkur og þangað til foreldrar koma heim úr vinnu. Íslensk börn eiga rétt á aukatímum í sænsku ef þörf gerist sem og kennslu í íslensku en hana þarf að sækja um í skólunum.
 „Barnvårdcentraler“ sjá um allt sem viðkemur heilsugæslu barna. Þær eru í heilsugæslustöðvum í íbúðahverfum og ættu foreldrar að fara með börn sín þangað til skráningar og skoðunar.
 Hjá „Socialförvaltningen“ fæst bæklingur sem lýsir þeirri félagslegu þjónustu sem þú átt rétt á, „Samhällsservice för dig i kommun“. Ýmiss konar aðstoð fæst einnig hjá námsmannasamtökunum (studentkåren).

Mikilvægt varðandi LÍN
Um áramót er mikilvægt að námsmaður sendi inn til LÍN upplýsingar um tekjur og skatta liðins árs í námslandinu, hafi hann haft tekjur þar. Nóg er að senda inn afrit af síðasta launaseðli eða uppgjöri frá vinnuveitanda. Þetta er til að koma veg fyrir að námsmaður lendi í því að þurfa að greiða til baka hluta af námsláni sínu vegna vanáætlaðra tekna. Þegar uppgjörið frá skattayfirvöldum kemur að hausti þarf einnig að senda það inn til lánasjóðsins.
Margir Íslendingar eiga þess kost að fá námsaðstoð frá öðrum norrænum lánasjóði en þeim íslenska. Mikilvægt er að brýna fyrir fólki að ekki má þiggja námsaðstoð frá tveimur lánasjóðum samtímis og skiptir þá engu hvort um lán eða styrk er að ræða. Einnig er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að skipti þeir um lánasjóð á námstímabilinu lenda þeir að öllum líkindum í að borga af lánum beggja sjóðanna samtímis.
Lánað er til framfærslu í 9 mánuði á ári, þ.e. meðan ætlað er að skólastarfið standi yfir. Oft er raunin hins vegar sú að skólinn starfar í fulla 10 mánuði ársins. Hægt er að sækja um lán fyrir tíunda mánuðinum geti námsmaður sýnt fram á að námið sé lengra, enda leggi hann fram vottorð frá skóla um síðasta prófdag.

Frekari upplýsingar

Att studera vid universitet och högskolor,Verket för högskoleservice. Gefið út árlega.

Upplýsingastofa um nám erlendis.

Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum, eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á.

Vefföng

Heimasíða SÍNE:
http://www.sine.is
Upplýsingar um nám í Svíþjóð:
http://www.hsv.se 
http://www.passagen.se
SUNET – Sænska háskólasambandið:
http://www.sunet.se
Upplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu
Húsnæði í Gautaborg:
http://www.sgsbostader.com
http://www.familjebostader.goteborg.se
Stúdentagarðar í Karlstad:
http://www.studentbostader.karlstad.se
Húsnæði í Luleaa:
http://www.lulebo.se
Húsnæði í Skövde:
http://www.skovde.se
Húsnæði í Stokkhólmi:
http://www.sssb.se
http://www.sus.su.se
Stúdentagarðar í Umeaa:
http://www.bostaden.umea.se
Stúdentagarðar í Uppsölum:
http://www.dios.se

Heimilisföng

• SÍNE, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315, fax: 552 5370. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang: ask@hi.is.
• Sænska sendiráðið, Lágmúla 7, 108 Reykjavík, p. box 8136, 128 Reykjavík. Sími: 520 1230, fax: 520 1235. Netfang: sveamb@itn.is. Opið 9:00–12:00.
• Sendiráð Íslands í Stokkhólmi, Kommendörsgatan 35, 114 58 Stockholm. Sími: (8) 662 4016, (8) 667 2753, fax: (8) 660 7423. Netfang: icemb.stock@utn.stjr.is. Opið 9:00–16:00.
• VHS (Verket för högskoleservice), Box 12615, 11292 Stockholm. Sími: (8) 725 9600, fax: (8) 725 9601.
• LFA, Box 1054, 551 10 Jönköping.
• Eimskip í Gautaborg: Hjörtur Hjartarson, Stigbergsliden 5 B, 414 63 Göteborg. Sími: (31) 722 4545, fax (31) 128634. Netfang: hjh@eimskip.se.
• Eimskip í Helsingborg: Anderson Shipping AB, Fäktmästeregatan 5, Postboks 603, S-251 06 Helsingborg. Sími: (42) 175500, fax: (42) 219462 og (42) 175530. Netfang: hin@aship.se.
• Samskip í Varberg: Samskip AB, Hamnområdet P.O.Box 161, 432 24 Varberg. Sími: 340 678070, fax: 340 16760.
• Flugleiðir, Kungstensgatan 38 1.h., P.O. Box 6814, 113 86 Stockholm. Sími: (8) 690 98 00, fax: (8)311314. Netfang: sto@icelandair.is.

Stokkhólmur
• Húsnæði: SSSB, Stockholms studentbostäder (aðalskrifstofa), box 19608, 10432 Stockholm. Heimilisfang: Körsbärsvägon 2. Sími: (8) 458 1000, (8) 458 1010 (útleiga), fax: (8) 458 1015. Netfang: kontakt@sssb.se eða bc@sssb.se.
• Studentkår: Stockholms Studentskårers Centralorganisation (SSCO). Sími: (8) 674 5400, fax: (8) 674 7670.

Gautaborg
• Húsnæði: SGS, Bostadsexpeditionen, Utlandagatan 24, S-412 80 Göteborg. Sími: (31) 813360, fax: (31) 814820.
• Studentkår: FFS. Kårhuset, Götabergsgatan 17, S-411 34 Göteborg. Sími: (31) 166315.

Uppsalir
• Húsnæði: Studentstaden AB, Rackarbergsgatan 10, S-752 32 Uppsala. Sími: (18) 502120, fax: (18) 553359. Netfang: studentstaden@dios.se.
• Studentkår: Uppsala studentkår, Övre slottsgt. 7, 75310 Uppsala. Sími: (18) 4803100.

Lundur
• Húsnæði: Akademiska föreningens bostäder, AF, Box 799, S-220 07 Lund. Sími: (46) 191500, fax: (46) 139288.
• Studentkår: Lunds studentkår, Akademiska Föreningen, Sandgatan 2, S-223 50 Lund. Sími: (46) 2220440.

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf