Samband íslenskra námsmanna erlendis

Þýskaland Umsóknarfrestur og umsóknarmáti  Skólaárið er frá október til júlí. Því er skipt í vetrarmisseri, sem stendur frá október til febrúar

Handbókin - Þýskaland

Þýskaland

Umsóknarfrestur og umsóknarmáti
 Skólaárið er frá október til júlí. Því er skipt í vetrarmisseri, sem stendur frá október til febrúar og sumarmisseri, sem stendur frá apríl til júlí. Athugið þó að í Bæjaralandi byrja annirnar alltaf hálfum til einum mánuði seinna. Í München byrjar t.d. kennslan 1. nóvember. Umsóknarfrestur fyrir sumarmisseri er til 15. janúar og fyrir vetrarmisseri til 15. júlí. Sótt er um beint til skólanna. Umsóknareyðublöð er hægt að fá hjá „Akademisches Auslandsamt“ í viðkomandi háskóla, en einnig í Þýska sendiráðinu og á Upplýsingastofu um nám erlendis. Með umsóknum þarf að fylgja staðfest afrit af prófskírteini, sem fæst hjá nemendaskrifstofu viðkomandi háskóla. Einnig þarf að fylgja fjárhagsvottorð (fæst m.a. hjá LÍN) og stutt æviágrip á þýsku, „Lebenslauf“, þar sem lýst er námsferli og starfsreynslu.
 Starfsþjálfun er oft hluti af tækninámi og ef menn hafa unnið við störf skyld náminu er sjálfsagt að spyrjast fyrir um hvort og hvernig hægt sé að fá þau metin.

Skólakerfið, inntökuskilyrði og takmarkanir
 Stúdentspróf þarf til að komast í þýska háskóla. Einnig er gerð krafa um að umsækjandi standist inntökupróf í þýsku (PNDS) áður en nám hefst. Nemendur með íslenska háskólagráðu, sem hafa fengið inngöngu í framhaldsnám, ættu að athuga vandlega hvort nám þeirra, sem þeir hafa stundað hér á landi, sé metið að fullu. Engin skólagjöld eru við ríkisrekna skóla í Þýskalandi, aðeins innritunargjöld eins og í Háskóla Íslands. Fjöldatakmarkanir, „Numerus Clausus“, eru í ýmsum greinum, svo sem í læknisfræði, tannlækningum, dýralækningum, lyfjafræði, líffræði, næringarfræði, sálfræði, arkitektúr og landbúnaðarfræðum.

Námsgráður í háskólum og tilhögun náms:
 Námi í raunvísindum, verkfræði, viðskiptafræði og félagsvísindagreinum lýkur með diplom-prófi. Þar er áhersla lögð á eina aðalgrein, þótt aðrar greinar komi þar einnig inn.
 Í tungumálum og öðrum hugvísindagreinum, einnig að hluta í félagvísinda- og viðskiptagreinum lýkur námi með magister-prófi. Þá er venjulega um að ræða eina aðalgrein og tvær aukagreinar, eða að tvær aðalgreinar eru valdar.
 Námi í læknisfræði, tannlækningum, dýralækningum, lyfjafræði, lögfræði, svo og kennaranámi, lýkur með Staatsprüfung eða Staatsexamen.
 Fyrstu misserin er um að ræða grunnnám (Grundstudium), sem er nokkuð almenns eðlis og er oftast tekið millistigspróf að því loknu. Síðan tekur við aðalnám (Hauptstudium) og þá er höfuðáherslan lögð á sérhæfingu í þeirri grein eða þeim greinum sem viðkomandi hefur skráð sig í.
 Doktorsgráðu, eða Promotion, er hægt að taka eftir a.m.k. 2–5 ára rannsóknarvinnu og ritgerðarsmíð, að afloknu diplom eða magister-prófi.

Að skrá sig í landið
Þegar komið er til Þýskalands þarf að byrja á því að fara í útlendingaeftirlitið (Ausländerbehörde) og sækja um dvalarleyfi. Án þess eru allar leiðir lokaðar. Skráning fer fram hjá „Einwohnermeldeamt“, þar sem sýna þarf fjárhagsvottorð, staðfestingu á skólavist, tvær passamyndir og vegabréf. Þá þarf að fara í sjúkrasamlag og kaupa sjúkratryggingu. Íslenskir námsmenn geta sótt um undanþágu frá tryggingaskyldu sem kveðið er á um í þýskum lögum með því að leggja fram vottorð frá Tryggingastofnun ríkisins. Sækja þarf um undanþáguna innan þriggja mánaða frá upphafi tryggingaskyldunnar. Að lokum er farið í þýskupróf, eins og áður er getið, og þá getur innritun í skólann farið fram. Í Bæjaralandi (München) má krefja námsmenn um vottorð um að þeir séu ekki með eyðni.

Tungumálið og námskeið
 Áður en hægt er að hefja nám þarf að gangast undir þýskupróf. Undirbúningsnámskeið fyrir þýskuprófið er í boði hjá flestum háskólum. Upplýsingar um námskeiðin fást hjá skrifstofu fyrir erlenda námsmenn við skólana (Akademisches Auslandsamt). Endurmenntunarstofnun HÍ hefur boðið íslenskum nemendum upp á undirbúningnám í þýsku fyrir PNDS-prófið. Upplýsingastofa um nám erlendis lánar út kennslugögn (snældu og bók) til undirbúnings.

Húsnæði
 Hægt er að sækja um húsnæði á stúdentagörðum hjá þeim háskóla sem ætlunin er að stunda nám við. Slíkt þarf að sækja um hjá „Akademisches Auslandsamt“ eða „Studentenwerk“, að minnsta kosti tveimur mánuðum áður en nám hefst. Engin trygging er þó fyrir að húsnæði fáist.
 Flestir leigja á almennum markaði og deila þá oft íbúðum með öðrum námsmönnum. Húsnæði er auglýst í blöðum, á stúdentaheimilum og á skrifstofum fyrir erlendra stúdenta. Einnig má leita til almennra leigumiðlana. Barnafólk getur fengið aðstoð hjá viðkomandi sveitarfélagi við úthlutun á ódýru húsnæði.

Félagslegar aðstæður
Öllum námsmönnum er skylt að vera tryggðir. Sjúkratrygging greiðir lækna- og tannlæknakostnað, hluta lyfja-, gleraugna- og sjúkrahússkostnaðar. Flytji námsmaður ekki lögheimili sitt heldur hann tryggingu sinni hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta gildir einnig um fjölskyldumeðlimi sem fara með námsmanninum til námslandsins. Hægt er að fá vottorð hjá Tryggingastofnun sem staðfestir þetta og heitir það E-128. Einnig er hægt að kaupa s.k. „Haftpflichtversicherung" sem er einskonar trygging fyrir skakkaföllum.
 Mjög erfitt er að fá barnaheimilispláss og nær ómögulegt fyrir börn yngri en þriggja ára. Eldri börn eiga möguleika á dagheimili hálfan daginn. Kostnaður fer eftir tekjum foreldra og til boða stendur barnastyrkur frá hinu opinbera.
 Í mörgum háskólum er boðið upp á „Semesterticket“ kort sem gildir í strætisvagna og sporvagna í hálft ár og er tiltölulega ódýrt.

Mikilvægt varðandi LÍN
Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í eitt misseri (tvo fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er bundið því skilyrði að áframhaldandi nám verði stundað í Þýskalandi. Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til lánasjóðsins.

Frekari upplýsingar

Studien- und Berufswahl : Informationen und Entscheidungshilfen, Verlag Karl Heinrich Bock í Bad Honnef.

Postgraduate Courses in the Federal Republic of Germany, Deutscher Akademischer Austauschdienst (DAAD), Kennedyallee 50, D–53025 Bonn.

Upplýsingastofa um nám erlendis.

Einnig reynir SÍNE að vera hjálplegt við að finna tengiliði í þeim skólum eða á þeim stað sem námsmaður hefur áhuga á. 

Vefföng

Heimasíða SÍNE:
 http://www.sine.is
Upplýsingar fyrir erlenda stúdenta um nám í Þýskalandi:
http://www.daad.org
Upplýsingar um nám í Þýskalandi:
http://zsb.uni-muenster.de/studium_wwu/faecherliste.phpUpplýsingar um skóla í öllum heiminum:
http://www.worldwide.edu

Heimilsföng

• SÍNE, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Sími: 552 5315. Netfang: sine@sine.is.
• Upplýsingastofa um nám erlendis, Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 4586, fax: 525 5850. Netfang ask@hi.is.
• Þýska sendiráðið, Laufásvegur 31, 101 Reykjavík, p.box 400, 121 Reykjavík. Sími: 530 1100, fax: 530 1101. Opið 9:00-12:00.
• Sendiráð Íslands í Þýskalandi, Kronprinzenstrasse 6, 53173 Bonn. Sími: (228) 364021, fax: (228) 361398. Netfang: icemb.bonn@utn.stjr.is. Opið kl. 9:00–16:00.
• Þýska menningarsetrið, Lindargötu 46, 101 Reykjavík. Sími: 551 6061, fax: 552 7570.
• Deutscher Akademischer Austauschdienst (DAAD), Kennedyallee 50, 53175 Bonn. Sími: (228) 8820, fax: (228) 882 4444.
• Flugleiðir í Frankfurt/Main, Roßmarkt 10, 60311 Frankfurt. Sími: (69) 299 978, fax: (69) 283 872. Netfang: germany@icelandair.is.
• Eimskip: Eimskip Deutschland, Brandsende 6, 20095 Hamburg. Sími: (40) 323 3300, fax: (40) 323 33060. Netfang: gau@eimskip.de.
• Samskip í Bremerhaven: Nicolaus Haye & co, Bischoff House, Neuenstrasse 16-20, 28195 Bremen, Postfach 106049, 28050 Bremen. Sími: (421) 17650, fax: (421) 1765371.

 

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf