Þjónusta SÍNE við félagsmenn
Félagsmenn geta hringt “collect” á skrifstofu SÍNE hvaðanæva að úr heiminum.
SÍNE félagar fá aðstoð í samskiptum sínum við Lánasjóð íslenskra námsmanna en í stjórn LÍN situr fulltrúi frá SÍNE og vinnur stöðugt að bættum kjörum félagsmanna í lánamálum
Framkvæmdastjóri SÍNE situr alla s.k. vafamálafundi Lánasjóðsins og leiðbeinir félagsmönnum í málarekstri auk þess að tala máli allra námsmanna á þeim fundum.
SÍNE félagar njóta afsláttarkjara hjá Samskipum en þeir fá 12% afslátt af flutningsgjöldum hjá fyrirtækinu.
Fyrir jól og á vorin reynir SÍNE að afla hagstæðra kjara á flugmiðum til Íslands fyrir félagsmenn sína.
Tengiliðir SÍNE aðstoða félagsmenn í viðkomandi námslandi
Stjórn SÍNE leitar allra leiða til að bæta hag námsmanna erlendis
SÍNE er í samstarfi við Atvinnumiðstöð stúdenta og geta félagsmenn leitað þangað þeim að kostnaðarlausu í leit að sumar- eða framtíðarstarfi
SÍNE hefur barist fyrir lægri endurgreiðslubyrði námslána og nú gefst lánþegum kostur á að greiða af láni sínu átta greiðslu á ári í stað tveggja áður.
SÍNE er aðili að samráðshóp 15 samtaka sem leita munu leiða til að létta endurgreiðslubyrði námalána
SÍNE er í samstarfi við Fjölskylduvefinn, www.fjolskylda.is, Þar sem félagsmenn geta leitað upplýsinga um
málefni fjölskyldunnar. SÍNE er einnig í samstarfi við Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna, þar sem hægt er að leita
upplýsinga varðandi fjármál. Ráðgjafastofan er til húsa að Hverfisgötu 6 og er opinn frá 9:00 - 12:00 og frá 13:00 -
15:00. Símatími er frá 9:00 - 12:00 og er símanúmerið 551-4485






