Samband íslenskra námsmanna erlendis

Þjónusta SÍNE við félagsmenn Félagsmenn geta hringt “collect” á skrifstofu SÍNE hvaðanæva að úr heiminum.  SÍNE félagar fá aðstoð í samskiptum

Í námi erlendis

Þjónusta SÍNE við félagsmenn

Félagsmenn geta hringt “collect” á skrifstofu SÍNE hvaðanæva að úr heiminum. 

SÍNE félagar fá aðstoð í samskiptum sínum við Lánasjóð íslenskra námsmanna en í stjórn LÍN situr fulltrúi frá SÍNE og vinnur stöðugt að bættum kjörum félagsmanna í lánamálum

Framkvæmdastjóri SÍNE situr alla s.k. vafamálafundi Lánasjóðsins og leiðbeinir félagsmönnum í málarekstri auk þess að tala máli allra námsmanna á þeim fundum.

SÍNE félagar njóta afsláttarkjara hjá Samskipum en þeir fá 12% afslátt af flutningsgjöldum hjá fyrirtækinu.

Fyrir jól og á vorin reynir SÍNE að afla hagstæðra kjara á flugmiðum til Íslands fyrir félagsmenn sína.

Tengiliðir SÍNE aðstoða félagsmenn í viðkomandi námslandi

Stjórn SÍNE leitar allra leiða til að bæta hag námsmanna erlendis

SÍNE er í samstarfi við Atvinnumiðstöð stúdenta og geta félagsmenn leitað þangað þeim að kostnaðarlausu í leit að sumar- eða framtíðarstarfi

SÍNE hefur barist fyrir lægri endurgreiðslubyrði námslána og nú gefst lánþegum kostur á að greiða af láni sínu átta greiðslu á ári í stað tveggja áður.

SÍNE er aðili að samráðshóp 15 samtaka sem leita munu leiða til að létta endurgreiðslubyrði námalána

SÍNE er í samstarfi við Fjölskylduvefinn, www.fjolskylda.is, Þar sem félagsmenn geta leitað upplýsinga um málefni fjölskyldunnar.  SÍNE er einnig í samstarfi við Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna, þar sem hægt er að leita upplýsinga varðandi fjármál.  Ráðgjafastofan er til húsa að Hverfisgötu 6 og er opinn frá 9:00 - 12:00 og frá 13:00 - 15:00.  Símatími er frá 9:00 - 12:00 og er símanúmerið 551-4485 
 
 


Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf