Skráning í SÍNE
Ef þú hefur áhuga á að gerast félagi í SÍNE hefurðu um tvær leiðir að velja. Annars vegar geturðu gert ráð fyrir félagsaðild á lánaumsókn LÍN og hins vegar er alltaf hægt að hafa samband beint við skrifstofu SÍNE og ganga þannig frá félagsaðild. Árlegt félagsgjald er 2.500 krónur.
Mikilvægt að muna eftir netfanginu !
Félagsmenn SÍNE verða sjálfir að senda skrifstofu SÍNE upplýsingar um net- og heimilisfang sitt erlendis, til þess að fá örugglega
sendan póst og tilkynningar frá félaginu. Því fyrr sem það er gert því fyrr fer póstur að berast frá SÍNE.







