Samband íslenskra námsmanna erlendis

Hlutverk SÍNE Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE, var stofnað þann 13. ágúst 1961. Æ síðan hefur félagið starfað að víðtækri hagsmunagæslu fyrir

Starf SÍNE

Hlutverk SÍNE

Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE, var stofnað þann 13. ágúst 1961. Æ síðan hefur félagið starfað að víðtækri hagsmunagæslu fyrir íslenska námsmenn á erlendri grund.

Aðild að félaginu er frjáls, en reynslan hefur sýnt að langflestir námsmanna sjá sé hag í að njóta þjónustu SÍNE og sýna stuðning sinn í verki. Félagsgjöld eru 2500 kr. fyrir námsárið, og eru dregin af fyrstu útborgun framfærsluláns nema merkt sé við á lánaumsókninni að menn vilji ekki vera félagar. Námsmenn sem ekki eru á námslánum verða að skrá sig sérstaklega á skrifstofu SÍNE.

SÍNE hefur öðlast traustan sess í íslenska stjórnkerfinu. SÍNE er ábyrgur aðili sem hlustað er á og leitað til um álit á málum er varða námsmenn almennt. Sem SÍNE-félagi getur þú því haft raunveruleg áhrif á mikilvæg málefni.

SÍNE er aðili að Samstarfsnefnd námsmannahreyfinganna, sem samhæfir aðgerðir og heldur uppi öflugri hagsmunagæslu fyrir námsmenn sem heild.

SÍNE heldur uppi stöðugum samskiptum og samstarfi við Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þetta tryggir starfsfólki SÍNE aðgang að öllum upplýsingum sem námsmenn erlendis kann að vanhaga um hjá Lánasjóðinum.

SÍNE-félagar geta hringt "collect" á skrifstofu félagsins með spurningar um hvaðeina sem starfsmenn kunna að geta leyst úr fyrir þá.

Í gegn um skrifstofuna er hægt að ná sambandi við fulltrúa SÍNE í stjórn og nefndum Lánasjóðsins.

Reynsla annarra af hagnýtum atriðum varðandi búsetu í öðrum löndum hefur oft orðið til að létta námsfólki á leið út í nám róðurinn. Þess vegna er SÍNE með starfandi trúnaðarmenn í helstu námsborgum erlendis, sem veita námsmönnum aðstoð og upplýsingar. Þeir aðstoða einnig skrifstofu SÍNE við að gæta sérhagsmuna stúdenta í viðkomandi landi, svo sem í framfærslumálum.

Málgagn SÍNE, Sæmundur, kemur út 1-2 sinnum á ári og er hann sendur öllum félagsmönnum. Greinar um hagsmunamál, fréttaannálar úr starfi félagsins og aðrar gagnlegar upplýsingar eru meðal efnis í blaðinu.

SÍNE gefur út bókina Nám erlendis sem er uppflettirit um hvernig er best að snúa sér ef ætlað er í nám erlendis. Bókin inniheldur ýmsar almennar upplýsingar ásamt nánari lýsingu á aðstæðum í öllum helstu löndum sem Íslendingar stunda nám í. Bókin er í stöðugri endurskoðun og er endurútgefin eftir þörfum.

Öflugt hagsmunapólítískt starf er forsenda fyrir viðunnandi lánakjörum íslenskra námsmanna erlendis. Því stærri hópur sem stendur að baki SÍNE, því meiri áhrif geta samtökin haft á pólitískar ákvarðanir sem snerta fjárhag hvers og eins.

Skrifstofa SÍNE er opin alla virka daga frá kl 9-12.




Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf