Fjárhagsaðstoð og styrkir
Styrkjamöguleikar fyrir íslenska framhaldsnema og rannsókna- og vísindafólk erlendis
Ert þú:
- í framhaldsnámi við háskóla erlendis
- við rannsóknastörf erlendis
- á leið heim úr háskólanámi eða rannsóknastörfum
og hefur áhuga á að fá upplýsingar sendar í tölvupósti um styrkjamöguleika til framhaldsmenntunar og rannsóknarvinnu?
Skráðu þig þá í gagnabanka Rannís. Hann er að finna á heimasíðu Rannís (http://www.rannis.is/) .
Í lok árs 2004 ákváðu alþjóðasvið og greiningarsvið Rannís að hrinda af stað átaksverkefni sem miðar að
því að ná til Íslendinga í framhaldsnámi og þeirra sem stunda rannsókna- og vísindastörf erlendis.
Markmið verkefnisins: Veita íslenskum framhaldsnemendum og rannsókna- og vísindafólki við nám og störf erlendis upplýsingar um
margvíslega styrkjamöguleika. Rannís hefur umsjón með innlendum sjóðum og er aðili að erlendum áætlunum sem styrkja rannsókna- og
vísindastörf. Hingað til hefur verið erfitt að ná til þessa fólks til að færa því upplýsingar. Þess vegna hefur
Rannís sett upp gagnagrunn sem íslenskir framhaldsnemendur og rannsókna- og vísindafólk getur skráð sig í. Upplýsingar úr
gagnabankanum verða einnig notaðar til að vinna tölfræði um fjölda íslenskra framhaldsnemenda og rannsókna- og vísindafólks.
Ef þú skráir þig í gagnabankann færðu reglulega sendan tölvupóst um nýjustu styrkjamöguleika og umsóknarfresti.
Vinsamlega hafðu samband við eftirfarandi tengiliði til að fá nánari upplýsingar.
Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir, alþjóðasvið Rannís, tobba@rannis.is , 515 5813.
Elva Brá Aðalsteinsdóttir, greiningarsvið Rannís, elva@rannis.is , 515 5807.
Marie Curie – mannauðsáætlun Evrópusambandsins
Einkum eru veittir styrkir til einstaklinga til að færa sig um set og til stofnana, fyrirtækja og háskóla til að ráða til sín framhaldsnemendur og
vísindafólk með skemmri eða lengri starfsreynslu. Einnig eru góðir möguleikar fyrir Evrópubúa, sem starfað hafa utan Evrópu um
tíma, að fá styrki til að hefja störf í álfunni, þ.á.m. á Íslandi. Umsóknafrestir eru nokkrir á hverju
ári.
Nánari upplýsingar eru að finna á vefsíðu Rannís: http://www.rannis.is/page.asp?id=791 eða á vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins: http://europa.eu.int/comm/research/fp6/mariecurie-actions/indexhtm_en.html
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn B. Björnsson, thorsteinn@rannis.is , 515 5800.






