Samband íslenskra námsmanna erlendis

Styrkur til háskólanáms á Ítalíu   Ítölsk stjórnvöld munu væntanlega bjóða fram styrk/styrki handa Íslendingum til háskólanáms á Ítalíu námsárið

SÍNE 50 ára

Styrkir

Styrkur til háskólanáms á Ítalíu
 

Ítölsk stjórnvöld munu væntanlega bjóða fram styrk/styrki handa Íslendingum til háskólanáms á Ítalíu námsárið 2009-2010. Styrkurinn er einkum ætlaður til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við listaháskóla (að loknu grunnnámi). Einnig kemur til greina að veita styrk til að sækja þriggja mánaða námskeið í ítölsku við Háskólann í Siena eða Perugia. Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára. Styrkfjárhæðin nemur u.þ.b. 1000 evrum á mánuði. Nánari upplýsingar og eyðublöð fást í menntamálaráðuneyti. Upplýsingar er einnig hægt að nálgast á vefslóðinni: http://www.esteri.it/MAE/IT/Ministero/Servizi/Stranieri/Opportunita/ og eyðublöð: http://borseonline.esteri.it/borseonline/it/index.asp
Umsóknarfrestur er til 27. maí 2009.


Íslenska-Ameríska félagið: styrkir til náms í Ameríku

Auglýsing um styrki fyrir skólaárið 2009-2010
-Thor Thors styrkir til háskólanáms í Bandaríkjunum.

Lausir eru til umsóknar styrkir úr Thor Thors sjóðnum til háskólanáms í Bandaríkjunum skólaárið 2009-10. Umsækjendur skulu hafa lokið (eða ljúka í vor) námi til fyrstu gráðu háskólastigs (B.A, B.Sc, B.Ed eða sambærilegri gráðu). Styrkhæft nám skal allt fara fram í Bandaríkjunum.

Umsóknareyðublöð má sækja á www.iceam.is þar sem almennar upplýsingar koma einnig fram. Umsóknir þar að senda eigi síður en 1.apríl 2009 til íslensk-ameríska félagsins, pósthólf 320, 121 Reykjavík.  Sjá nánari á síðunni www.iceam.is

 

Skoðaðu handbók eftir heimshlutum

worldMap Amerika Ástralía og Asía Norðurlönd Evrópa

Mini page

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf