Tékklistinn - Á leið í nám erlendis
Að mörgu er að hyggja þegar leggja á land undir fót og halda til náms á erlendri grundu. SÍNE hefur útbúið eftirfarandi minnislista yfir helstu atriði sem huga þarf að áður en haldið er út. Ef spurningar vakna við lesturinn hafðu þá endilega samband við okkur.
1. Ákveða land og kynna sér skóla.
Nauðsynlegt er að hefja undirbúning a.m.k 1 – 1 ½ ári áður en áætlað nám hefst, misjafnt eftir löndum.
Hafa samband við Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins http://www.ask.hi.is/ (Upplýsingar um nám erlendis) vegna upplýsinga um skóla erlendis. Skrifstofan er á Háskólatorgi. Á heimasíðu skrifstofunnar eru upplýsingar um vefföng skóla í flestum löndum, ásamt góðum leitarvélum.
Fulbright-stofnunin http://www.fulbright.is/ veitir upplýsingar um nám, skóla og styrki í Bandaríkjunum. Skrifstofan er staðsett á Laugavegi 59 og er opin mán-fim frá kl.13-16. Þar er að finna almennar handbækur, kennsluskrár skóla, upplýsingar um mat á skólum, ýmsar leiðbeiningar og reglulega eru haldnir kynningarfundir yfir veturinn fyrir námsmenn á leið til Bandaríkjanna.
Menningardeild Franska sendiráðsins að Túngötu 22 (http://www.ambafrance.is/ ) veitir hagnýtar upplýsingar um franska háskóla og kerfið í Frakklandi.
Kanna þarf lánshæfi skólans eða skólanna sem um ræðir áður en lengra er haldið. Á heimasíðu Lánasjóðs íslenskra námsmanna http://www.lin.is/ er að finna lista yfir þá skóla sem lánað hefur verið til fram að þessu, en athugið þó að þessi listi er alls ekki tæmandi og hægt er að sækja um að fá nýja skóla samþykkta lánshæfa.
2. Taka tungumálapróf
Flestir skólar erlendis gera kröfu um tungumálapróf af einhverju tagi – athugaðu í tíma hvaða kröfur þinn skóli gerir um tungumálakunnáttu.
Bandarískir háskólar gera kröfu um að nemendur þreyti próf áður en til inngöngu í skóla kemur:
v TOEFL er enskupróf sem allir umsækjendur þurfa að taka
v SAT er fyrir þá sem eru að hefja háskólanám (ekki algilt)
v GMAT þurfa flestir að taka sem ætla í framhaldsháskólanám í viðskiptagreinum
v GRE er ætlað þeim sem fara í framhaldsháskólanám í öðrum greinum
Franskir háskólar gera sömu kröfu en hægt er að taka DELF og DALF prófin hjá Alliance française, http://af.ismennt.is/ en þau fara yfirleitt fram í mars.
Þýskir háskólar krefjast þess einnig að nemendur taki þýskupróf áður en til inngöngu kemur. DSH (er einungis hægt
að taka í þýskum háskólum ef umsókn í skólann hefur verið samþykkt) eða TestDAF http://www.testdaf.de/ (hægt að taka í Háskóla Íslands vor og haust).
3. Sækja um skóla
Bandaríkin, Kanada, Ástralía, Nýja Sjáland: ágúst-september ári áður en nám hefst.
Danmörk: 15.mars
Noregur/Svíþjóð: 15.apríl
Bretland: 15.okt (Oxford, Cambridge) – 15.jan
Frakkland: 1.des – 15.jan
Þýskaland: 15.janúar (sumarm.) 15.júlí (vetrarm.)
4. Afla styrkja
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins gefur út bókina Handbók um styrki http://www.ask.hi.is/page/styrkir þar sem styrkirnir eru flokkaðir eftir löndum, greinum
og tegundum.
Fulbright stofnunin veitir árlega styrki til að hefja framhaldnám í Bandaríkjunum. Athugið að sækja þarf um styrkina um miðjan október ári áður en nám hefst.
Á styrkjasíðu SÍNE er einnig að finna upplýsingar um styrki sem í boði eru hverju sinni.
5. Húsnæði
Um leið og svar berst frá skóla ættu námsmenn að fara að huga að húsnæðisleit. Í mörgum tilvikum getur sú leit jafnvel hafist um leið og sótt er um skóla. Í Danmörku er t.d. hægt að sækja um vist á stúdentagörðum áður en skólavist hefur verið staðfest. Það eru nokkrar leiðir til að verða sér úti um húsnæði:
Sækja um vist á stúdentagarði, þar sem það á við. Á heimasíðu Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins er að finna heimasíður stúdentagarða á Norðurlöndum og víðar. Oftast er hægt að sækja um beint af þeim síðum eða að biðja um að fá send umsóknareyðublöð.
Hafa samband við námsmenn á heimleið eða námsmenn á staðnum sem gætu vitað um laust leiguhúsnæði (t.d. trúnaðarmenn SÍNE – sjá upplýsingar á heimasíðu) eða hafa samband við Íslendingafélögin á staðnum (sjá heimasíðu SÍNE).
Senda auglýsingu á leigumarkað sem starfræktur er á húsnæðissíðu SÍNE
Leigja íbúð hjá leigumiðlun í viðkomandi borg.
6. Tryggingar
Norðurlönd:
Íslenskir námsmenn sem flytja lögheimili sitt til Norðurlanda komast inn í heilbrigðistryggingakerfið skömmu eftir að lögheimilisflutningur
á sér stað. Þeim er þá úthlutað kennitölu og geta í flestum tilvikum valið sér heimilislækni.
ESB - ríkin:
Ef lögheimili er ekki flutt til námslands eig ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir á Íslandi
rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort hjá Tryggingastofnun ríkisins. Kortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í
öðru EES-ríki (sjá nánari upplýsingar).
Bandaríkin:
Þeir sem ekki flytja lögheimili sitt út halda tryggingu sinni hér og verða því að taka með sér vottorð þess efnis frá
Tryggingastofnun ríkisins. Nauðsynlegt er að kaupa aukatryggingu þegar út er komið og algengt er að skólarnir bjóði bestu kjörin eða
bæti skyldutryggingu við skólagjöldin.
7. Vottorð og vegabréfsáritanir:
Norðurlöndin:
Íslenskir námsmenn sem fara til Norðurlandanna flytja lögheimili sitt til viðkomandi lands og þurfa að hafa meðferðis samnorrænt
flutningsvottorð sem fæst hjá Þjóðskrá, http://www.thjodskra.is/
Eftir skráningu í viðkomandi landi (fer fram á “folkeregisteret”) tekur 1-2 vikur að komast inn í sjúkratryggingakerfið. Þeir sem fara
til Svíþjóðar ættu einnig að hafa meðferðis fæðingar- og giftingarvottorð.
Halló Norðurlönd veita upplýsingar um “kerfi” ríkjanna http://www.hallonorden.org/
ESB - ríkin:
Nauðsynlegt að hafa meðferðis vegna skráningar inn í landið:
- Vegabréf ( og 1-2 ljósrit af því)
- Vottorð um skólavist
- Fjárhagsvottorð (t.d. lánsloforð frá LÍN)
- Sjúkratryggingastofnun http://www.sjukra.is/heilbrigdisthjonusta/rettindi-milli-landa/flutningur-milli-landa/namsmenn-erlendis/
Bandaríkin:
Námsmenn þurfa sérstaka vegabréfsáritun sem sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi gefur út. Sjá upplýsingar um
“Non-immigrant visas” á http://www.usa.is/
Nauðsynlegt er að hafa giftingarvottorð meðferðis ef maki námsmanns ætlar ekki í nám. Maki og börn þurfa sérstakar vegabréfsáritanir sem ætlaðar eru fjölskyldum námsmanna. Sambúðaraðili sem ekki fer í nám getur ekki dvalið í Bandaríkjunum lengur en 90 daga í senn skv. núgildandi lögum.
Nauðsynlegt er að hafa meðferðis yfirlýsingu um sjúkratryggingu frá Sjúkratryggingum Íslands. Sýna þarf vottorð frá skóla eða LÍN til að fá þessa yfirlýsingu.
Nauðsynlegt er að geta framvísað fyrrnefndum gögnum ásamt staðfestingu á skólavist hjá landamæravörðum við komuna til landsins.
8. Námslán
Sækja þarf um námslán hjá LÍN fyrir 1.desember vegna haustmisseris / 1.maí vegna vormisseris og 1.júlí vegna náms um sumarið.
9. Búslóðaflutningar
Ef búslóð er tekin með út þarf að huga að flutningi hennar í tíma. SÍNE félagar njóta afsláttarkjara hjá Samskipum http://www.samskip.is/ en nánari upplýsingar er að finna hér
10. Félagsaðdild að SÍNE
Ef þú hefur áhuga á að gerast félagi í SÍNE er handhægast að gera ráð fyrir félagsaðild á lánsumsókn LÍN en ef þú þiggur ekki lán hjá LÍN geturðu ættirðu endilega að hafa samband við okkur með tölvupósti eða í síma 552-5315 á milli 9 og 12. Félagsgjald SÍNE er 2.500 á ári.
Hafðu endilega samband við okkur ef einhverjum spurningum er ósvarað eftir lestur þessa minnislista.







